Dagblaðið - 19.03.1981, Side 13

Dagblaðið - 19.03.1981, Side 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1981. á jafnrétti kynjanna í framkvæmd mála.” Nú hafa þessi lög verið í gildi um 5 ára skeið og þrátt fyrir fögur áform og góðan tilgang laganna verður ekki séð að þau hafi markað spor í þá átt að breyta ríkjandi viðhorfum og flýta fyrir því að fullt jafnrétti kynjanna náist. Er því ekki hvað sízt um að kenna að sum ákvæði laganna eru óljós og reynslan hefur sýnt að erfitt hefur reynst að túlka þau afdráttalaust í framkvæmd og tilgangur laganna því ekki náðst fram sem skyldi. Auk þess hefur það sýnt sig að Jafnréttisráð, eins og nú er að starf- seminni búið, hefur ekki það bol- magn sem til þarf til að sjá um að lögunum sé framfylgt. í skýrslu Jafnréttisráðs fyrir tima- bilið júlí 1976-desember 1979 kemur fram, þegar gerð er grein fyrir þeim málum sem Jafnréttisráð hefur fjallað um á því tímabili, að mest hefur borið á rnálum sem snerta launamisrétti. Ljóst er að mjög mikið vantar á að gerðar séu kannanir á vinnu- markaðnum á raunverulegum launa- kjörum sem varpi ljósi á hve mikil brögð séu að launamisrétti. — Slíkar kannanir eru nauðsynlegur þáttur í að tryggja launajafnrétti — því eins og vitað er eru launataxtarnir sjálfir, sem samið er um í almennum kjara- samningum, engan veginn gildur mælikvarði á raunveruleg launakjör í landinu. Jafnréttisráð hefur enn sem komið er ekki haft fjárhagslegt bol- magn eða starfsfólk til að standa fyrir þeim könnunum. Lögin þarf að gera markvissari Undirrituð hefur lagt fram á Alþingi tillögur um breytingu á jafn- réttislögunum. — Þær tillögur miða að því að gera lögin markvissari þannig að auðveldara verði um vik um framkvæmd laganna, þannig að tilgangur jafnréttislaganna náist fram. Ljóst er að erfitt getur verið að setja í lög ákvæði sem tryggi af- dráttarlaust fullt jafnrétti kynjanna á þann veg að ekki sé hægt undan þvl að víkja. Skiptar skoðanir eru líka um það að hve miklu leyti það er æskilegt. Sumir telja þó að miðað við fyrri reynslu sé ekki hægt að tryggja að tilgangi jafnréttislaganna verði náð nema að konum séu sköpuð ákveðin tímabundin forréttindi með lögum. — í þeim hópi eru margir sem ekki hafa viljað heyra á slíkt minnst áður — og lýsir það vel að þolinmæði margra er þrotin, sem eðlilegt er. Verður þó fyrst og síðast að undir- strika að konur vilja ekkert annað en jafnrétti í þessum málum — og verður að telja það algert neyðarúr- ræði að fara þá leið sem nú hefur heyrst að geti verið nauðsynleg en reynslan sýnir að það getur verið rétt- lætanlegt. — Kannski er það líka svo að sumir skilji ekki fyrr en skellur í tönnum — það gæti þó a.m.k. vakið menn til umhugsunar um alvöru þessa máls. Tvær veigamestu tillögurnar sem felast í frv. því sem nú Iiggur fyrir Al- þingi eru: í fyrsta lagi að á fjárlögum skuli veita Jafnréttisráði framlag sem geri því kleift að standa fyrir skipu- lögðum könnunum á raunveru- „Þegar litið er til þess að reynslan hefur sýnt að oft er erfitt fyrir konur — þrátt fyrir hæfni og menntun — að komast í áhrifastöður getur það varla talizt óeðlilegt, þegar konur hafa sömu hæfileika til að bera og karlar, að þeim séu að því jöfnu veitt tímabundin forréttindi. . . ” Varnir íslands Því miður vantar mikið á að al- menningi hér á landi hafi verið kynntar þær aðstæður sem sköp- uðust í heimsmálum að lokinni heimsstyrjöldinni síðari og ástæð- urnar fyrir því að við íslendingar getum engan veginn skorazt undan þeirri ábyrgð að taka fullan þátt í þeirri samstöðu sem skipting