Dagblaðið - 31.01.1981, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1981.
ÚTBOÐ
Orkubú Vestfjarða óskareftir tilboðum í spennistöðvarefni
(aflrofa og aðskiljararofa). Útboð 581. Útboðsgögn fást hjá
tæknideild Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi 1 tsafirði.
Sími 94-3900. Tilboð verða opnuð miðvikudaginn 11.
marz nk. kl. 14.00.
Orkubú Vestfjarða
Tæknideild.
BMW 728 árg. 1978
BMW 525 árg.1974
BMW 520 árg.1978
BMW 320 árg. 1979
BMW 320 árg. 1978
BMW 318 autom. árg. 1979
BMW 316 árg. 1980
BMW 320 árg. 1980
Renault 20 TL árg.1978
Renault 20 TL árg. 1977
Renault 12 TL árg.1971!-
Renault 5 GTL árg. 1980
Renault 5 TL árg. 1975
Renault 4 TL árg.1979
Renault 4 VAN F6 árg.1977
Renault 4 VAN F6 árg.1978
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUDURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633
AÐALMANNTAL
1981
Dreifingu manntalseyðublaða á nú að vera
lokið alls staðar. Þeir, sem hafa ekki fengið
eyðublöð í hendur, eru vinsamlega beðnir að
afla sér þeirra á skrifstofu sveitarstjórnar. í
þéttbýli á höfuðborgarsvæði og á Akureyri
eru eyðublöð einnig fáanleg á lögreglu-
stöðvum.
Hagstofan
AÐALMANNTAL
1981
Akureyrarbær og sveitarstjórnir á höfuð-
borgarsvæði veita leiðbeiningar um útfyll-
ingu manntalseyðublaða laugardaginn 31.
janúar, í síma sem hér segir:
Sími
Akureyri................. 21001
Garðabær................. 42311
Hafnarfjörður............ 53444
Kópavogur................ 41570
Mosfellshreppur.......... 66267
Reykjavík................ 18000
Seltjarnarnes............ 20980
Sveitarstjórnirnar
Tillaga nfu manna í Verkalýðsfélaginu Ðningu um „öflugra lýðræði og virkara
félagsstarf’:
„Sit ekki í stjóminni
sem einmana nöldrarí”
— segir Guðmundur Sæmundsson öskukarl sem er einn flutningsmanna
tillögunnar—og er sjáffkjörinn í nýja stjóm Einingar
Níu manns úr Verkalýðsfélaginu
Einingu við Eyjafjörð, Akureyrar-
deild, hafa lagt fram tillögur til laga-
breytinga og ályktunar sem hafa að
markmiði, að sögn aðstandenda, að
„efla lýðræði í Einingu og auka þátt-
töku almennra félaga í starfi verka-
lýðsfélagsins. Guðmundur
Sæmundsson starfsmaður Akur-
eyrarbæjar (bauð sig fram til forseta-
Guflmundur Sæmundsson.
embættis Alþýðusambandsins á ASÍ-
þinginu í nóvember) skrifar kjallara-
grein í Dagblaðið t dag og skýrir til-
lögurnar sem hann stendur að ásamt
fleirum. Aðalefni hennar er að ein-
falda að mun formið á allsherjarat-
kvæðagreiðslu innan félagsins þegar
kosnar eru stjórnir, trúnaðarmanna-
ráð eða endurskoðendur reikninga.
Einnig að einfalda kosningar fulltrúa
á þing ASÍ og Verkamannasambands-
ins. Þá er lagt til að enginn Einingar-
félagi geti gegnt fleiri en tveimur
trúnaðarstöðum fyrir félagið í einu
og að stjórnarmenn geti ekki setið
meira en 6 ár samfleytt í stjórn.
, .Forsaga málsins er eiginlega sú að
Jón Helgason formaður Einingar
bauð mér að taka sæti í stjórn félags-
ins. Ég hugsaði málið en skrifaði
stjórninni síðan bréf og setti fram til-
lögur um lagabreytingar og fleira í
því skyni að efla starfið og auka lýð-
ræðið í félaginu,” sagði Guðmundur
Sæmundsson í samtali við DB í gær.
,,Ég vildi kanna viðbrögð stjórnar-
manna og gera þeim Ijóst að ég
myndi ekki setjast í stjórnina sem ein-
mana nöldrari, heldur til að gera eitt-
hvað. Um leið gaf ég Jóni kost á að
draga til baka tilboð um að mér yrði
stillt upp á lista uppstillingarnefndar í
stjómarkjöri á aðalfundinum. Það
hefur hann ekki gert og framboðslist-
inn til stjórnar er því sjálfkjörinn.
Jón sagði hins vegar að stjórnin væri
ekki tilbúin að standa að tillögu
minni. Þá fékk ég nokkra félaga
mína, aðallega starfsmenn hjá Út-
gerðarfélaginu, til liðs við mig. Við
lögðum tillögurnar fram og væntum
þess að þær fái eðlilega meðferð
félagsins. Tillögurnar eru kynntar á
vinnustöðum á Akureyri með dreifi-
ritum og auglýsingum. Við fengum
neitun um að hengja upp miða hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa, fyrir-
tæki Einingarformannsins (Jón
Helgason er i stjórn ÚA). Hins vegar
máttum við halda þar vinnustaða-
fund með þvi skilyrði að Eining hefði
fulltrúa þar líka. En því neitaði Jón
Helgason, hann sagði málið of við-
kvæmt og pólitískt.” -ARH.
