Dagblaðið - 19.03.1981, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1981.
DB á neytendamarkaði
l
BLÓMAHORNIÐ
Þarft þú að ferma íár—hvað á að bjóða gestunum?
KALDA BORÐK) NÝRJR
MIKILLA VINSÆLDA
—en sumir kjósa kaffi, kökur og snittur eða heitan mat
Senn líður að fermingum og eru;
þeir sem þurfa að ferma börn sín
sennilega komnir á kaf í undirbúning
því að mörgu er að huga. Fyrsti ferm-
ingardagur að þessu sinni er 29. marz
en aðalfermingardagur, eða sá dagur
sem flestir verða fermdir, er 5. apríl.
í fyrra voru fermd 1700 börn í
Reykjavík en í ár verða þau nokkru
færri þó að endanlegar tölur liggi
ekki fyrir.
Það fyrsta (fyrir utan fermingar
fötin) er að ákveða hvað bjóða eig
gestum upp á í sjálfri fermingarveizl
unni. Margir kjósa að gera allt sjálfi
en aðrir notfæra sér þjónustu veit
ingahúsanna. Þá er lika misjafnt
hvort á fermingarborðinu séu kökur
og þá jafnvel aðkeyptar snittur, kalt
borð eða heitur matur. Við könn-
uðum á nokkrum stöðum verð á
snittum og svo aftur heitum og
köldum mat og fer niðurstaðan hér á
eftir. Við vonum að einhverjir geti
haft gagn af.
DRACAENA DEREMENSIS
— Skrautdreki
Skrautdrekinn á ættir sínar að
rekja til hitabeltissvæða Afríku.
Blöðin eru löng og oddhvöss. Skraut-
drekann á að hafa á björtum stað til
þess að fá fram sterkari litbrigði í
blöðin. Nauðsynlegt er að vernda
plöntuna fyrir sterkri sól. Plantan
þarf mikinn loftraka og er því nauð-
synlcgt að úða hana með vatni á
hverjum degi. Gott er að strjúka
blöðin með rökum svampi öðru
hverju. Nauðsynlegt er að skraut-
drekinn hafi nóg svigrúm. Ef hann er
í of þéttri þyrpingu með öðrum
plöntum er hætta á að neðstu blöðin
visni.
Ef loftraki er of lítill eykst hættan
á að blaðlús og hvítfluga sæki á
plöntuna.
Hafið plönluna á
björtum stað en skýliö
henni fyrlr sterkri sól.
Vökvið hæfilega en
moldin má gjarnan
þorna á milli vökvana.
Ahurðaruppluusn
gefin reglulega.
KALT BORÐ
Veizlumiðstöðin í Álfheimum er
með þrjár tegundir af köldum
borðum. Verðið er 90 krónur — 98
krónur og 110 krónur fyrir manninn.
Ódýrasta borðið er samansett af 5
kjötréttum og þremur fiskréttum.
Þar er hægt að velja á milli lax- eða
blandaðra sjávarrétta. Þá eru síld,
Kalt borð hefur löngum verið vinsælt i fermingarveizlum og svo virðist einnig
ætla að vera í ár, að sögn matreiðslumanna er DB ræddi við.
sósur og salöt. 98 króna borðið hefur
það fram yfir ódýrasta borðið að þar
er einum kjötréttinum fleira auk
blandaðra sjávárrétta í hvítvíns-
hlaupi. Dýrasta borðið hefur allt
það sem hin borðin hafa auk pott-
rétts. Þá geta viðskiptavinir komið
með sínar eigin hugmyndir sem
Veizlumiðstöðin fer eftir.
Gafl-inn Dalshrauni býður eina
gerð af köldu borði og kostar það 95
krónur fyrir manninn. Það saman-
stendur af hamborgarhrygg, svína-
steik, hangikjöti, kjúklingi, roast-
beef, laxi, Fiskrétti, rækjum, þremur
tegundum af sild, brauði, smjöri,
hrásalati, kartöflusalati, tveimur
köldum sósum og einni heitri. Þá
býður Gafl-inn einnig upp á svokall-
að kabarett-borð. Það kostar 91.
krónu fyrir manninn og saman-
stendur af fjórum kjöttegundum,
einum síldarrétti, sósum og salötum.
Veizlustöð Kópavogs er einnig með
kalt borð á 95 krónur fyrir manninn.
Þar er boðið upp á roastbeef, kjúkl-
ing, tvær tegundir af svínakjöti,
hangikjöt, lambasteik, nýjan lax eða
graflax, blandaða fiskrétti, fjórar
tegundir af salötum, heita sósu,
kaldar sósur og soðnar kartöflur.
