Dagblaðið - 31.01.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1981.
7
Hraunströkarnir stöðu um 100 metra upp í loftið op gosið var mjög tigulegt að sjá. Strókarnir hafa ekki staðið svo hátt áður í Kröflueldum.
Sjöunda gosið í Mývatnseldum nýrri hófst í gær:
Strókamir stóðu
lOOmíloftupp
—þar sem gosið var mest í gömlum gfgum í Éthólaborgum
„Mér sýnist að aðdragandi og hegð-
un þessa goss sé mjög svipað því sem
verið hefur,” sagði Guðmundur Sig-
valdason jarðfræðingur, forstöðu-
maður Norrænu eldfjallastöðvarinnar,
þegar DB-menn flugu með jarðvísinda-
mönnum yfir gosstöðvarnar í Gjá-
stykki um tveimur tímum eftir að gosið
hófst þar í gær.
„Við gátum nokkurn veginn sagt
okkur hvað var í aðsigi strax klukkan
sjö i morgun,” sagði Guðmundur,
„þegar land fór að síga mjög hratt og
skjálftar fylgdu í kjölfarið.”
Guðmundur og aðrir jarðvísinda-
menn um borð í flugvél Sverris Þór-
oddssonar voru sammála um að gosinu
svipaði mjög til gossins í Gjástykki í
júlí á síðasta ári en það átti upptök sín
á svipuðum slóðum. Mjög fagurt var
að sjá yfir gosstöðvarnar í Gjástykki,
austur af norðurenda Gæsafjalla.
Rennsli virtist heldur minna en i júlí-
gosinu, líklega nokkur hundruð
teningsmetrar á sekúndu, að mati
Kristjáns Sæmundssonar jarðfræðings
hjá Orkustofnun sem var með í vélinni.
Eins og í fyrri gosum er um að ræða
þunnfljótandi basalthraun og var gizk-
að á að rennslið væri 20—30 metrar á
mínútu.
Kristjáni Sæmundssyni reiknaðist til
að gossprungan væri um tveggja km
löng. Mest gaus norðanhallt í Éthólum
en þaðan lá gossprungan til NNA,
hálfa leið til Snaga sem gaus austan við
í október. Gossprungan liggur í
gegnum Éthólaborgir, gamla gígaröð
rétt norður af Éthólum, og sagðist
Kristján aldrei fyrr hafa séð gamla giga
springa þannig fyrir nýjum. Hraun
rann frá þessum hluta sprungunnar til
norðurs, vestan við Snaga, og um kl.
16:45 í gær, þegar DB-menn og jarðvís-
indamenn voru á ferð yfir gosstöðvun-
um, var hraunstraumurinn kominn að
norðurenda Hituhóla.
Sunnan frá Éthólum liggur gos-
sprungan til SSV um það bil einn kíló-
metra og er þar slitin sundur og hliðr-
ast, eins og vísindamennirnir kölluðu
það. Frá þeim kafla hennar rann hraun
fram til austurs og ofan í lægð norðan
undir Sandmúlahæðunum. Greinilegt
var að til endanna var gangurinn í
gosinu áberandi minni.
Við Éthóla var mestur kraftur í
gosinu, þegar DB-menn voru á sveimi
yfir gosstöðvunum, og þeyttist glóandi
hraunið hátt í loft upp — allt að 100
metra, taldi Guðmundur Sigvaldason.
Þegar tók að rökkva glóði á hraunána
sem teygði sig til norðurs og samein-
aðist þar hrauninu sem rann í október
og júlí.
Mikill gosmökkur stóð upp af eld-
stöðvunum, aðallega hvítur reykur, og
upp úr kl. 18 í gærkvöld mældist hann í
13 þúsund feta hæð.
-ÓV.
Gosið er á langri sprungu. en strókarnir standa mishátt upp.
DB-mvndir Sigurður Þorri.
Jarðfræðingarnir Kristján Sæmundsson (t.h.) og Sigurður Þórarinsson sýna blaða-
manni DB á korti hvar gýs i Gjástykki. M.vndin var tekin á Húsavikurfiugvelli i gær.
Hraunelfan rann fram með miklum hraða enda hraunið þunnfljótandi líkt og i fvrri
gosum.