Dagblaðið - 19.03.1981, Side 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1981.
14
’ ' £ _ . 7 1 'I
IQHHuHH
Liverpool sigraði í Búlgaríu
Fnglandsmeistarar Liverpool gerðu
sér litið fyrir og skutu búlgörsku
hcrmennina hjá CSKA, Sofia, aflur
niður í Evrópubikarnum í knatt-
spyrnu, keppni meistaraliða. Síðari
leikur liðanna var í Sofia í gær. Liver-
pool sigraði 1—0 og því samanlagt 6—
1. Mikill yfirburðasigur og nokkuð
óvænt að munurinn skyldi vera þetta
mikill. CSKA hafði slegið Evrópumeisl-
Aðalfundur
Þróttar
Aðalfundur Knaltspyrnufélagsins
Þróttur verður haldinn i Þróttheimum
fimmtudaginn 26. marz kl. 20.30.
ara Nottingham Forest út í fyrstu
umferð.
David Johnson skoraði sigurmark
Liverpool þegar á elleftu mínútu og
Liverpool er því komið i þriðja sinn í
undanúrslit siðustu fimm árin.
Leikurinn var tvísýnn og
skemmtilegur og 60 þúsund áhorf-
endur vei með á nótunum. Búlgarska
liðið heldur óheppið að tapa leiknum.
Fékk meðal annars vítaspyrnu en enski
landsliðsmarkvörðurinn Ray Clemence
gerði sér lítið fyrir og varði hreint
meistaralega frá Plamen Markov. Þá
fóru búlgörsku lcikmennirnir heldur
illa með þrjú önnur tækifæri. Bob
Paisley, stjóri Liverpool, taldi vita-
spyrnudóminn strangan.
Eins og áður segir var eina mark
leiksins skorað á elleftu mínútu.
Sammy Lee átti þá skot í stöng á mark
CSKA en knötturinn barst til Johnson.
Enska miðherjanum urðu ckki á nein
mistök. 0—I. Rétt á cftir komst Sdoic
Mladenov í gott færi. Komst frír í gegn
og lyfti knettinum yfir Clemence á vita-
teigslínunni. Clemence hljóp út gegn
honum en Búlgarinn lyfti knettinum
líka yfir þerslána. Síðar í leiknum tókst
Mlandenov að koma knettinum tvívegis
framhjá Clemence. Fyrst bjargaði Alan
Hansen á marklinu. I síðara skiptið —
snemma i síðari hálfleik — var Phil
Neal staddur á marklínunrti og skallaði
frá.
David Johnson meiddist i síðari
hálfleiknum og kom Steve Heighway í
Itans stað. Skömmu eftir að írinn var
kominn inn á lék Sammy Lee hann
frían. Heighway komst einn að mark-
inu en spymti knettinum framhjá. Á
67. mín. lék Djevizov í gegn og Colin
Irwin greip þá til þess ráðs að fella
hann — aftan frá. Var bókaður fyrir.
Þegar tiu mín. voru til leiksloka
felldi Phil Neal Rade Zdravkov innan
vítateigs. Vitaspyrna en Clemence var
ekki á því að fá á sig mark. Varði og
fréttamenn BBC sögðu það einhverja
glæsilegustu markvörzlu hans fyrr og
síðar. í heild skemmtilegur leikur en
búlgarska liðið átti þó aldrei möguleika
á því að komast í undanúrslitin, þó það
fengi sín tækifæri í gær. Munurinn frá
fyrri leiknum alltof mikill og í heild var
vörn Liverpool sterk.
-hsím.
David Johnson — skoraði sigurmark Liverpool i Sofia i
gær.