stór- veldanna byggist á. Enn munu einhverjir segja að það ætti ekki að vera sámboðið okkur íslendingum að stuðla að skiptingu heimsyfirráða tveggja stórvelda með því að taka afstöðu með öðrum hvorum aðilanum. En hvernig sem á málin er litið og hvernig sem um þau er deilt hér heima fyrir breytir það ekki þeirri staðreynd að við erum einskis megnugir í þeim efnum, til né frá. Og það sem meira er: við erum óumdeilanlega á áhrifasvæði ánnars stórveldisins, þ.e. Bandaríkjanna, og ættum fyrst og síðast að hrósa happi yfir því að svo er. Hvað er svo rangt við það að taka fullan þátt í samstöðu um það sem sannanlega er undirstaða að tilveru okkar sem sjálfstæðrar þjóðar innan þessa heimshluta? Það er grátbrosleg kaldhæðni að íslendinga sjálfa greinir eina á um það innbyrðis að land þeirra skuli vera þátttakandi í þeirri varnarkeðju sem mynduð hefur verið á áhrifa- svæði Bandaríkjanna. Jafnvel Sovét- menn líta á það sem sjálfsagðan hlut að löndin innan áhrifasvæðanna hafi samstöðu sín á milli. Segja má að eina hættan á styrjöld sé sú að einstök ríki reyni að rjúfa þessa samstöðu. Sérhver þjóð setur metnað sinn í að halda uppi vörnum í landi sinu, að svo miklu leyti sem hún telur sér fært. íslendingar eru ekki í þeim hópi, kannski vegna þess að þeir hafa fengið allt upp í hendurnar fyrir- hafnarlaust, allt frá því þeim barst vörn frá Bretum vornótt eina í maí árið 1940. Margir af þjóðhollustu mönnum þjóðarinnar hafa haldið því fram að við ættum sjálfir fyrst og fremst að hafa frumkvæði að vörnum landsins. Þetta mun Jón Sigurðsson forseti fyrstur hafa orðað að marki og um það að sett fram gagnmerkar tillögur. — Enginn flíkar þeim þegar varnar- mál eru til umræðu. Skyldu þjóð- hollir íslendingar skammast sín fyrir tillögur Jóns Sigurðssonar? Á meðan við íslendingar þykjumst ekki vera í stakk búnir til þess að leggja neitt af mörkum til varnar landi og þjóð sjálfir getum við ekki skorazt undan þeirri ábyrgð sem fólgin er í samstöðu um varnir þess heimshluta sem við byggjum. — Þeir sem svo bölvanlega líður á áhrifa- svæði þess stórveldis sem við erum óumdeilanlega á ættu að reyna búsetu á áhrifasvæði hins stórveldis- ins! Bréf frá Brésnóf Þrátt fyrir skiljanlega samstöðu stórveldanna, að vissu marki, um það að halda áhrifasvæðum sínum lítt óbreyttum hafa verið í gangi vissar „þreifingar” til könnunar á því hvort sá áróður sem uppi hefur verið haldið af beggja hálfu til styrktar skiptingu stórveldanna hefur breytt svo við- horfum einstakra þjóða að ástæða sé til endurskoðunar þessarar skipt- ingar. Þessar „þreifingar” hafa farið fram með ýmsum hætti. Auk þess sem víðtækt njósnanet beggja aðila flytur ráðamönnum nokkuð áreiðan- legar upplýsingar um hvers konar hræringar innan beggja áhrifasvæða hafa æðstu stjórnendur sjálfir tekið til hendinni með vissu millibili með „persónulegum könnunum” af ýmsu tagi. Þessu mætti líkja við það þegar mældur er upp rafgeymir sem talinn er vafasamur og tekur ekki lengur hleðslu. Bréf Brésnéfs til ráðamanna í okkar heimshluta, þ.