Dagblaðið - 31.01.1981, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1981.
<í
lltvarp
Sjónvarp
23
B
ÓSÝNILEGUR ANDSTÆÐINGUR - sjónvarp sumudag kl. 17,05:
ÞEGAR LÆKMNG FANNST
V»BARNSFARARSÓTT
—nýr framhaldsmyndaf lokkur im sex menn sem lögðu grundvöll að læknisfræði
vorradaga
Á sunnudaginn hefst nýr framhalds- frá sex mönnum sem á síðustu öld Myndirnar eru leiknar en byggja á
myndaflokkur sem í sex þáttum segir lögðu grunn að nútímalæknisfræði. heimildumum sannsögulega atburði.
FRÁ SAMBÍU 0G SIMBABVE—útvarp sunnudag kl. 15,00:
Þar sem f lóðhestar ganga á land
— Ámi Bjömsson segir frá för sinni á slóðir Tarsans og ræöir við Eddu Snorra -
dóttur sem bjó í þrjú ár við Viktoríufossana í Sambíu
„Mig hafði dreymt um að komast
til Afriku frá því að ég las Tarsan-
bækurnar sem barn,” sagði Árni
Björnsson þjóðháttafræðingur,,,og í
sumar rættist draumurinn. Ég fór til
Afrfka er aflalheimkynni flóðhest-
anna og hér eru móðir og barn af
þessari stórbrotnu dýrategund.
Sambíu og heimsótti Eddu Snorra-
dóttur og mann hennar, sem er vatns-
aflsverkfræðingur frá Sri Lanka en
hefur síðastliðin þrjú ár unnið við
virkjun nálægt Viktoríufossunum.
Þau eru nýkomin aftur til íslands
núna og í þættinum ræði ég við Eddu
um dvöl hennar þar suður frá.”
Edda Snorradóttir er Austfirð-
ingur og átti þar fimm börn i sínu
fyrra hjónabandi. Því iauk með
skilnaði nokkuð snemma. Þegar
börnin voru uppkomin kynntist hún
seinni manni sinum, verkfræðingn-
um frá Sri Lanka, og fór með honum
í ævintýrareisur.
í þættinum draga Árni og Edda
upp svolitla mynd af landi, þjóð og
dýralífi þarna suðurfrá.
„Helztu vonbrigðin sem ég, varð
fyrir,” segir Árni, „var hvað
evrópska menningin okkar er alls
staðar ágeng. Ég kom þó í þorp sem
var tiltölulega óspillt af siðmenning-
unni.
Sem barn ætlaði ég, ef ég kæmist
einhvern tíma þarna suður eftir, að
sveifla mér í trjánum og glettast við
ljón og tígrisdýr — en af því varð nú
ekki, enda eru þessi dýr ekki lengur á
aimannafæri, heldur í heljarstórum
þjóðgörðum. Það er þó krökkt af
apaköttum og bavíönum í trjánum
alls staðar — og í Sambesi-fljótinu er
mikið af flóðhestum sem öðru hvoru
ganga á land. Við þjóðvegina eru
víða skilti sem á er letrað „Varúð-
flóðhestar”, svipað eins og vegfar-
endur í Norður-Evrópu eru varaðir
við dádýrum,” sagði Árni aðlokum.
-IHH.
Í fyrstu myndinni segir frá Ignaz
Philipp Semmelweis, ungverskum
fæðingarlækni sem fæddist árið 1818
og dó árið 1865. Hann starfaði í Vínar-
borg og gerði uppgötvun sem varð til
að stemma stigu við barnsfararsótt,
sem áður fyrr batt enda á líf margra
kvenna. Semmelweis tók eftir því að
hjúkrunarmenn þvoðu sér sjaldan um
hendurnar þegar þeir voru að hlynna
að sængurkonum og komu stundum
jafnvel beint frá því að kryfja lík að
beði þeirra. Hann gerði sér grein fyrir
sýkingarhættunni sem stafaði af
þessum sóðaskap og barðist fyrir því að
þeir sótthreinsuðu hendur sinar og
verkfæri áður en þeir færu að hjálpa
mæðrunum sem voru að fæða.