Léttur sigur Feynoord
— og iiðið er komið f undanúrslit
Evrópukeppni bikarhafa
Feyenoord átti ekki í erfiðleikum með að tryggja sér sæti í
undanúrslit Evrópukeppni bikarliða í gær. Sigraði þá
Slavia, Sofia, frá Búlgaríu með 4—0 i Rotterdam. Notten
skoraði á 19. mín. en hin þrjú mörkin voru skoruð í síðari
hálfleiknum. Fyrst Van Deinsen á 47. mín. Þá Vermeulen á
77. mín. og loks skoraði Bouwens á 86. mín. Slavia sigraði
3—2 i fyrri leiknum þannig að Feycnoord vann samanlagt
6—3. Áhorfendur voru 25 þúsund.
West Ham tókst að sigra bikarmeistara Sovétríkjanna,
Dynamo Tblisi, í Tblisi i gær með marki Stuart Pearson
þremur mín. fyrir leikslok. Það nægði þó skammt því
Dynamo sigraði 4—1 i Lundúnum. Þvi 4—2 samanlagt.
Áhorfendur voru 80 þúsund og klöppuðu þeir vel og lengi i
lcikslok fyrír leikmönnum Est Ham.
Ncwport County, frá Wales, sem leikur í 3. deildinni
ensku, var óheppið gegn bikarmeisturum A-Þýzkalands,
Carl Zeiss Jena. Fimm sinnum tókst leikmönnum Jena að
bjarga á marklínu, og þeir skoruðu svo eina mark leiksins.
Kurbjuweit í fyrri hálfleik. Jena komst því i undanúrslit.
Vann samanlagt 3—2 til mikilla vonbrigða fyrir 18 þúsund
áhorfendur i Newport. Newport hefði nægt jafntefli 1—1 til
að komast i undanúrslit fyrst liða úr 3. deild.
í Lissabon sigraði Benfica bikarmeistara Vestur-Þýzka-
lands, Fortuna Dusseldorf, 1—0 og komst því í undanúrslit.
Samanlagt 3—2. Áhorfcndur voru 70 þúsund og eina mark
leiksins skoraði Chalana í síðari hálfleik. Það merkilega er
að aðeins tvö lið frá Vestur-Þýzkalandi eru nú eftir í
Evrópumótunum, Bayern Munchen og Köln.
Forest komið
íþriðjasæti
Nottingham Forcst skauzl upp í þriðja sætið í 1. deildinni
ensku i gærkvöld. Gerði þá jafntefli við Man. Utd. á Old
Trafford í Manchester og hefur nú 42 stig eins og Sout-
hampton en er með betrí markamun. Talsvert var leikiö á
Brctlandi i gær. Úrslit.
l.deild ■
Man. Utd.-Nottm. Forcst 1—1
Stoke-Man. City 2—1
3. deild
Exeter-Rotherham 2—1
4. deild
Pcterbro-Tranmere 4—1
í skozku úrvalsdeildinni tryggði Celtic enn foruslu sína.
Sigraði Partick 4—1 á leikvclli sínum, Parkhead. Á Ibrox
steinlá Rangers hins vcgar. Tapaði 1—4 fyrir Dundee
United.
Siggi Gunn.
skoraði fimm
„Við lékum æfingaleik við 2. deildarlið frá Köln i gær-
kvöldi og sigruðum. Það ánægjulcga við þennan leik var að
Sigurður Gunnarsson var langbczti maður Bayer Leverku-
sen. Skoraði fimm mörk í leiknum og hefur nú áreiðanlega
tryggt sér sæti i liðinu,” sagði Viggó Sigurðsson, þegar DB
ræddi við hann. Bayer Leverkusen leikur á laugardag við
Heppenheim, sem er fallið í 2. deild. Sá leikur verður í
Heppenheim. Siðan leikur Leverkusen við Kiel nk. miðviku-
dag og Milbertshofen, Munchen, sem einnig er fallið í 2.
dcild, annan laugardag. Sá leikur verður í Munchen.
-hsím.
ÐAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1981.
