Dagblaðið - 31.01.1981, Síða 13
DAGBLAÐiÐ. LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1981.
13
■ £
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Þýzkir Ijósmyndarar erufljótir að smella af þegar einhvers staðar glittirí
nœrbrœkur stjórnmálamanna
Nýskeð birtum við mynd af þýzkum
ráðherra sem var að smeygja sér úr
sparibuxunum og stóð á nærbrókinni.
Ljósmyndararnir þýzku hafa greinilega
vakandi auga með öllum tækifærum
sem gefast til að mynda þessa gagn-
merku flík. Árvekni þeirra gerir okkur í
dag kleift að sjá svo sem lófastóran
blett af nærbuxum æðsta manns í
þýzka ríkinu, kanslarans Helmut
Schmidt.
Kanslarinn var í heimsókn hjá Hass-
án II. konungi suður í Marokkó. Sjást
þeir heilsast á myndinni. Smokingbux-
ur kanslarans hafa greinilega rifnað.
Rétt eftir að myndin var tekin varð
kanslarinn slyssins var og lét fallast
ofan í hægindastól til að dylja bakhluta
sinn. Gestgjafinri kom honum til
hjálpar með því að láta þjóna sina færa
honum , .Dschellaba”. Það er síður
kyrtill með hettu, sem mjög margir
Marokkóbúar klæðast að gömlum sið.
Kanslarinn frá Bonn tók þessu fegins
hendi enda skýldi kyrtillinn bæði rif-
unni á buxunum og þeirri staðreynd að
þessi þýzki stjórnmálamaður hefur
undanfarið barizt árangurslaust við
nokkuraukakíló.
Ykkurfinnst þetta dýr ef til vitl ekki
sérlega fallegt en það finnst aftur á
móti dýralœknum við dýranarð i Sví-
þjóð. Þetta er 4 mánaða kengúra sem
heitir Dlana. Kvenkyns kcnyúrur bera
afkvæmi sln venjukga I kviðpoka
slnum um átta mánaða skeið, en móðir
Diönu vildi ekki sjá hana þepar Díana
var tveggja mánaða. Dýralæknar
héldu Díönu áHfii sérstöku hitatjaldi.
En eins op allir sjá á hún eftir að
stækka mikið.
þarftu að koma skila-
boðum út í geiminn?
Ef Iesendur þurfa að koma skila-
boðum út af jarðarkringlunni þá er
tækifærið nú komið. Samstarfs-
hópur einn, sem kallar sig Earth/
Space Innovations, hyggst á næsta
árí senda á loft geimfar er kallast
Könnuður fyrsti. Þar eð félagsmenn
trúa þvi að bezta ráðið til að ná sam-
bandi við verur á öðrum hnöttum sé
að skýra úl fyrir þeim hvað jarðarbú-
ar séu að fást við, stendur þeim nú til
boða að senda skiiaboð sín, auk Ijós-
myndaog teikninga, með farinu. Þeir
sem fyrstir verða að grípa gæsina fá
þjónustu.
Allt, sem hægt er að koma á blað
af stærðinni A-4, verður tekið með í
geimfarinu. SkQaboðin verða
mynduð á míkrófílmu og sett um
borð ásamt tæki sem gerir geimver-
um kleift að lesa á filmumar.
David Hart heitir maðurinn sem
stjómar þessu verki. Hann á von á
miklu flóði af skilaboðum sem fólk
vill koma út í geiminn. „Viðsendum
með alls konar aðferðir til að þýða
boðin, svo áð þau ættu örugglega að
komast til skila,” segir hann.
Hart á von á alls konar efni frá
jarðarbúum víða af hnettinum. „Við
eigum áreiðanlega eftir að taka við
boðum allt frá „Sæll þarna uppi,
góði guð” til „Hvers vegna lítið þið
Marsbúarnir ekki við í kvöldmat-
inn,”” segir hann.
Þeir sem hafa áhuga á að koma
boðum með Könnuði fyrsta eða afla
nánarí upplýsinga geta skrífað til
Earth/Space Innovations, Van
Etten, N.Y. 14889 i Bandaríkjun-
um.
Enda bafði kaupandinn glöggt auga fyrir listrænum munum og
vissi hvað hentaði best við aðra húsmuni. T.d. við bronspottinn
undir biómið frá ömmu, styttuna frá starfsfélögunum og mál-
verkið sem keypt var fyrir stuttu.
Já, konan keypti svo sannarlega inn fyrir heimilið.
Ekki bara matvæli.
Hún hafði aidrei veit því fyrir sér fyrr en daginn sem hún sá
EVRÓPUEFNIÐ á vegg við hiiðina á litríku málverki og
fögrum munum, hve þýðingarmikið það er að hafa allt í sam-
ræmi. „Glöggt er gests augað“ segir máltækið.
EVRÓPUEFNIÐ er nýja línan sem hentar flestum heimilum
og býður valmöguleika í útfærslum á rofum, tenglum og Ijósa-
stillum.
EVRÓPUEFNIÐ er auðvelt í meðförum og hannað með það
fyrir augum að vera yndisauki á vegg.
EVRÓPUEFNIÐ fæst hjá rafverktökum og í flestum raf-
tækjaverslunum. /"* "''''"mwmmtl
Næst þegar innkaup eru gerð fyrir
heimilið ættu flestir að hafa á bak við
eyrað: „Það nýtur sín í fallegu umhverfi
EVRÓPUEFNIÐ frá
Johan Rönning hf.“
51 Sundaborg
HP. Sfmi 84000 -104 Reyk|avik
„Það nýtur sín í fallegu umhverfi EVRÓPUEFNIÐ frá Johan Rönning hf.6í