„Ýmislegt við til-
lögumar að athuga”
— segir Jón Helgason Einingarformaður
„Menn verða sjálfsagt seint sam-
mála um hvort lýðræðið sé full-
komið. Finna má að ýmsu í skipulagi
verkalýðshreyfingarinnar eins og
öðru. Ég get fullyrt að við í stjóm Ein-
ingar störfum eins lýðræðislega og
við getum. Við troðum ekki á neinum
viljandi,” sagði Jón Helgason for-
maður Einingar þegar hann var
spurður álits á tillögu nímenning-
anna.
„Stjórnarmenn hafa rætt efni
tillagnanna og trúnaðarmannaráðið
mun líka fjalla um þær. Ég hef ýmis-
legt við tillögurnar að athuga án þess
að ég vilji ræða þær opinberlega
núna. Flutningsmenn gera of mikið
úr skorti á lýðræði innan félagsins.
Það kann að vera að ástæðan sé sú að
menn þekkja lítið til mála, enda hafa
flestir þeir sem að tillögunni standa
lítið starfað í félaginu.
Þarna er talað um grundvallar-
breytingar á skipulagi. Innan
Alþýðusambandsins eru í gangi um-
ræður um skipulagsmál og ég held að
menn eigi að vera varkárir í breyting-
um í einstökum félögum til að þær
stangist ekki á við það sem þar
verður ofan á.” -ARH.
Jón Helgason.
Flestar rafveitur landsins ífjárhagskröggum:
Greiðsluerfiðleikar blasa
við hjá Rafmagnsveitunni
— og stöðvun á ef niskaupum og nýhverfaþjónustu ef ekki fæst veruleg
hækkunímaí
Um 30 rafveitustjórar sátu fund SlR i gær um fjárhagsvanda rafveitna. Hér eru frá
vinstri fulltrúar RR Guðmundur Steinbach og Haukur Pálmason. í miðið er Kristján
Jónsson forstjóri Rarik og lengst t.h. Aðalsteinn Guðjohnsen rafmagnsstjóri og for-
DB-mynd F.inar Ólason.
„Það eru fyrirsjáanlegir greiðslu-
erfiðleikar hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur á næstu vikum vegna tregðu
stjórnvalda til gjaldskrárhækkana
þrátt fyrir sannanlegan kostnaðar-
auka,” sagði Aðalsteinn Guðjohnsen
rafmagnsstjóri Reykjavíkur á fundi
sem SÍR boðaði rafveitustjóra allra
rafveitna á landinu til i gær.
„Vandamálið var að smávaxa á
síðasta ári en reiðarslagið kom um ára-
mótin er ríkisstjórnin ákvað 10%
hækkun á opinberri þjónustu, þ.á m. á
verði raforku til neytenda,” sagði
Aðalsteinn.
„Ef ekki fæst veruleg gjaldskrár-
hækkun í mai blasir við stöðvun að ein-
hverju leyti á þjónustu Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og líklega fleiri rafveitna.
Stöðvunin kemur fyrst fram í efnis-
kaupum og vinnu í nýjum hverfum, en
reynt verður að láta hinn almenna
rekstur sitja fyrir þeirri þjónustu sem
hægt er aðveita.”
Aðalsteinn fullyrti að sívaxandi af-
skipti ríkisins af gjaldskrármálum raf-
veitna hefðu leitt til hækkaðs raforku-
verðs er til lengri tíma er litið. Vegna
tregðu á hækkun hafa rafveitur orðið
að taka dýr lán og kostnaður við þau
hefur síðar hækkað raforkuverð um-
fram það sem verið hefði ef rétt raf-
orkuverð hefði alltaf verið ákveðið.
Taldi Aðalsteinn að sú ein skýring væri
á tregðunni að raforkuverð í Reykjavík
væri i vísitölunni og verið væri að
reyna að halda henni niðri á fölskum
forsendum.
Ótal rafveitustjórar lýstu á fundinum
vanda sinna rafveitna.
f fréttatilkynningu af fundinum segir
stjórn SÍR að kostnaður rafveitna við
orkukaup hafi verið 40—50% af orku-
sölutekjum þeirra. Nú sé hlutfallið
fyrir orkukaup komið í 60—65% af
orkusölutekjum.
Innan 10% hækkunarinnar, sem
ákveðin var á raforku um áramótin,
átti að rúmast 16% hækkun til heild-
söluaðila, þ.e. til virkjanafyrirtækja
sem selja rafveitum orku. Það þýðir,
segir í tilkynningunni, að útgjöld
flestra rafveitna vegna orkukaupa
einna saman aukast meira 'en gjald-
skrárhækkuninni nemur. Er því hagur
rafveitnanna verri eftir 10% raforku-
verðshækkun en áður var.
- A.St.