Dagblaðið - 16.03.1981, Page 18
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. MARZ1981.
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Ray Stewart jafnaði úr viti með loka-
spyrnu leiksins.
Vítaspyrna Ray Stewart, bókstaf-
lega á lokasekúndu leiks Liverpool og
West Ham i úrslitum deiidabikars-
ins á Wembley á laugardag, færði
Úrslit deildabikarsins á Wembley:
Oþörf vítaspyma McDermott
rændi Liverpool sigrinum
— Ray Stewart jaf naði fyrir West Ham með síðustu spyrnu leiksins eftir að
Liverpool hafði náð f orystu í f ramlengSngunni
Lundúnaliðinu jafntefli, sem liðið
verðskuldaði varia. Ray Clemence
hafði varið aukaspyrnu Stewart rétt
áður meistaralega i horn, en upp úr
homspyrnunni sem West Ham fékk
handlék Terry McDermott knöttinn,
algerlega að óþörfu, og dómari leiks-
ins, Clive Thomas, dæmdi umsvifa-
laust vítaspyrnu. Hinir 100.000
áhorfendur á Wembley-leikvanginum
— þar á meðal hópur íslendinga sem
fór gagngert til að sjá leikinn — biðu
í ofvæni eftir að Stewart tæki spyrn-
una. Hann lét hins vegar ekkert hafa
áhrif á sig og skoraði af stöku öryggi.
Svo tæpt stóð Lundúnaliðið að leik-
urinn var flautaður af um leið og
knötturinn var kominn i netið.
Liverpool var lengst af mun betri
aðilinn í leiknum, sem aldrei stóð
undir þeim vonum sem bundnar voru
við hann í upphafi. West Ham
byrjaði með nokkrum krafti, en
smám saman tók Liverpool leikinn í
sínar hendur. Á 11. mínútu lá knött-
urinn í netinu hjá West Ham eftir
þrumuskot Sammy Lee. Ray Kenn-
edy gaf þá knöttinn til Lee eftir auka-
spyrnu og negling hans þaut i gegnum
illa byggðan varnarvegg Hammers og
í netið. Leikmenn Liverpool fögnuðu
ákaft, en gleðin varð skammvinn þvi
annar linuvarðanna veifaði ákaft á
rangstöðu. Reyndist Colin Irwin hafa
verið fyrir innan. Á 20. mínútu varði
Phil Parkes á undraverðan hátt frá
Kenny Dalglish, sem var innan mark-
teigs. McDermott gaf þá vel fyrir
markið og Dalglish stóð aigerlega
óvaldaður. Parkes var við nærstöng-
ina, tilbúinn að hirða fyrirgjöfina, en
missti af henni. Dalglish skallaði í
gagnstætt horn en með undraverðum
viðbrögðum tókst Parkes að slá
knöttinn í horn. Sókn Liverpool var
linnulítil og West Ham mátti þakka
fyrir að vera ekki 1—2 mörkum undir
i hléi.
Bezti kafli Lundúnaliðsins kom
hins vegar eftir leikhlé. Þá náði West
Ham nokkrum sinnum að opna vörn
Liverpool en aldrei þó eins og á 62.
mínútu. Trevor Brooking splundraði
þá vörn Liverpool og Goddard komst
einn inn fyrir. Ray Clemence var einn
til varnar, en Goddard mistókst hrap-
allega. Ætlaði að lyfta yfir Clemence
og tókst það reyndar en skot hans fór
hátt yfir og framhjá markinu. Eitt
allra bezta færi leiksins fór þarna for-
görðum.
Lokakaflann sótti Liverpool á ný í
sig veðrið og lék oft á tíðum mjög
vel. Dalglish og McDermott fengu
báðir ágæt færi og síðustu mínút-
urnar sótti Liverpool af geysilegum
krafti og mark West Ham bjargaðist
á ótrúlegan hátt rétt áður en flautað
var til leiksloka.
í framlengingunni hafði Liverpool
greinilega tögl og hagldir. Leikmenn
Lundúnaliðsins virtust vera orðnir
þreyttir en slíkt sást ekki hjá Liver-
pool enda hafði liðið fengið góða
hvíld eftir sigurleikinn gegn CSKA
Sofia í fyrri viku. Á 97. mínútu átti
Jimmy Case þrumufleyg, sem small í
þverslánni og þaðan yfir. Fjórum
minútum síðar tæklaði Geoff Pyke
Ray Kennedy meistaralega, rétt um
það bil er Kennedy var að búa sig
undir að skjóta i góðu færi. West
Ham átti af og til hættulegar skyndi-
sóknir og úr einni slíkri varði
Clemence laglega frá David Cross.
