Dagblaðið - 16.03.1981, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. MARZ1981.
ÞYRLA SOITITVO SLASADA
MENN í LANDM ANNALAUGAR
—höfðu fallið sex metra niður í gil
Hannes sagði að þyrlunni hefði sótzt
ferðin seint vegna élja. Er komið var í
Landmannalaugar voru mennirnir
þegar í stað skoðaðir og gengið þannig
frá þeim að þeir yrðu ferðafærir.
Þyrlan lenti síðan á þyrlupalli Borgar-
spítalans um hádegisbilið.
RÁN, þyrla Landhelgisgæzlunnar,
kom í góðar þarfir á laugardaginn er
hún sótti tvo slasaða menn í Land-
mannalaugar. Þeir höfðu ætlað í stutta
ökuferð á vélsleða á föstudagskvöldið
en urðu fyrir því óhappi að aka fram af
snjóhengju. Hröpuðu þeir eina sex
metra niðurígil.
Slysavarnafélagi íslands barst til-
kynningum það klukkan sex á laugar-
dagsmorguninn að mannanna tveggja
væri saknað. Tilkynningin kom frá
mönnum f björgunarsveitinni Ingólfi.
Um tuttugu manna hópur úr sveitinni
var á æfingu við Veiðivötn. Þeir sögðu
að maður hefði komið til þeirra úr
Landmannalaugum og tilkynnt um
hvarfið. Þeir fóru þegar til leitar og til-
kynntu klukkustundu síðar að menn-
irnir væru fundnir.
Hannes Hafstein hjá Slysavarna-
félaginu sagði í samtali við blaðamann
DB að þegar í stað hefði verið leitað til
Landhelgisgæzlunnar um að sækja
mennina tvo. TF-RÁN fór í loftið um
áttaleytið og var með henni Leifur
Jónsson læknir á slysadeild Borgarspít-
alans.
Mennirnir tveir voru nokkuð skadd-
aðir eftir slysið. Einnig hafði þeim
orðið illa kalt af að liggja i gilinu alla
nóttina. Þeir voru fremur illa búnir til
slíks. Annar maðurinn fékk að fara
Leifur Jónsson læknir, sem fór með þvrlunni, stendur til hægri og hugar aö öörum
slasaöa manninum. DB-mynd S.
Bæjarfógetinn
íÓlafsfiröi:
„Furðulegar
rangfærslur
ogæsiskrif”
Athugasemdir frá bæjarfógetanum í
Ólafsfirði um æsiskrif Jónasar Har-
aldssonar, blaðamanns á Dagblaðinu,
5. marz sl. um lausn lögreglumanns úr
starfi í Ólafsfirði.
Hér er um furðulegar rangfærslur og
æsiskrif að ræða og m.a. óheimila
myndbirtingu, sem er sett upp á meið-
andi og óvirðandi hátt.
Varðandi efni blaðsins um lausn lög-
reglumanns úr starfi skulu nokkrar
staðreyndir settar hér fram.
í Ólafsfirði hafa starfað 2 fastráðnir
lögreglumenn. Starfa þeir sem jafn-
settir lögreglumenn, þótt annar hafi
haft laun sem varðstjóri vegna starfs-
aldurs.
Þessum lögreglumönnum er alger-
lega óheimilt að fá menn í sinn stað, er
þeir eru að sinna starfsskyldum sínum.
Athygli vekur samt að flest það sem
lögreglumanninum er gefið að sök er
beint og óbeint viðurkennt í skrifum
Dagblaðsins, þótt reynt sé eftir mætti
að gera lítið úr ásökununum.
Það er greinilegt að blaðamaðurinn
hefur ekki gert sér nokkra grein fyrir
staðreyndum og eðli málsins, hvað þá
heldur reynt að kynna sér hlutlægt
málsatriði.
Hvar eru nú siðareglur blaðamanns-
ins? Hafa þær e.t.v. týnst i hita augna-
bliksins.
Ólafsfirði, 9. mars 1981,
Barði Þórhallsson
hæjarfógeti
Patreksfjörður:
Hættuleg snjó-
hengja íGeirs-
eyrarmúla
„Það hafa engin slys orðið þama
ennþá, en hengjan getur farið af stað
hvenær sem er,” sagði Pétur Sveinsson
lögreglumaður á Patreksfirði í samtali
við blaðamann DB. Tilkynnt var í út-
varpi í gær að snjóhengja í Geirseyrar-
múla, innst í þorpinu, væri hættuleg og
börn og unglingar því alvarlega varaðir
við að leika sér í henni.