‘ " ' " " ■ ^
1 tLiii
Standard slegið út í UEFA-keppninni
Þjóðverjar meta Asgeir
á tvær milljónir marka
— „Hélt ekki að Ásgeir væri svona rosalega góður/’ sagði Viggó Sigurðsson
,,Ég hef aldrei séð Ásgeir Sigurvins-
son svona góðan — ég hélt ekki að
hann væri svona rosalega góður. Hann
er betri en beztu leikmennirnir, sem ég
hef séð hér í þýzku knattspyrnunni,”
sagði Viggó Sigurðsson, landsliðskapp-
inn í handknattleiknum, en hann og
Sigurður Gunnarsson, félagi hans hjá
Bayer Leverkusen, voru meðal áhorf-
enda, þegar Köln sigraði Standard
Liege 3—2 í UEFA-keppninni i Köln í
gærkvöld. Þýzka liðið komst þar með
áfram i keppninni. Vann samanlagt 3—
2 — 0—0 í Liege í fyrri leiknum.
„Mér fannst Standard-liðið klúðra
þessum leik. Jafntefli var í hálfleik.
Dieter Muller skoraði fyrir Köln en
Graf jafnaði fyrir Standard. Þegar
Staðan íbikar-
keppni SKÍ
Staðan í bikarkeppni SKÍ 1981, alpa-
greinum, um íslandsbikarinn í kvenna-
flokki.
stig.
1. Ásdís Alfreðsd., R 125
2. Ásta Ásmundsd., A 95
3. Nanna Leifsdóttir A 71
4. Hrefna Magnúsd., A 64
5. Halldóra Björnsd., R 58
6. Kristín Simonard., D 30
Staðan í bikarkeppni SKÍ 1981, aipa-
greinum, um íslandsbikarinn í karla-
flokki. stig.
1. Árni Þór Árnason R 106
2. Guðmundur Jóhannsson í 85
3. Elías Bjarnason A 58
4. Einar Valur Kristjánsson í 54
5. Björn Víkingsson A 50
6. Valþór Þorgeirsson A 44
Þetta er að loknum sex mótum.
rúmar 60 mín. voru af leik náði Stand-
ard forustunni með marki Vander-
missen. Þá gerði Standard þau miklu
mistök að leggjast í vörn. Leikmenn
liðsins ætluðu sér að halda fengnum
hlut — hefðu til dæmis komizt áfram
ef Köln hefði aðeins skorað eitt mark
til viðbótar. En þegar 20 mín. voru eftir
var dæmt víti á Standard. Það fannst
okkur mjög ósanngjarn dómur og
vendipunktur í leiknum. Rainer Bon-
hoff skoraði úr vítaspyrnunni. Þegar
skammt var til leiksloka skoraði Litt-
barski með langskoti langt utan af velli
14-15 þjóðirá
EMhérísumar
„Það eru þegar 14 þjóðir búnar að
tilkynna þátttöku sína á Evrópu-
meistaramótið hér í sumar og við eigum
jafnvel von á þeirri 15,” sagði Konráð
Bjarnason, formaður Golfsambandsins
við DB í gær. „Nú er unnið af krafti
við lagfæringar á Grafarholtsvellinum
og búast má við að kostnaður við þær
nemi um 200.000 króna (20 millj.
gamlar) þegar upp verður staðið,”
bætti hann við.
Undanfarin ár hafa á bilinu 12—15
þjóðir tekið þátt í Evrópumeistaramóti
unglinga og þátttakan hér í sumar
virðist því ekki ætla að verða minni.
-SSv.
Alvarleg viðvörun til
landsliðsins í körfu!
—Pressuliðið, án lykilmanna, lagði
landsliðið í Njarðvík, 84-81, í gærkvöld
Pressuliðið i körfuknattleik gerði sér
lítið fyrir í gær og sigraði landsliðið
suður í Njarðvík með 84 stigum gegn 81
eftir að hafa leitt 43—35 í leikhléi. Það
var fyrst og fremst geysileg
baráttugleði hinna ungu leikmanna
pressunnar, sem léku mjög vel með hin-
um eldrí og reyndari, útlcndingunum
þremur og Jóni Jörundssyni.