Síðan skoraði Liverpool loksins
eftir allan sóknarþungann. Eftir mik-
inn darraðardans sendi Alan Kenn-
edy, sem hafði átt einn sinn bezta leik
með Liverpool, knöttinn með bylm-
ingsskoti í netmöskvana hjá Phil
Parkes. Línuvörðurinn lyfti flaggi
sínu rétt sem snöggvast en lét það
síðan niður aftur. Leikmenn West
Ham bókstaflega ærðust og töldu
Sammy Lee hafa verið rangstæðan.
Dómarinn, Clive Thomas, leit hins
vegar ekkert á linuvörðinn né ráð-
færði sig við hann og dæmdi markið
gott og gilt, ,,Þetta er hneyksli,”
sagði Denis Law í BBC um atvikið.
„Thomas átti að ráðfæra sig við línu-
vörðinn því að hann veifaði.” Leik-
menn Liverpool fögnuðu innilega, en
síðan jafnaði West Ham, eins og
áður segir. Lokakaflinn var einhver
sá æsilegasti í sögu Wembley og
aðeins bikarúrslitin 1979, af leikjum
síðari ára, hafa boðið upp á viðlíka
lokasprett.
Liðin verða því að mætast á nýjan
leik á Villa Park þann 1. apríl. Liðin
gátu ekki leikið i þessari viku þar sem
þau eru bæði I Evrópukeppnum og
eiga erfiða leiki þar. Svo virðist þó
sem Liverpool sé ekki ætlað að vinna
þennan bikar. Fyrir þremur árum átti
Liverpool megnið af úrslitaleiknum
gegn Forest, en honum lauk án
marka. í aukaleiknum átti Liverpool
ekkert minna en hinum fyrri, en þá
var það vítaspyrna John Robertsson
sem rændi Liverpool sigri.
Liðin á laugardag: Liverpool:
Clemence, Neal, A. Kennedy, Irwin,
R. Kennedy, Hansen, Dalglish, Lee,
Heighway (Case á 64. mín.), McDer-
mott og Souness. West Ham: Parkes,
Stewart, Lampard, Bonds, Martin,
Devonshire, Neighbour, Goddard
(Pearson á 110. mín.), Cross, Brook-
ing, Pike. -SSv.
Ekkert stöðvar nú Ipswich!
—Anglíuliðið óstöðvandi í taktvissum marsi sínum í átt að Englandsmeistaratitlinum
Villa tapaði stigi gegn jaf ntef liskóngunum f rá Old Tafford
Ekkert stendur í vegi fyrir Ipswich
þessa dagana og liðið vinnur nú hvern
stórsigurinn á fætur öðrum i marsi
sinum í átt að enska meistaratitlinum i
fyrsta skipti i 19 ár. Á laugardag hafði
Ipswich sáralitið fyrir þvi að leggja
Tottenham 3—0 að velli á Portman
Road. Strax á 8. minútu skoraði Eric
Gates stórkostlegt mark eftir mikið ein-
staklingsframtak og eftir það átti
Tottenham sér aldrei viðreisnar von.
Ipswich varð þó fyrir áfalli á 22.
minútu er Mick Mills var borinn af velli
og fluttur á sjúkrahús eftir slæmt sam-
stuð, en það kom ekki i veg fyrir stór-
sigur. John Wark skoraði annað mark
Anglíuliðsins á 44. minútu og jafnaði
þar með félagsmet i markaskorun á
einu keppnistimabili. Hefur nú skorað
31 mark i deild, deildabikar, bikar og
UEFA-keppninni. Hreint ótrúlegt
þcgar tekið er tillit til þess að hann er
tengiliður. Aðeins Ray Crawford hefur
skorað jafnmörg mörk i 1. deild fyrir
félagið á einu keppnistimabili og Wark,
sem á þó vafalitið eftir að bæta við sig
áður en yfir lýkur. Aian Brazil skoraði
þriðja mark Ipswich á 65. mínútu og
þrátt fyrir umtalsverða yfirburði tókst
heimaiiðinu ekki að bæta við mörkum.
Á sama tíma náði Manchester
United, sem tapað hafði 6 útileikjum í
röð, óvæntu jafntefli gegn Aston Villa
á Villa Park í Birmingham. Og það þó
Villa kæmist í 2—0 í hálfleik með
mörkum Peter Withe. Hann skoraði
fyrra mark sitt á 16. mínútu eftir fyrir-
gjöf Kenny Swain og hið síðara á 28.
Pétur tognaði
í skógarhlaupi
—og gat ekki leikið með Feyenoord,
þegar liðið vann stórsigur, 6-0,
áWageningenígær
Ég tognaði í lærvöðva sl. mánudag á
æfingu hjá Feyenoord. Var að hlaupa
út i skógi, þegar tognunin átti sér stað.