Aðferðir hans og kröfur um aukið
hreinlæti urðu til þess að stórfækka
dauðsföllum á fæðingardeildum.
En eins og svo margir brautryðj-
endur átti hann við mikla andspyrnu að
striða. Árið 1854 flæmdist hann frá
Vínarborg og smám saman svipti mót-
lætið hann andlegri heilsu. Hann gaf út
lækningabók um barnsfararsótt árið
1861 en það var ekki fyrr en um 1890,
löngu eftir dauða hans, sem uppgötv-
anir hans fengu fulla viðurkenningu.
í þættinum sjást sumar af þeim
frumstæðu lækningaaðferðum sem
notaðar voru langt fram eftir 19. öld,
eins og að nota lifandi blóðsugur til að
taka konum blóð og reyra sjúklinga
með krampa niður i rúmin með leður-
ólum. >
-IHH.
Það er ólýsanlegur munur á nútima-
fæðingum, þegar öll hjálpartæki og
ýtrasta hreinlæti er til staðar, og
fæðingum í gamla daga þegar fjöldi
kvenna lézt af barnsfararsótt.
Útvarp
Laugardagur
31. janúar
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Frétlir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.45 Iþróttir. Umsjón: Hermann
Gunnarsson.
14.00 í vikulokin. Umsjónarmenn:
Ásdís Skúladóttir, Áskell Þóris-
son, Björn Jósef Arnviðarson og
Óli H. Þórðarson.
15.40 íslenzkt mál. Gunnlaugur Ing-
ólfsson cand. mag. talar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlistarrabb; — XVI. Atli
Heimir Sveinsson kynnir verk eftir
Mússorgský.
17.20 Þetta erum við að gera. Börn í
Fossvogsskóla gera dagskrá með
aðstoð Valgerðar Jónsdóttur.
18.00 Söngvar í léttum dúr. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 „Norðan við byggð”. Finn-
bogi Hermannsson ræðir við
Jakob Hagalinsson frá Sútarabúð-
um í Grunnavík.
20.10 Hlöðuball. Jónatan Garðars-
son kynnir ameriska kúreka- og
sveitasöngva.
20.40 Á hákarlaveiðum. Þáttur í
umsjáTómasar Einarssonar. M.a.
rætt við Guðjón Magnússon frá
Kjörvogi. Lesarar í þættinum
Baldur Sveinsson og Óskar Hall-
dórsson.
21.25 Fjórir pjltar frá Liverpool:
Bitlaæðið á íslandi. Þorgeir Ást-
valdsson sér um þáttinn.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kvöldsagan: „Sumarferð á
íslandi 1929” eftir Olive Murry
Chapman. Kjartan Ragnars sendi-
ráðsfulltrúi les þýðingu sina (2).
23.00 Danslög. (23.45 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
l.febrúar
8.00 Morgunandakt. Séra Sigurður
Pálsson vígslubiskup flytur ritn-
ingarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugreinar
dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög. Norður-
þýzka lúðrasveitin leikur gamla og
nýja marsa; Heinz Bartels og
Hans Freese stjórna.
9.00 Morguntónleikar. a. Sinfónía í
g-moll op. 6 nr. 6 eftir Johann
Christian Bach. Nýja fílharmoníu-
sveitin leikur; Raymond Leppard
stj. b. Hörpukonsert nr. 4 i És-dúr
eftir Franz Petrini. Annie Challan
leikur með Antiqua Musika
kammersveitinni; Marcel Couraud
stj. c. Trompetkonsert í D-dúr
eftir Leopold Mozart. Theo
Mertens og Konserthljómsveitin í
Amsterdam leika; André Rieu stj.
d. Konsert í Es-dúr fyrir tvö horn
og hljómsveit eftir Joseph Haydn.
Zdenék og Bedrich Tylsar leika
með Kammersveitinni I Prag;
Zdenek Kosler stj.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður: „Á ferð með
hrakfarapokann”. Ómar Ragn-
arsson segir frá verzlunarmanna-
helgi 1972. Umsjón: Friðrik Páll
Jónsson.