Landsliðið hitti afleitlega í fyrri
hálfleiknum og pressan hafði þá tögl og
hagldir. Aðeins einu sinni í leiknum
náði landsliðið að jafna, 21—21, en
mesti munur í leiknum varð 12 stig
pressunni i vil. Webster var geysilega
sterkur í vörninni hjá pressunni og
blokkeraði hvað eftir annað skot lands-
liðsmannanna og var ekki laust við að
það færi í taugar þeirra sumra. John
Johnson hélt spilinu geysilega vel gang-
andi og Fleming var eins og oft áður
sterkur mjög. Það var þó öðru fremur
baráttuviljinn sem skóp sigurinn.
Landsliðið lék ekki eins og lið sem
æft hefur saman af krafti sl. þrjár
vikur, fjarri því, og þetta er alvarleg
viðvörun til þess fyrir keppnina i Sviss í
næsta mánuði. Þrír leikmannanna sem
fréttamenn völdu, Guðsteinn Ingimars-
son, Garðar Jóhannsson og Jón V.
Matthíasson, gátu ekki leikið með og er
það landsliðinu frekar tii stuðnings.
Stigahæstir. Pressan: John Johnson
17, Dakarsta Webster 16, Axel
Nikulásson 11, Jón Jörundsson 11,
Andy Fleming 10. Landsliðið: Símon
Ólafsson 18, Pétur Guðmundsson 16,
Jón Sigurðsson 10, Valur Ingimundar-
son 8.
-SSv. / emm.
Ipswich vann
7-2 samanlagt
Ipswich Town, efsta liðið 1 1. deild-
inni ensku, vann auðveldan sigur á St.
Etienne, efsta liðinu í 1. deildinni
frönsku, í UEFA-keppninni í knatt-
spyrnu i Ipswich í gærkvöld. Lokatölur
3—1 og Ipswich vann því samanlagt
7—2. Áhorfendur voru 30.141.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálf-
leik í leiknum í gær en í þeim síðari
skoruðu Terry Butcher, John Wark,
vítaspyrna, og Paul Mariner fyrir
Ipswich. Zimako fyrír franska liðið.
Wark skoraði þarna sitt 32 mark á leik-
tímabilinu.
1 Sochaux í Frakklandi tókst Soch-
aux hins vegar að tryggja sér sæti i
undanúrslitum á kostnað Grasshoppers
Zíirich, Sviss. Franska liðið sigraði 2—
1 en jafntefli var 0—0 í leik liðanna í
Ziirich. Koller skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir svissneska liðið á 7. mín.
Durkalic jafnaði á 24. mín. og Gengini
skoraði sigurmarkið á 85. mín.
Áhorfendur 15 þúsund.
þriðja mark Kölnar. Mikið klaufamark
hjá markverði Standard. Rétt i lokin
var fyrirliða Standard vísað af velli,”
sagði Viggó.
„Það var mikið skrifað um leikinn í
blöð hér í Köln á þriðjudag og mið-
vikudag. Langmest skrifað um Ásgeir
af leikmönnum Standard. Hann lék
ekki í fyrri leik liðanna en blöðin sögðu
að hann væri allt í öllu hjá belgíska
liðinu. Það kom vissulega á daginn.
Ásgeir var mjög góður. Sendingar hans
stórkostlegar. Miklu nákvæmari en
nokkurs annars leikmanns. Mér fannst
þó að hann hefði mátt vinna heldur
meira. Bonhoff fylgdi honum allan
leikinn. Reyndi að trufla Ásgeir sem
mest og greinilegt var að leikmenn
Kölnar-liðsins óttuðust hann mest.
í blöðunum var skýrt frá því, að
samningur Ásgeirs renni út í sumar og
allar líkur á því, að hann fari þá til ein-
hvers liðs i Bundeslígunni. Engin
ákveðin lið þó nefnd — en blöðin
sögðu að hann myndi kosta tvær millj-
ónir marka. Slíkt verð fyrir leikmann
þekkist varla í þýzku knattspyrnunni.
