Dagblaðið - 16.03.1981, Qupperneq 31
31
SATURNUS SOTTUR HEIM - sjónvarp M. 22.05:
Myndir og upplýs-
ingar frá Voyager I
—f erðast um geiminn á 25-földum hraða byssukúlu
Satúrnus, stjarnan með hringina,
er 6. stjarnan í sólkerfinu næst á eftir
Júpíter, ef talið er út frá sólu. Satúrn-
us var þvi næsta stjarnan sem
Voyager-geimförin héldu til eftir að
hafa kannað Júpíter.
Myndin sem sýnd verður í kvöld er
bandarísk en sú sem sýnd var um
Júpíter í síðustu viku var brezk.
Satúmus-myndin er engu að síður
í réttu framhaldi af hinni og allt eins
athyglisverð. Sagt er frá undirbún-
ingi ferðar Voyager-faranna og þeim
tækjabúnaði sem er í þeim og að
sjálfsögðu sýndar myndir og skýrðar
upplýsingar sem borizt hafa til jarðar
frá geimförunum.
í júlí árið 1979 bárust fyrstu
myndir Voyagers I af Júpíter til
jarðar og í nóvember sl. fór hann að
senda myndir af Satúrnusi. Voyager
er á 55.000 km hraða á klst. og það
tekur upplýsingarnar þrjá tima að
berast til jarðar frá honum þó þær
fari á milli á ljóshraða. Hraði Voy-
agers um geiminn er 25-faldur hraði
byssukúlu.
Satúrnus er 734 sinnum stærri en
jörðin og massinn 95 sinnum meiri.
Satúrnus er helmingi lengra frá sólu
en Júpíter en bezt er að nefna engar
tölur því mannleg hugsun ber hvort
eð er ekkert skynbragð á þær. Um-
ferðartiminn umhverfis sólu er 30 ár.
-KMU
EINN AF HVERJUM FJÓRUM - sjónvarp M. 21.15:
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. MARZ1981.
Fóstureyðing í brennidepli
— miklar líkur á því að bamið fæðist með óhugnanlegan
sjúkdóm en foreldrarnir eru grísk-kaþólskrar trúar
Sjöundi hver Kýpurbúi ber í sér
erfðagalla, sem leitt getur til þeSs að
barn hans fæðist með hættulegan blóð-
sjúkdóm. Barn sem fæðist með slíkan
blóðsjúkdóm er dæmt til þess að deyja
ungt. Ef báðir foreldrar hafa þennan
erfðagalla eru likurnar einn á móti
fjórum á því að barn þeirra fái sjúk-
dóminn. Þess má geta að 5% Indverja
hafa þennan sama erfðagalla en ekki
nema 0,1 % Breta.
Ungu hjónin, sem eru nýgift, komast
að því að þau hafa bæði þennan erfða-
galla og það veldur þeim svo sannar-
lega verulegum áhyggjum því Trulla er
ófrisk. Þau fara þvi að velta þvi fyrir
sér hvort rétt sé að barnið fæðist og
hvort þau eigi að láta eyða fóstrinu.
Ættingjar hjónanna blandast inn í þá
umræðu og trúmál því Kýpurbúar eru
grísk-kaþólskir og ungu hjónin þar af
leiðandi einnig. I huga heittrúaðra
grísk-kaþólskra manna jafngildir
fóstureyðing morði og því er ungu
hjónunum mikill vandi á höndum. Eiga
þau að láta eyða fóstrinu eða láta
barnið fæðast og taka þannig áhætt-
una, að það fæðist með óhugnanlegan
sjúkdóm?
Jón O. Edwald er þýðandi. - KMU
Brezkt sjónvarpsleikrit, Einn af hjón, Trullu og Dimitri, sem bæði eru
hverjum fjórum, verður sýnt 1 sjón- ættuð frá eyjunni Kýpur. Þau eru hins
varpinu í kvöld. Það fjallar um ung vegar fædd og uppalin á Englandi.
Ungu hjónunum er miklll vandl ó höndum.
SÚPA—útvarp M. 20.00:
Hemaðaiieyndaraiái
,,Fólk sem ætlar að hlusta á þáttinn
er vinsamlegast beðið um að hlusta frá
byrjun. Óvæntur atburður gerðist
meðan á upptöku stóð,” sagði Hafþór
Guðjónsson, annar umsjónarmanna
Súpu, í samtali við DB en þátturinn er á
dagskrá útvarps í kvöld.
„Eðli málsins vegna er ekki hægt að
upplýsa meira um þáttinn. Hann er
næstum því hernaðarleyndamál.
þ.e.a.s. fram að þeim tíma sem hann
verður sendur út,” sagði Hafþór.
Þeir sem vilja svala forvitninni verða
því að setjast við útvarpstækið kl. 20 i
kvöld. -KMU.
Kreditkorthafar
velkomnir
Laugalæk 2, Reykjavík,
Sími 86511
NÝKOMNIR
Carter
blöndungar
/ flestar geröír
amerískra bifreiöa
bilagler
MÁLUN
BILA
NEMENDALEIKHUSIÐ
Peysufatadagurinn
eftirKjartan Ragnarsson
Sýning miövikudag kl. 20.
Mifiasalu opin i Lindarbœ frá kl. 16—19 alla daga, nema laugar-
daga. Mifiapantanir i sima 21971 á sama tima.
Teg. Kolme
Utur: Hvítt leðiir
Stmrðir36-45 “
Vmrðkr.554jé^
Kúrekastígvél
á dömur
og herra
Póstsendum
SKOVERZLUN
ÞORÐAR PETURSSONAR
Laugavegi 95 — Simi 13570 — Kirkjustræti 8 v/Austurvöii — Sími 14181