á m. til íslenzka forsætisráðherrans, er einmitt einn liður í þessum „þreifingum”. Verið er að kanna hve mikið sé hægt að þrýsta á gagnaðilann, í þessu tilfelli Bandaríkjamenn, um endurskoðun á skiptingu landsvæða milli heims- veldanna. Lærdóma má draga af Dalvikurmálinu. Iegum launakjörum í landinu. Og í öðru lagi: Að þegar um er að ræða starf sem frekar hafa valist til karlar en konur skal konum að öðru jöfnu veitt starfið. Gildi þetta jafnt um embættisveitingar hjá hinu opinbera og á hinum almenna vinnumarkaði. Er lagt til að þetta ákvæði verði endurskoðað eftir 5 ár og þá tekið til skoðunar miðað við fyrri reynslu hvort tímabært sé að afnema ákvæðið. En af hverju slíkt ákvæði? í fyrsta lagi: Jafnréttislögin hafa ekki náð þeim tilgangi sem ætlað var. I öðru lagi: Staðreynd er að kynbundin starfskipting er ríkjandi í mörgum atvinnugreinum. — Ástæða þess er m.a. að konur hafa minni menntun — og því ekki skilyrði til að hasla sér völl í mörgum atvinnugrein- um, sem krefjast sérþekkingar og menntunar. Undanfarin ár hefur þetta verið að breytast með aukinni menntun kvenna — og þær hafa í auknum mæli sótt inn á fleiri náms- brautir en áður. í kjölfar þess hljóta konur því að sækja inn í störf þar sem karlmenn hafa verið svo til einráðir áður. Varla verður því á móti mælt að með tilliti til jafnréttissjónarmiða er slík þróun æskileg. Þegar litið er til þess að reynslan hefur sýnt að oft er erfitt fyrir konur — þrátt fyrir hæfni og menntun — að komast i áhrifastöður, getur það varla talist óeðlilegt, þegar konur hafa söm'u hæfileika til að bera og karlar, að þeim séu að því jöfnu veitt ákveðin tímabundin forréttindi meðan konur eru i miklum minni- hluta innan ákveðinna starfsgreina. Má reyndar deila um hvort slíkt eigi að kallast forréttindi, miklu nær væri að kalla það jafnrétti. Athaf nir í stað orða Sjálfsagt verða margir til að deila um þetta ákvæði og skiptar skoðanir um réttmæti þess. — En ég spyr — hvað er til ráða þegar lagasetningar sem settar hafa verið í því skyni að tryggja jafnrétti allar götur frá 1911 duga ekki til? Eru nokkur ráð eftir nema að flytja málið inn á Alþingi og fá þar fram hver sé vilji Alþingis og hvort samstaða er fyrir því hjá þeim sem um jafnréttismál fjalla og almennt í þjóðfélaginu að reyna nýjar leiðir til úrbóta. Með því að færa málið inn á Alþingi má ætla að úr því fáist skorið hvaða leiðir séu færar í þessu efni og má vera að þá komi fram aðrar tillög- ur sem nái því markmiði sem að er stefnt með þessum frumvarpsflutn- ingi og er það vel. Það er timi til kominn að athafnir komi í stað orða. Þeir sem ef til vill munu gagnrýna þá lausn sem hér er lögð til verða þá jafnframt að sýna fram á raunhæfar tillögur til úrbóta. Að öðrum kosti verður gagnrýni þeirra léttvæg fundin. Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður. Þessum „þreifingum” verður að vera lokið áður en fundur leiðtoga stórveldanna á sér stað. Niðurstöður þessara þreifinga skulu þá liggja fyrir. Að vísu liggur ekki fyrir á þessari stundu hvenær slíkur fundur verður, en víst er um það að hann verður haldinn fyrr en síðar og alla vega á þessu ári. Að honum loknum gæti dregið til tiðinda í heimsmálum. Þau tiðindi tákna engan veginn stað- bundinn styrjaldarekstur eða ógnun við heimsfriðinn, frekar en núver- andi ástand, sem er það ekki heldur. Staðreyndin er sú að stórveldin hafa hvergi stofnað til styrjaldar- átaka sjálf en verið við bæjardyrnar þar sem atburðir hafa gerzt sem taldir eru undanfari breytinga á áhrifum heimsveldanna eða geta leitt til rösk- unar á núverandi fyrirkomulagi. I raun hafa heimsveldin tvö átt fullt í fangi með að halda uppi aga og koma í veg fyrir uppreisnir í þeim löndum_ sem lítt eða ekkert hafa þróazt, þrátt fyrir margháttuð tækifæri sem þeim hafa verið gefin, bæði í formi peningaaðstoðar og með ráðgjafa- þjónustu. Island er eitt þeirra landa sem telja má á mörkum þessa aga- leysis, í öllu falli stjórnleysis. Þetta hefur löngum staðið í vegi fyrir þroska og framförum þótt ekki hafi staðið á okkur að vera þiggjendur aðstoðar í báðum