Veizlustöð Kópavogs er ekki með
heitan mat.
Kokkhúsið Lækjargötu býður upp
á tólf rétta kalt borð á 95 krónur fyrir
manninn. Meðal þess sem boðið er
upp á eru kjúklingar, hamborgar-
hryggur, grisakjöt, hangikjöt, lamba-
steik, lax, roastbeef, heitar sósur,
síldarréttir, kaldar sósur og salöt.
HEITUR MATUR
Veizlumiðstöðin í Álfheimum
býður upp á heitan mat sem er þrí-
réttaður fyrir ca 127 krónur á mann-
inn. Þó fer verðið dálítið eftir hvaða
réttir eru teknir, t.d. eru nautalundir
talsvert dýrari. Ef við'segjum að for-
réttur sé soðinn lax, aðalréttur létt-
steikt nautakjöt (roastbeef) og eftir-
réttur sérrítrifli yrði verðið í
kringum 127 krónur. Veizlumið-
stöðin býður upp á fjölbreytt úrval af
heitum mat.
Gafl-inn er einnig með heitan mat.
Svínalæri með rjómasveppasósu
kostar 86 krónur og er þá súpa inni-
falin. Roastbeef með bernaissósu
kostar 109 krónur, súpa innifalin.
Glóðarsteikt lambalæri með ber-
naisesósu er á 75 krónur, súpa inni-
falin, hamborgarhryggur með rauð-
vínssósu kostar 109 krónur, súpa
innifalin. Fleiri réttir eru einnig fáan-
legir.
Kokkhúsið Lækjargötu býður upp
á 10 tegundir af heitum mat, t.d.
kostar hamborgarhryggur með til-
heyrandi 80 krónur og ofnsteiktur
grísahryggur með tilheyrandi 65
krónur. Er þá aðeins aðalrétturinn
innifalinn. Súpur kosta 15 krónur og
eftirréttir eins og t.d. sérrí-trifli 20
krónur.
Þá bjóða allir þessir staðir upp á
pottrétti af margvíslegum tegundum.
Þar sem pottréttir eru venjulega ekki
pantaðir í fermingarveizlur sleppum
við að geta um verð á þeim.
-ELA
Skrautdrekanum er fjölgað á vorin
með rótarskotum frá rótarhálsinum
en frekar sjaldgæft er að þau mynd-
ist.
-JSB/VG
II
Þolirmikinn hita.
ryrslu fermingar þessa árs veroa sunnudaginn 29. marz en aðalfermingardagurinn er að þessu sinni 5. april.
DB-mynd RagnarTh.
SNITTUR
— misjafnt verð
Smurbrauðstofan Björninn býður
snittur á 6 og 7 krónur.Snitturnar á 7
krónur hafa upp á að bjóða dýrari
áleggstegundir en á hinum ódýrari er
áleggið meira blandað. Boðið er upp
á steik, roastbeef, hangikjöt, skinku,
lax, rækjur og egg, egg og síld og
tungu.
Brauðborg býður snittur á 6 og 8
krónur. Þar, eins og i Birninum, er
dýrara verðið miðað við dýrara
álegg. Áleggstegundir í Brauðborg
eru: roastbeef, hangikjöt, skinka,
steik, rækjur, humar, egg og síld, lax
og hamborgarhryggur.
Snittur í Brauðbæ kosta 5,70. Þar
er einungis eitt verð og áleggstegundir
eru þessar: roastbeef, síld og egg,
rækjur og egg, lax og egg, skinka og
grænmeti og hangikjöt og salat. Þar
fengum við þær upplýsingar að bezt
væri að panta snittur með hálfs
mánaðar fyrirvara.
Veizlumiðstööin í Álfheimum selur
sínar snittur á 5,50 og býður upp á
lax, rækjur, roastbeef, skinku, egg
og sild, hangikjöt og steik.
Gafl-inn Dalshrauni selur sínar
snittur á 6 krónur og býður upp á
skinku, roastbeef, hangikjöt, reyktan
lax, egg og síld og rækjur.
Kokkhúsið Lækjargötu er einnig
með snittur á 6 krónur og þar er
boðið upp á hangikjöt, skinku, roast-
beef, egg og síld og rækjur.
Veizlustöð Kópavogs er með
snitturá 5,70 og býður upp á rækjur,
roastbeef, skinku, egg og síld, hangi-
kjöt og lambasteik.
i