Dagblaðið - 19.03.1981, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1981,
i
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
_ Charles Grodin gekk út í beinni ^"sendingu^^
!t . „ rharles Grodin gekk út í beinm sjónvarpsutsenoiHg us; ^arðstu
„n.Lsp«"»t» H •» G.oöi. s.-na»i v.r sn .«
Donna Summer ásamt Mimi dóttur sinni.
Donna
Summer
gerist trúuð
Öðru hvoru gerist það að heims-
þekktar poppstjörnur snúa frá villu
síns vegar og taka trú. Bob Dylan er
nýlegt dæmi og fyrir nokkru tilkynnti
diskódrottningin Donna Summer að
hún hefði nú fundið guð á nýjan leik.
Það er kannski rangnefni að kenna
Donnu við diskó lengur. Á nýjustu LP
plötunni sinni hefur hún alfarið snúið
við því bakinu og syngur nú rokk af
miklum móð. Þar er einnig að finna
lagið 1 Believe In Jesus, fyrsta lagið
trúarlegs eðlis sem Donna Summer
syngur inn á plötu. í bandariska tíma-
ritinu Rolling Stone fær þetta lag — og
reyndar platan öll — prýðisgóða dóma.
Segir þar meðal annars að platan, sem
nefnist The Wanderer, sé nokkurs
konar för Donnu frá sakleysi til lifs-
reynslu með trúarlagið sem endapunkt.
Þessi barnslega trúarjátning diskó-
drottningarinnar fyrrverandi sé í raun
og veru svo einföld að hún gæti allt eins
verið samin af barni. Þrátt fyrir það
stingur lagið I Believe In Jesus á engan
hátt í stúf við önnur lög plötunnar.
Eigin-
maður
Doris
Day
vill
skilnað
— er tekinn til við
yngri konu
Söngkonan og kvikmynda-
stjarnan Doris Day má muna fífil
sinn fegri. Hin 56 ára gamla leik-
kona finnur að tfminn hleypur frá
henni — og að peningar veita
ekki hamingju. Eiginmaðurinn
Barry Comdon, sem er 11 árum
yngri en hún, hefur óskað eftir
skilnaði og er reyndar þegar flutt-
ur að heiman — tii annarrar
konu. Sú er jafnaldra hans.
Fjórða hjónabandi Doris Day
virðist þvf senn lokið.
Doris og Barry á meðan allt lék i
lyndi.
Hver man ekki
eftir Idi Amin?
— Hann lifir nú rólegu lífi í Saudi-Arabíu
Hvað er orðið af Idi Amin,
manninum sem nefndur var
blóðhundurinn frá Uganda?
Hann lifir nú rólegu lífi f Jeddah í
Saudi-Arabíu undir verndarvæng
Khaleds konungs. Þar býr hann í lát-
lausu einbýlishúsi sem konungurinn á
og hefur til umráða tvo Cadillac-bila
sem sömuleiðis eru eign konungsins.
í viðtali sem Staffan Heimerson
átti við Amin fyrir Aftonbladet
sænska og danska Billed-Bladet
segist Amin lifa fýrir uppeldi barna
sinna. ,,Ég vil að strákarnir verði
kennarar, tæknifræðingar, læknar.
En alls ekki stjórnmálamenn. Stelp-
urnar eiga að verða læknar, verk-
fræðingar, ljósmæður,” segir Amin
sem á hvorki fleiri né færri en 36
syni og 14 dætur. Með honum í
útlegðinni búa 23 af börnum hans.
Hin 27 eru dreifð víðs vegar um
Afríku.
Amin ekur nú um á Cadillac.
Amin hefur verið sakaður um
dauða 600 þúsund manna. Sjálfur
neitar hann því staðfastlega. ,,Ég hef
ekki myrt neinn. Ég hef ekki gefið
fyrirskipanir um morð. Þetta er allt
saman áróður til þess ætlaður að
skapa slæma mynd af mér. Gyðingar
standa á bak við þetta, þeir hata mig
af því að ég er múhameðstrúar-
maður. Þeir hata mig af því að ég
studdi palestinuaraba. Gyðingarnir
ráða yfir blöðunum.
Á mínum ferli var enginn póli-
tískur fangi í Uganda. Nú eru 20
þúsund múhameðstrúarmenn í fang-
elsum. Þegar ég yfirgaf landið hurfu
öll mannréttindi úr Uganda.”
Þegar Amin er minntur á að hann
hafi haft Hitler að fyrirmynd skelli-
hlær hann. „Svo er sagt, já. Tveir
mestu menn mannkynssögunnar,
John Belushi f myndinni Delta-klíkan
Eiginkona Johns Belushi:
Neitaði að skipta
um eftirnafn
Það er áreiðanlega ekki alltaf tekið út með sældinni að vera í
hjónabandi með þekktum grínistum. Að minnsta kosti finnst
Judy Jacklin, tuttugu og níu ára gamalli eiginkonu Blúsbróðurins
Johns Belushi, það ekki.
Judy, sem er rithöfundur, neitaði til dæmis algjörlega að taka
upp eftirnafn manns síns þegar þau gengu í hjónaband. ,,Ef þú
heitir Beíushi væntir fólk þess að þú reytir viðstöðulaust af þér
brandara,” segir hún.
Amin messar yfir allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1975.
Hitler og Amin. Sterkir menn.
Maður eignast ekki 36 syni sé maðúr
ekki sterkur.”
Amin er þakklátur Khaled konungi
fyrir að hafa útvegað sér hús og bíla.
En húsið er ekki stærra en svo að
krakkarnir verða að sofa fimm eða
sex saman í hverju herbergi. Hann
les kóraninn á daginn, stúderar sögu
spámannsins og svo segist hann vera
farinn að læra arabísku. Einnig segist
hann lesa enskar stríðsbækur og
horfa á kúrekamyndir. Og bilarnir
gera honum kleift að aka um og
heimsækja heilögu borgirnar Mekka
og Medína.
En hann hefur ekki gefið upp alla
von um að komast aftur til valda.
„Með hjálp fólksins skal ég frelsa
land mitt. Þjóðin styður mig. Það er
ekki langt í það að ég blási til
orrustu.”