11.00 Messa í Dómkirkjunni.
Prestur: Séra Árni Bergur Sigur-
björnsson í Ásprestakalli. Organ-
leikari: Kristján Sigtryggsson.
12.10 Dagskráin. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 Alfred Wegener, aldarminn-
ing. Dr. Sigurður Þórarinsson
flyturhádegiserindi.
14.00 Tónskáldakynning. Guð-
mundur Emilsson ræðir við Gunn-
ar Reyni Sveinsson og kynnir verk
hans; — þriðji þáttur.
15.00 Frá Sambiu og Simbabve.
Árni Björnsson segir frá og ræðir
við Eddu Snorradóttur, sem bjó
lengi á þessum slóðum.
16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Úm suður-amerískar bók-
menntir; — fimmti þáttur. Guð-
bergur Bergsson les söguna
„Danskurinn” eftir Jose Donoso
og flytur formálsorð.
17.00 Þjóðsaga dagsins. Dagskrá frá
1960 i umsjá Stefáns Jónssonar og
Jóns Sigurbjörnssonar. Spjallað
um álfa og sagðar drauga- og
furðusögur. Rætt við Sigurjón
Björnsson, Halldór Pétursson,
Halldór Ármannsson, Eyjólf
Hermannsson og séra Ingvar
Sigurðsson.
18.00 Suisse Romande-hljómsveitin
leikur tónverk eftir Chabrier;
Ernest Ansermet stj. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Veiztu svarið? Jónas Jónasson
stjórnar spurningaþætti, sem fran.1
fer samtímis í Reykjavtk og á
Akureyri. í ellefta þætti keppa
Sigurpáll Vilhjálmsson á Akureyri
og Baldur Símonarson i Reykja-
vík. Dómari: Haraldur' Ólafsson
dósent.
19.50 Harmonikuþátlur. Bjarni
Marteinsson kynnir.
20.20 Innan stokks og utan. Endur-
tekinn þáttur sem Árni Bergur
Eiriksson stjórnaði 30. f.m.
20.50 „Flower Shower”, hljóm-
sveitarverk eftir Atla Heimi
Sveinsson. Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands leikur; Páll P. Pálsson stj.
21.15 Aðal mannlegra samskipta.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson flytur
erindi.
21.35 Ilana Vered leikur píanólög
eftir Frédéric Chopin.
21.50 Aö tafli. Guðmundur Am-
laugsson flytur skákþátt.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.30 Kvöldsagan: „Sumarferð á
íslandi 1929” eflir Olive Murray
Chapman. Kjartan Ragnars
sendiráðsfulltrúi les þýðingu sína
(3).
23.00 Nýjar plötur og gamlar.
Þórarinn Guðnason kynnir tónlist
ogtónlistarmenn.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
a
Laugardagur
31. janúar
16.00 Manntal 1981. Endursýndur
Ieiðbeiningaþáttur um það,
hvernig á að fylla út manntals-
eyðublöð.
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
18.30 Leyndardómurinn (The Dane-
dyke Mystery). Breskur mynda-
flokkur í sex . þáttum fyrir
ungiinga, byggður á sögu eftir
Stephen Chance. Handrit Willis
Hall. Aðalhlutverk Michael Craig.
Fyrsti þáttur. Sóknarprestur er
fyrrverandi lögregluforingi. Kvöld
nokkurt verður vart grunsamlegra
mannaferða i kirkjunni, og áður
en klerkur veit af er hann tekinn
til við lögreglustörf að nýju. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.55 Enska knattspyman.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Spitalalif. Gamanmynda- ;
flokkur. Þýðandi Ellert Sigur- !
björnsson.