formum. Lítið hefur enn farið fyrir opin- berum fregnum af Brésnéfs-bréfinu til okkar. Það ætti þó að vera „fréttamatur”, jafnvel þótt það sé einungis ljósrit af frumritinu. Fullvíst má telja að svör ráðamanna hins vestræna heimshluta til bréfritarans í Kreml gefi honum vísbendingu um það hvort og þá hvenær hann telur heppilegt að brydda upp á þeim umræðum sem honum virðist mikið í mun að taka upp við gagnaðilann, um drög að endurskoðun á skiptingu áhrifasvæða heimsveldanna. Ronalds þáttur Reagans Hinn nýi forseti Bandaríkjanna hefur ekki, enn a.m.k., sent út dreifi- bréf til þeirra austantjaldsmanna, enda væri slíkt til lítils. Þeir í Kreml taka á móti pósti fyrir hönd umboðs- manna sinna og losa þá við ómak við opnun — og lestur! Hins vegar má telja víst að forseti Bandaríkjanna fylgist mun betur með gangi mála en forverar hans gerðu, að undanskildum Richard Nixon, meðan hann sat að völdum. Nixon var sá aðili sem hafði í fullu tré við Kremlverja að því er varðar stjórn- kænsku og einurð. Ronald Reagan virðist ætla að verða arftaki Nixons að þessu leyti. Hrósa má happi yfir tilkomu Reagans sem leiðandi forystumanns þessa heimshluta. Menn skyldu ekki gleyma þvi að núverandi forseti Bandaríkjanna hefur um langt árabil verið ríkisstjóri eins auðugasta ríkis þar vestra. Þetta er honum mikill styrkur og umfram marga aðra fyrirrennara hans sem ekki höfðu eins langa stjórnmála- reynslu. — Hann er einbeittur og fylginn sér. Það kunna þeir í Kreml vel að meta og taka mark á því sem frá honum kemur. Þær orðsendingar sem hingað til hafa farið á milli forsetans og ráða- manna í hinum vestræna heimshluta, og raunar annars staðar lika, bera þess glöggt vitni að hann mun ekki taka „nei” sem góð og gild svör ef um öryggi hins vestræna heims er að tefla. Að öðru jöfnu munu Bandaríkin undir forystu hins nýja forseta ekki fremur en fyrri daginn „neyða” vörnum eða aðstoð upp á nokkra þjóð — taki hún sjálfviljug þá af- stöðu að óska sérstaldega eftir því að vera utan áhrifasvæða stórveldanna — og lýsi yfir einskisverðu „hlut- leysi”. Allir vita sem er að slíkt „hlut- leysis-ástand” varir ekki lengi. Það munu Sovétríkin sjá um. Þau munu bjóða þeim ríkjum „vernd” sína og „vináttu” sem þessi ríki munu, þegar á reynir, ekki geta hafnað. Bandaríkjunum má á sama standa hvorum megin hryggjar þau ríki lenda sem ekki vilja sjálf leggja eitt- hvað af mörkum til þess að geta áfram tryggt tilveru sina og þegn- anna, t.d. með samstöðu um her- varnir. Sennilegast er að hvorki Banda- ríkjunum né Sovétríkjunum sé fast í hendi nafn þeirra ríkja sem falla undir áhrifasvæði þeirra ef hlutfallið raskast ekki að öðru leyti. Það er þeim hins vegar áreiðanlega fast í hendi að sú skipan mála sem hingað tii hefur tryggt að friður hefur haldizt i 36 ár vari áfram. Stríðsátök milli stórveldanna eru síður en svo þeirra fyrirætlan. Við íslendingar ættum ekki að vanmeta þátt hins nýja forseta Bandaríkjanna í þeirri könnun sem nú á sér stað af hálfu stórveldanna beggja um varnarmál. Það dregur senn til tíðinda í þeim efnum á alþjóðavettvangi. íslendingar hafa öllu að tapa ef þeir hafna þeirri samstöðu um varnir sem þeir geta útlátalaust látið í té. Áætlaðar franikvæmdir á Kefla- vikurfiugvelli og tíðar samgöngur milli Vestur-Evrópu og Ameríku um Island er stór liður i þessari samstöðu. Og samstaða um varnir landsins er meira virði en svo að hún sé dægur- mál eða í bezta falli talin „greiða- semi” við öflugt stórveldi eins og sumir hér á landi halda fram.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.