Ég hef greinilega ekki þolað að leika
gegn Slavia Sofia i Evrópukeppninni og
siðan gegn Roda með þriggja sólar-
hringa millibili. Of mikið álag,” sagði
Pétur Pétursson þegar DB ræddi við
hann i gær.
Pétur hefur ekkert æft síðan á mánu-
dag, eða alla vikuna, og gat ekki leikið
með Feyenoord i gær í Rotterdam,
þegar liðið vann stórsigur á Wagening-
en 6—0. „Þetta var ágætis leikur hjá
Feyenoord-liðinu. Það hafði mikla
yfirburði. Þjóðverjinn Kaczor skoraði
tvívegis, Til, Bauen, Vermuelen og
Budding eitt mark hver,” sagði Pétur
ennfremur. Wageningen er í næst-
neðsta sæti í úrvalsdeildinni.
Hann verður í dag á æfingu hjá
sjúkraþjálfara Feyenoord og gerir sér
góðar vonir um að geta leikið gegn
Slavia á miðvikudag í Evrópukeppn-
inni. Slavia sigraði 3—2 í Sofia.
önnur úrslit í gær í hollenzku úrvals-
deildinni urðu þessi:
AZ '67 — sparta 3—2
Pec Zwolle — Den Haag 4—2
Maastricht — PSV 0—2
Tilburg — RODA 2—2
Utrecth — Deventer 1—1
Ajax Excelslor 7—2
NEC Nijmegen — Groningen 1 — 1
Twente — NAC Breda 2—2
Staða efstu liða:
AZ’67 22 21 1 0 75—30 43
Feyenoord 23 14 6 3 51—25 34
Utrecht 22 13 5 4 45—24 31
PSV 22 11 5 6 42—22 27
Twente 22 10 6 6 42—33 26
- hsím.
mínútu eftir hornspyrnu Tony Morley.
United, sem aðeins hafði skorað 2
mörk í síðustu 8 leikjum, var þó ekki af
baki dottið og þegar síðari hálfleikur-
inn var hálfnaður hafði United jafnað
með tveimur mörkum Joe Jordan —
hið síðara á 66. mínútu. Gary Shaw
kom Villa yfir á nýjan leik á 68. mínútu
en tveimur mín. fyrir leikslok fékk
United vítaspyrnu er Steve Coppell var
brugðið innan vítateigs. Sammy
Mcllroy tók spyrnuna og skoraði
örugglega framhjá Rimmer í marki
Villa. En lítum á úrslitin á laugardag.
1. deild
Arsenal — Birmingham frestað
Aston Villa — Manchester United 3—3
Coventry — Leicester 4—1
Crystal Palace — Sunderland 0— 1
Everton — Leeds 1—2
Ipswich — Tottenham 3—0
Manchester City — WBA 2—1
Nottingham Forest — Brighton 4—1
Stoke — Southampton 1—2
Wolves — Norwich 3—0
2. deild
Blackburn — Sheffield Wed. 3—1
Bolton — Shrewsbury 0—2
Bristol Rovers — Chelsea 1—0
Cardiff — West Ham frestað
Grimsby — Notts County 2—1
Luton — BristolCity 3—1
Newcastle — Preston 2—0
Oldham — Cambridge 2—2
Orient — QPR frestað
Derby — Swansea frestað
Wrexham — Watford frestað
3. deild
Blackpool — Plymouth 1—0
Brentford — Carlisle 1 — 1
Fulham — Gillingham 3—2
Hull — Chesterfield 0—0
Portsmouth — Newport 0—0
Sheffield Utd. — Charlton 3—2
Swindon — Millwall 0—0
Walsall — Oxford 0—3
öðrum leikjum var frestað.
4. deild
Bournemouth — Darlington 3—3
Bradford — Mansfield 0—2
Doncaster — Crewe 1 — 1
Hartlepool — Wimbledon 2—3
Northampton — Scunthorpe 3—3
Peterborough — Wigan 0—0
Rochdale — Aldershot 0—2
Southend — Halifax 5—1
öðrum leikjum frestað.
Það er nú einkum fallbaráttan i 1.
deildinni, sem menn beina augum að
þessar vikurnar. Þau lið sem hvað verst
standa bættu sig lítið um helgina.
Palace lá rétt eina ferðina — nú fyrir
Sunderland á Selhurst Park. Joe
Hinnegan skoraði eina mark leiksins
fyrir leikhlé. Næstu þrjú lið fyrir ofan,
Norwich, Leicester og Brighton, fengu
öll háðulega útreið úr leikjum sínum.