„Það eru þarna tugir tonna af snjó
og veðrið þannig að hengjan getur
brostið af minnsta tilefni,” sagði
Pétur. „Við höfum verið að velta því
fyrir okkur að sprengja hana en ekkert
hefur verið ákveðið um það ennþá.”
Hann sagði ennfremur að fátítt væri að
hengja myndaðist þama í Geirseyrar-
múlanum. Til dæmis hefði það ekki
gerzt síðan hann flutti til Patreks-
fjarðar árið 1962.
- ÁT
Eskifjörður:
Þegar bæjarstjómin
ætlaði að fara að spara
—skömmuðust sín ffyrir starfið, að minnsta kosti sinntu þeir þvíafar illa
Sparnaðaráform geta verið góð og
gild, en þau geta líka snúizt upp í and-
stæðu sína. Þannig var það þegar Eski-
fjarðarbær ætlaði að fara að spara í
sorphirðingu hér í bæjarfélaginu.
Samþykkt var á bæjarstjórnarfundi
fyrr í vetur að fela starfsmönnum
bæjarins þetta verkefni, í stað einka-
aðila sem hafði gert þetta fyrir ákveðna
upphæð.
En umskiptin urðu mikil. Það var
eins og starfsmenn bæjarins skömmuð-
ust sín fyrir starfið, að minnsta kosti
sinntu þeir því afar illa. Sorppokarnir
voru ekki fjarlægðir nema við hentug- um síðustu mánaðamót var heiðurs-
leika bæjarstarfsmannanna og afar illa maður fenginn til að sjá um sorphirð-
var gengið frá nýjum pokum í þeim inguna og hafði gert það fyrir þetta
kössum sem urðu þeirrar náðar aðnjót- ævintýri, og eru Eskfirðingar þvi afar
andi að vera tæmdir. fegnir.
Þetta „skammdegisævintýri” bæjar- - Regina, Eskifirði.
stjórnarinnar endaði svo með þvi að
heim eftir að gert hafði verið að sárum
hans í slysadeild. Hinn var lagður inn á
Borgarspítalann.
Hannes Hafstein sagði að mikil um-
ferð fólks á vélsleðum væri í Land-
mannalaugum um helgar. Hann sagði
að margir væru illa búnir og yrði aldrei
nógsamlegabrýnt fyrir fólki, sem færi í
slíkar vélsleðaferðir, að gera ráð fyrir
því að eitthvað gæti alltaf borið út af.
Þyria Landhelgisgæzlunnar lenti i fyrsta skipti á þyriupalli Borgarspitalans er hún
kom með" mennina tvo úr Landmannalaugum á laugardag. Hér taka björgunar-
menn og lögregla annan manninn úr þyrlunni. DB-mynd Einar Ólason.
Ibúar þessa húss urðu að grafa snjógöng frá útidyrunum.
Mikið verk beið eiganda bilsins.
DB-myndir tviagnus Karei.
Mesti snjór vetrarins á Eyrarbakka:
Fjölskyldur urðu að
grafa sig úr húsum
„Lengi getur vont versnað,” eins og
maðurinn sagði. Já, það var ekki alveg
komið vor, eins og margir voru farnir
að halda. í siðustu viku gerði mikinn
skafrenning á Eyrarbakka og nágrenni
svo allt varð ófært nema fuglinum
fljúgandi. Þrátt fyrir erfiðan og langan
vetur hefur annan eins snjó aldrei
dregið í skafla á þessum vetri. Snjóinn
skóf af mýrunum fyrir ofan þorpið og í
skjóli milli húsa settist hann. Mynduð-
ust þar mannhæðarháir skaflar og
þaðan af hærri og allar götur urðu
ófærar.
Að þessu sinni fennti bíla í kaf og
nokkrar fjölskyldur urðu að grafa sig
út úr húsum sfnum eða fá hjálp ná-
granna. Um síðustu helgi gerði svo
bezta veður og notuðu börnin sér það
óspart og renndu sér á skíðum og
sleðum niður háar brekkur sem í annan
tíma eru sjaldgæfar á Eyrarbakka.
Menn vona svo að þetta sé síðasta
áhlaup vetrarins og bíða eftir betri tíð
með blómum í haga, með bros á vör.
- MKH, Eyrarbakka.