Dagblaðið - 09.04.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1981
3
Bláfjallaafleggjarinn:
Vegurinn nær óökufær
— mætti spara þúsundir með því að hækka veginn á verstu stöðunum
Skíðamaður skrifar: Ég held að borgin ætti að spara
Spurning
dagsins
Hvað borðaðir
þú í hádeginu?
Útvarpshúsið, Skúlagötu 4.
Við
viljum
frjálst
útvarp!
Þeir eru ekki öfundsverðir sem
hafa hug á því að fara á skíði upp i
Bláfjöll þessa dagana.
Bláfjallaafleggjarinn, sem aldrei
hefur verið góður, er nú næstum
óökufær fyrir fólksbíla. Djúpir
skurðir og holur hafa myndazt i
veginum vegna aurbleytu og leysinga.
eitthvað af þeim tugum þúsunda sem
ausið hefur verið í snjómokstur
þarna með því að hækka veginn upp
á verstu stöðunum. Það þyrfti ekki
að hækka veginn upp nema á nokkr-
um stöðum um 40—50 cm en með
þvi myndu sparast þúsundir króna.
Reiðhjóli stolið um
hábjartan dag
Hákon Hákonarson, Engihjalla 19
Kópavogi, hringdi:
Ég gaf 11 ára dóttur minni reiðhjól
i afmæiisgjöf þann 21. marz sl. Þetta
var rautt, þriggja gíra hjól af
Montana gerð.
En nú gerðist það sl. sunnudag
milli kl. 16.00 og 19.00 að hjólið var
fjarlægt þar sem það stóð fyrir
framan aðaldyr blokkarinnar, harð-
læst. Það hlýtur að vera fulllangt
gengið þegar farið er að stela harð-
læstum hjólum fyrir framan dyrnar
hjá manni um hábjartan dag.
Skora ég því á foreldra og forráða-
menn barna í Kópavogi að kanna
það hvort börn þeirra hafi komizt
yfir nýtt reiðhjól nýlega.
Þeir sem ekki komast alla leið upp í Bláfjöll geta brugðið sér á sjóskíði eða
fengið sér sundsprett. DB-mynd Sig. Þorri.
Raddir
lesenda
Ægir skrifar:
Nú er einokunin að gera í bux-
umar. Er þá ekki kominn tími til að
þurrka hana út?
Hvar eru frjálshyggjumenn um út-
varp og sjónvarp? Er þétta ekki rétta
tækifærið til að knýja á um frjáls-
hyggju?
Hvernig væri að DB gerði
skoðanakönnun um frjálst útvarp og
sjónvarp. Það mætti segja mér að 70
til 80% þjóðarinnar væru fylgjandi
frelsinu og ef útkoman verður sú
getur Alþingi ekki gengið fram hjá
slíku.
Við viljum frjálst útvarp, ekki
steindauðan rikisfjölmiðil sem
enginn hlustar á.
Raddir
lesenda
aPEH ósvnam
GÆÐINGUR
DBS TOURING er fyrsta reiðhjólið á markaðinum, sem sameinar
alla helstu kosti kappreiðahjóla og öryggisútbunað sígildra
reiðhjóla.
Svo sem; - Skálahemla að framan og aftan - 10 gíra - breiðari hjól-
barða en á venjulegum kappreiðahjólum - aurbretti úr ryðfríu stáli
- bæði karla og kvenna reiðhjól fyrirliggjandi.
DBS TOURING eru lang vinsælustu reiðhjólin á norðurlöndunum
um þessar mundir.
V
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
J
Nanna Ingvarsdóttir nemi í MA: Ekk-
ert, enda er ég að drepast úr hungri og
ætla að fara að fá mér eitthvað.
Halla Svavarsdóttir, lika nemi í MA:
Ekkert frekar en Nanna en það verður
vonandi ráðin bót á því fljótlega.
Anton Bragason nemi: í hádeginu fékk
ég mér bara ristað brauð. Það dugði
skammt, þess vegna er ég að fá mér
pylsu núna.
Sigurður Sigurðsson trésmiður: Jógúrt
og pönnukökur, það var afar gómsætt.
fer mjög
Halla Jónsdóttir skrifslofumaður:
Soðna ýsu sem
Margrét Guðjónsdóttir húsmóðir: Ég
fékk mér bara ristað brauð, það var nú
ekki annað.