Þó komust bæði Brighton og
Leicester i 1—0 í leikjum sínum. Alan
Young skoraði fyrir Leicester á 18.
mínútu en dýrðin stóð ekki lengi. Tom
English skoraði þrennu og Gary
Thompson fjórða markið áður en yfir
lauk. Brighton byrjaði einnig vel gegn
Forest og Giles Stille skoraði á 20.
mínútu í svo gott sem fyrstu sóknarlotu
baðstrandarliðsins. John Robertson,
vítakóngur, jafnaði fyrir Forest á 30.
mínútu og síðan skoraði Ian Wallace á
39. mínútu eftir slysaleg mistök Mark
Lawrenson. Hann skallaði knöttinn
beint fyrir fætur Wallace, sem þakkaði
kurteislega fyrir sig og skoraði. Gary
Mills og Kenny Burns, með þrumu-
skalla, bættu svo við mörkum í síðari
hálfleiknum og Fdrest leikur skínandi
vel þessa dagana. Norwich átti aldrei
möguleika í Wolverhampton og er
heimaliðið þó ekki það sterkasta á
svæðinu. Mörk Palmer, Richards og
svo sjálfsmark McDowell tryggðu Úlf-
unum þægilegan sigur.
Everton tapaði afar óvænt á heima-
velli fyrir Leeds. Imre Varadi kom
Everton yfir í fyrri hálfleik en óheppnin
elti Leeds á röndum. Tvívegis skullu
skot Derek Parlane 1 stöngum Everton-
marksins áður en honum tókst loks að
jafna — en ekki fyrr en eftir hlé. Það
var svo Carl Harris, sem skoraði sigur-
mark Leeds tveimur mínútum fyrir
'leikslok. Manchester City heldur upp-
teknum hætti og gengi liðsins hefur
verið gott eftir að John Bond tók við
því. Þeir Bobby McDonald, sem
skoraði með „fljúgandi skalla” á 10.
mín., og Dennis Tueart á 39. mín.
komu City i 2—0, Bryan Robson náði
að minnka muninn á lokaminútunum.
Kevin Keegan er að ná sér á strik á ný
eftir erfiðan vetur þar sem meiðsli og
fieira hafa gert honum lífið leitt. Hann
skoraði bæði mörk Southampton i
Stoke og heimaliðinu tókst ekki að
Sigurður
Sverrisson
svara fyrir sig fyrr en á 87. mínútu er
Adrian Heath minnkaði muninn.
Staðan i 1. og 2. deild er nú þannig:
l.deild
Ipswich 32 20 10 2 65—25 50
Aston Villa 33 21 7 5 58—30 49
Nottm. Forest 33 16 9 8 53—34 41
WBA 33 15 11 7 45—32 41
Liverpool 32 13 14 5 54—37 40
Southampton 33 16 8 9 63—48 40
Arsenal 33 12 13 8 47—40 37
Tottenham 34 12 12 10 59—46 36
Manch. Utd. 34 8 17 9 40—33 33
Leeds 33 13 7 13 29—42 33
Manch. City 32 12 8 12 44—44 32
Everton 31 12 7 12 47—4! 31
Middlesbr. 32 13 5 14 45—44 31
Birmingham 32 10 10 12 42—48 30
Stoke 33 8 14 11 39—50 30
Coventry 34 11 8 15 43—56 30
Sunderland 34 11 7 16 42—42 29
Wolves 32 10 8 14 34—43 28
Brighton 34 10 5 19 42—61 25
Leicester 34 10 3 21 26—53 23
Norwich 33 8 6 19 35—64 22
Crystal Pal. 34 5 5 24 39—69 15
2. deiid
West Ham 33 22 7 4 63—26 51
Notts County 33 14 13 6 43—32 41
Grimsby 34 13 13 8 38—28 39
Blackburn 33 13 13 7 37—27 39
Sheffield W. 33 15 8 10 43—33 38
Chelsea 34 14 9 11 46—32 37
Luton 33 14 9 10 48—39 37
Derby 33 12 13 8 48—43 37
Swansea 32 13 10 9 49—37 36
Cambridge 33 15 5 13 41—46 35
QPR 33 12 10 11 43—31 34
Newcastle 33 11 11 11 23—36 33
Orient 32 11 10 11 41—42 32
Watford 32 10 11 11 38—38 31
Bolton 34 11 6 17 50—55 28
Wrexham 32 9 10 13 30—37 28
Cardiff 33 10 8 15 36—48 28
Oldham 34 8 12 14 30—42 28
Preston 33 8 12 13 31—50 28
Shrewsbury 34 7 13 14 33—49 27
Bristol C. v 33 5 13 15 22—41 .23
Bristol R. 34 4 12 18 28—52 20
- SSv.