Þá gátu blöðin þess, að Ásgeir hefði
350 þúsund mörk í árslaun hjá Stand-
ard, svo það lið í Þýzkalandi, sem næði
i þennan frábæra leikmann yrði einnig
að greiða honum mikil laun. Þannig
var fjallað fram og aftur um Ásgeir í
Kölnar-blöðunum. Og á vellinum bar
hann af. Hreint frábær leikmaður” ,
sagði Viggó Sigurðsson að lokum.
Áhorfendur voru 56 þúsund.
Lokeren var einnig slegið út í UEFA-
keppninni í gær. Lék á heimavelli við
hollenzka liðið AZ ’67 frá Alkmaar.
Sigraði 1—0. Verheyen skoraði. En
það nægði Lokeren ekki þó það yrði
fyrst liða til að sigra hollenzka liðið á
leiktimabilinu. AZ ’67 sigraði 2—0 í
fyrri leiknum og komst því í undan-
úrslit á 2—1 samanlagt. Áhorfendur 18
þúsund.
-hsim.
Ásgeir Sigurvinsson — frábær i Köln.
Vestanvindar í
Evrópubikarnum
Bayem og Inter í undanúrslitin
Það var vestanvindur í Evrópu-
bikarnum I gærkvöld. Liverpool,
Bayern Munchcn og Inter Milano
tryggðu sér rétt i undanúrslit á kostnað
austantjaldsliða. í kvöld leika svo Real
Madrid og Spartak Moskva í Madrid.
Fyrri leik þeirra liða lauk með jafntefli
0—0.
Bayern átti ekki í miklum erfiðleik-
um með Banik Ostrava, Tékkósló-
vakíu, í gær í Ostrava. Sigraði 4—2.
Skoraði fjórum sinnum á fyrstu 38
mín. leiksins.
Dieter Hoeness skoraði fyrsta
markið á 8. mín. en Nemec tókst að
jafna í 1 — 1 á 12. mín. Það stóð ekki
lengi. Kraus háði forustu fyrir Bayern
aftur á 26. mín. og Röber skoraði
þriðja markið á 33. mín. Durnberger
skoraði svo fjórða mark Bayern á 38.
mín. Greinilegt að leikmönnum þýzka
liðsins fannst þá nóg komið. Licka
skoraði annað mark Banik á 71. mín.
Bayern vann þvi samanlagt 6—2 —
sigraði 2—0 í Munchen.
í Belgrad tókst Inter Milano að sigra
Rauðu stjörnuna 1—0 og komst þvi í
undanúrslitin. 2—1 samanlagt. Sigur-
markið var skorað á 13. mín. af Carlo
Muraro með hörkuskoti rétt utan víta-
teigs. Dragan Simeunovic., mark-
vörður Stjörnurnar, kom við knöttinn
en missti hann milli handa sér í markið.
Júgóslavarnir voru óheppnir — og um
leið klaufar — að skora ekki í leiknum.
Þeir áttu skot í þverslá og misnotuðu
opin færi. Eftir því sem leið á leikinn
kom Milano-liðið meira inn í myndina.
Hafði yfirburði siðustu 15 minúturnar.
Áhorfendur voru 75 þúsund.
ÍAogValur
íbikarnum
í kvöld kl. 20.30 fer fram einn lcikur
í bikarkeppni HSÍ er Akranes og Valur
mætast í íþróttahúsinu á Akranesi í 16-
iiða úrslitum keppninnar. Skagamenn
unnu Gróttu 1 fyrstu umfcrö en Vals-
menn lögðu FH að velli og hljóta að
vera sigurstranglegir í kvöld.
Haukar glutruðu niður
gjörunnum leik í gær!
—leiddu 20-17 er 5 mín. voru eftir en KR jafnaði, 20-20
Haukar beinlinis köstuðu frá sér
sigri gegn KR i aukakeppninni um
fallið í 2. deild í leik liðanna i Hafnar-
firði í gærkvöld. Jafntefli varð, 20—
20, eftir að Haukar höfðu leitt 20—17
er aðeins 5 mínútur voru til leiksloka.