21.00 Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Af tæpum 500 lögum, sem bárust í
keppnina, hafa verið valin þrjátiu
til flutnings í undanúrslitum. Þau
verða flutt á fimm laugardags-
kvðldum i röð, sex lög hverju
sinni. Tvö þessara sex laga komast
í tiu laga úrslitakeppnina, sem
verður t beinni útsendingu laugar-
daginn 7. mars nk. Flytjendur eru
söngvararnir Björgvin Halldórs-
son, Haukur Morthens, Helga
Möller, Jóhann Helgason, Pálmi
Gunnarsson og Ragnhildur Gísla-
dóttir. Tiu manna hljómsveit
leikur undir stjórn Magnúsar Ingi-
marssonar. Kynnir Egill Ólafsson.
Umsjón og stjórn upptöku Rúnar
Gunnarsson.
21.40 Óður steinsins. Ágúst Jónsson
á Akureyri hefur um langt árabil
safnað steinum í islenskri náttúru,
sagað þá niður í þunnar flögur og
Ijósmyndað þá. Kristján frá
Djúpalæk hefur samið ljóð við
þrjátíu af myndum Ágústs. Óskar
Halldórsson les ljóðin. Jónas Ingi-
mundarson leikur á píanó fjórar
prelúdíur eftir Debussy. Stjórn
upptöku Karl Jeppesen.
21.55 Andvaragestir. Tékknesk bíó-
mynd, frá árinu 1977. Leikstjóri
Frantisek Vlacii. Aðalhlutverk
Juraj Kukura, Marta Vancurova
og Gustav Valach. Sagan gerist á
afskekktum sveitabæ í Tékkó-
slóvakíu skömmu eftir lok siðari
heimsstyrjaldar. Þangað koma
striðsglæpamenn á flótta frá Rúss-
landi og hóta bónda öllu illu,
hjálpi hann þeim ekki. Þýðandi
Jón Gunnarsson.
23.35 Dagskrárlok.
Sunnudagur
l.febrúar
16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Val-
geir Ástráðsson, prestur í Selja-
sókn, flytur hugvekjuna.
16.10 Húsið á sléttunni. Viska Saló-
mons. Þýðandi Óskar Ingimars-
son.
17.05 Ósýnilegur andstæðingur.
Leikin heimildamynd i sex þáttum
um jafnmarga menn, sem á síð-
ustu öld lögðu aö verulegu leyti
grunn að nútímalæknisfræði.
Fyrsti þáttur er um lgnacz
Semmelweis og leit hans að orsök-
um barnsfararsóttar. Þýðandi Jón
O. Edwald.
18.00 Stundin okkar. Kynntur
verður eini leiklistarskóli barna,
sem er starfandi hér á landi.
Skólastjóri er Sigríður Eyþórs-
dóttir. Fylgst er með kennslu og
rætt við nemendur, sem sýna leik-
ritið „Prinsessan sem átti 365
kjóla”. í tilefni 15 ára afmælis
kórs öldutúnsskóla er farið á kór-
æfingu, rætt við söngfólk, og við
sjáum brot úr mynd sem var tekin
á tónleikum i haust. Einnig verður
sýnd mynd frá Sædýrasafninu.
Umsjónarmaður Bryndís Schram.
Stjórn upptöku Andrés Indriða-
son.
18.50 Skíðaæfingar. Fjórði þáttur
endursýndur. Þýðandi Eirikur
Haraldsson.
19.20 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýslngar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.45 Erfiðir tlmar. Vilborg Dag-
bjartsdóttir les ljóð úr Ijóðabók
sinni, Kyndilmessu.
20.50 Leiftur úr listasögu. Mynd-
fræðsluþáttur. Staða og stefna i
myndfleti. Umsjónarmaður Björn
Th. Björnsson.
21.10 Landnemarnir. Ellefti og
næstsíðasti þáttur. Efni tíunda
þáttar: Charlotte Seccombe vill
giftast Jim Lloyd, en Clemma
Zendt er komin heim og því er Jim
á báðum áttum. Hans Brumbaugh
fær nýtt verkafólk. Það eru ætt-
ingjar Mexikanans Nachos, sem
lent hafa í miklum mannraunum á
leiðinni til Colorado. Leikarinn
Wendell braskar meö jarðir fyrir
illa fengið fé sitt og græðir á tá og
fingri. Þýðandi Bogi Arnar Finn-
bogason.
22.40 Dagskrárlok.