Dagblaðið - 31.01.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 31. JANUAR 1981.
DB á ne ytendamarkaði
Sízt ódýrara úti á landi:
Vörur dýrar og
í litlu úrvali
G.I. skrifar:
Mig langar að skrifa smálínu um
leið og ég sendi upplýsingaseðilinn.
Ég var með bókhald fyrir ári en gafst
upp á því í desember ’79. Ég byrjaðr
svo aftur þegar ég flutti hingað tilj
Hornafjarðar, þ.e. um mánaðamótinl
október-nóvember. Ég bjóst við aðl
það væri ódýrara að búa úti á landi,
ep nú er ég búin að komast að raun,
'um að svo er ekki. Það er jafnvel dýr-
ara. Fyrir nú utan það að ef maður
þarf að skreppa til Reykjavíkur
kostar það litlar 65 þús. gkr. á manni
neytenda
fram og til baka. Ég þarf nefnilega að
fara suður mánaðarlega vegna tann-
réttinga. En þó það sé greitt af trygg-
ingunum að hluta tekur alltaf 2—3
mánuði að fá það í gegn.
Mér finnst matvara og önnur
nauðsynjavara alltof dýr hérna og úr-
valið ekki nærri nóg. Því keypti ég
t.d. allan dósamat í heildsölu þegar
ég fór tii Reykjavíkur í desember
þannig að matarreikningurinn erf
dálitið hár.
Unga fólkið og eldhússtörfín í nýrri útgáf u:
Vöruf ræði og al-
gengar uppsíuiftir
Unga stúlkan og eldhússtörfin hét!
bók sem ég og flestir sem á mínum'
aldri eru lærðum éftir matreiðslu. Þá
nutu reyndar stúlkur einar þeirra for-
VILBQRG BJORNSDOTTIR
ÞQRGERÐUR ÞQRGEIRSDOTTIR
UNGA FÚLKIÐ
OG ELDHÚSSTðRFIN
NAMSGAGNASTOFNUN
réttinda að læra í skólum að elda
ofan í sig. Nú eru aðrir tímar og
piltar fá líka að læra þessi nauðsyn-
legu fræði. Því hefur nafni bókarinn-
ar verið breytt og hún heitir nú Unga
fólkið og eldhússtörfin. Er hún
kennd við þá skóla sem á annað borð
kenna matreiðslu.
Nú á dögunum kom út ný útgáfa af
þessari merkisbók. Eldri útgáfa var
uppseld og var fækifærið notað til
þess að endurskoða allt mögulegt. í
nýju bókinni hefur verið aukið veru-
lega við alla fræðslu um matvælin og
næringargildi þeirra ásamt þeirri
meðhöndlun sem bezt þykir. Það eru
fleiri en skólabörn sem mikið gætu
lært af bókinni þeirri arna.
Eins og fyrr eru höfundar bókar-
innar þær Þorgerður Þorgeirsdóttir
og Viíborg Björnsdóttir. Þær hafa
báðar langa reynslu í kennslu mat-
reiðslu og vita hvað það er sem nauð-
synlegast er að fólk viti þegar það
einn daginn ætlar að fara að elda sér
og sínum matarbita.
S bókinni er einnig kennd meðferð
þvottar, réttar vinnustellingar og
fleira i þeim dúr. Bókin er 166 síður í
fremur stóru broti.
Hér á eftir fer ein uppskriftanna úr
henni.að ávaxtagraut.
150 g blandaðir ávextir (þurrkaðir)
3/41 vatn
1/2—3/4 dl sykur
2 msk. kartöflumjöl
1/2 dl kalt vatn
Ávextirnir eru þvegnir úr köldu
vatni og lagðir í bleyti í nokkrar
klukkustundir. Soðnir í sama vatninu
þar til þeir eru meyrir. Sykrinum
bætt í. Kartöflumjölið er hrært út
með köldu vatni. Potturinn tekinn af
suðuplötunni og kartöflumjölsjafn-
ingnum hellt út í í mjórri bunu, hrært
vel í á meðan. Suðan látin koma upp
aftur. Grauturinn er látinn í skál og 1
tsk. af sykri stráð yfir.
- DS
Kótelettur
með papríku
Lambakjötið okkar er hægt að
matreiða á ótal mismunandi vegu og
á nýstárlegri hátt en við flest erum
vön. í sunnudagsmatinn væri til
dæmis upplagt að hafa réttinn sem
hér birtist. Eigi að hafa svona rétt til
hversdagsverðar má nota annað kjöt
en kótelettur.
Uppskrift
dagsins
Heiimlisbákhald vikrnia: til
Mat- óg drjddc arvörur, hreinlætisvörur og þ.h.:
Sunnud Mánud Þridjud Miðvikud FLmmtud Föstud Langard
SumL Samt Samt. SamL Sanrt SamL SamL
ömmr útgnöld.:
Sunnud Mánud Þriðjud Miðvikud Fimmtud Föstud Laugard
,
'
Samt SamL SamL SamL SamL SamL flHmt.
8 lambakótelettur, því magrari því
betra
salt og pipar
2 tsk. hveiti
25 g smjör eða smjörlíki
1 laukur, saxaður
1 paprika, hreinsuð og brytjuð
2 tsk. paprikuduft
pipar
örlitið af cayenne pipar (þessum
rauða)
1 dós tómatar
Veltið kótelettunum upp úr krydd-
uðu hveiti. Steikið þær á pönnu þat
til þær eru vel brúnar. Takið af pönn-
unni og setjið á þær laukinn og síðar
paprikuna. Látið malia þar til þær
eru orðnar meyrar. Stráið á papriku-
duftinu, pipar og cayenne pipar og
látið malla í minútu. Setjið kótelett-
urnar á pönnuna og tómatana úr dós-
inni út á. Kryddið frekar ef ykkui
finnst þurfa. Látið sjóða við vægan
hita í hálfa til heila klukkustund eftir
því hversu mikið mauk þið viljið gera
úr kótelettunum. Hrærið vel upp í
sósunni áður en rétturinn er borinn
fram. Framreitt með grænum baun-
um.
Með kótelettum er þessi réttur
fremur dýr. Kílóið af þeim kostar
rúmlega 40 krónur. Hvað 8 kótelettur
eru þungar fer auðvitað eftir þykkt
þeirra en ekki er fjarri lagi að réttur-
inn kosti í kringum 30 krónur allt i
allt.
- DS
Tryggviáheiðurínn
af jógúrtlokunum
Þegar við sögðum frá því um dag-
-inn að komnar væru nýjar umbúðir
utan unt jógúrt gerðum við okkur sek
um örlitla ónákvæmni. Við sögðum
að Kristín Þorkelsdóttir hefði hannað
lokið. Þetta er ekki alveg rétt.
Tryggvi T. Tryggvason, sem vinnur á
Auglýsingastofu Kristínar hf., á
heiðurinn af lokunum. Hitt er rétt að
hann vann þau á vegum Kristínar
Þorkelsdóttur.
- DS