Eins og oft áður í vetur tókst
Haukunum ekki að halda höfði og
máttu reyndar þakka fyrir að tapa ekki
leiknum. Af óskiljanlegum ástæðum
var Konráð Jónsson látinn taka vita-
kast tveimur mín. fyrir leikslok en
skaut yfir. Rétt áður hafði Haukur
Ottesen skorað 18. mark KR örugglega
úr víti. KR tókst samt að jafna metin
30 sek. fyrir leikslok með marki
Alfreðs Gíslasonar og möguleikar
þeirra á að halda 1. deildarsætinu eru
enn góðir.
Möguleikar, ekki aðeins KR, heldur
Fram, jukust einnig við þessi úrslit, en
Haukar geta nagað sig í handarbökin
fyrir að vinna ekki sigur. Strax eftir 5
min. leik eftir hlé höfðu þeir náð
fjögurra marka forskoti, 16—12, en
misstu það niður og KR náði að jafna.
Aftur komust Haukarnir í örugga
forystu, mest fyrir tilstilli Svavars
Geirssonar, en KR-ingum tókst að jafna
með þrauNeigju. Fyrri hálfleikurinn í
gær var ákaflega jafn og aldrei var
munurinn meiri en tvö mörk og liðin
yfir til skiptis.
Handknattleikurinn sem slíkur var
ákaflega bágborinn og mistökin á
köflum hrikaleg. Yfirvegun sást vart og
9 marka fyrri hálfleiksins komu eftir
hraðaupphlaup — venjulega eftir
barnaleg mistök í sókn mótherjans.
Markvarzlan var ekki beysin, nema
hvað Gísli Felix varði vel á köflum.
Það gerði kollegi hans, Gunnar Einars-
son, líka endrum og sinnum en KR-ing-
ar fundu iðulega leið framhjá honum.
Skutu fyrir framan hann, í gólfið og
inn.
Þrátt fyrir öll mistökin, darraðar-
dansinn og lætin, skemmtu tæplega
400 áhorfendur sér prýðilega. Haukar
eiga e.t.v. ekki stærsta aðdáendahóp
landsins, en hann er með þeim dyggari,
svo mikið er víst. Þeir hvöttu sína menn
dyggilega, en allt kom fyrir ekki og KR
fór í bæinn með annað stigið.
Hvort lið um sig fékk i gær þrjú
vítaköst. Haukunum tókst aldrei að
skora en KR-ingum einu sinni. Gunnar
varði víti Alfreðs og Konráðs skaut yfir. |
Pétur varði víti Viðars, Gísli Felix frá
Viðari einnig og Árni Hermannsson,
bezti maður Haukanna, skaut í slá og
yfir úr einu vítinu. Aðrir i liði Hauka,
sem komust vel frá sinu, voru Svavar
Geirsson, sem skoraði þýðingarmikil
mörk og var eins og fjall í vörninni og
Stefán Jónsson. Hann skoraði þrívegis
með skömmu millibili í f.h. en dalaði er
á leikinn leið. Árni Sverrisson kom og
vel út úr leiknum. Hjá KR var Haukur
Geirmundsson beztur en Alfreð og
Haukur Ottesen komu einiiig ágætlega
út.
Mörkin. Haukar: Árni Hermanns-
son 6, Svavar Geirsson 5, Stefán
Jónsson 3, Árni Sverrisson 2, Viðar
Símonarson 2, Júlíus Pálsson I og
Sigurgeir Marteinsson 1. KR: Alfreð
Gíslason 7, Haukur Ottesen 4/1,
Haukur Geirmundsson 3, Konráð
Jónsson 3, Friðrik Þorbjörnsson 2,
Jóhannes Stefánsson 1.
Næsti leikur í fallkeppninni verður á
löstudagskvöld kl. 20 og leika þá
Haukar og Fram. Sigri Haukar í þeim
leik eru þeir sloppnir en sigri Fram eða
fari jafnt er allt í hnút ennþá.
-SSv.