Dagblaðið - 27.04.1981, Page 1
7. ÁRG. - MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981 - 94. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.—ADALSÍMI 27022.
f
Iskyggilegt þegar fór
að flæða yfir stígvélin
—segir Ólafur Torfason, en hann ásamt þremur öórum bsið á örlitluskeri
ámeðanÁgústGuðmundssonsyntiílandeftirhjálp -siábaks/ðu
DB-mynd Sig. Þorri.
Hér sjúsl nokkrir lciturmunnu sem leitað hafa konunnar sem týnd er. Hundruð
manna tóku þútt I leitinni um helgina. Á innfelldu myndinni er Rannveig Jónsdóttir.
Leit að
69ára
konu
enn án
árangurs
Hundruð manna hafa um helgina
leitað að 69 ára gamalli konu, Rann-
veigu Jónsdóttur, sem fór að heiman
frá sér að Stuðlaseli 26 á laugardags-
morguninn. Ýmsir telja sig hafa séð
konuna síðan en þrátt fyrir alla leitina,
sem einnig hefur verið gerð úr þyrlu og
einkaflugvélum, hefur konan ekki
fundizt.
Lögreglan biður alla sem telja sig
hafa séð þessa nær hvíthærðu full-
orðnu konu að gefa sig fram. Einnig er
treyst á að fólk sem á skúra, bústaði
eða önnur skjól á svæðinu frá Reykja-
vík til Hafnarfjarðar að huga að
Rannveigu. Hún er í ljósbrúnni kápu,
rauðsanseraðri, stígvélum og með
græna prjónahúfu. Hún er í meðallagi
há og frekar þrekin. Rannveig er líkam-
lega hraust en þjáist af minnisleysi og
geturekkisagttil sín.
í dag verður enn leitað og stjórnar
Magnús Einarsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn leitinni. Treystir lögreglan á
aðstoð sem flestra viö leitina.
-A.Sl.
..' .......................................................... ..............................
Stjómarf ramvarp um aðhald í verðlags- og peningamálum:
Aukin bindiskylda Seðlabankans heimil,
stóraukið vakf veridagsskrifstofunnar
vaxtalækkun 1. júní — stööugtgengi
5% niðurskurðurríkisframkvæmda
Frumvarpið sem ríkisstjórnin legg-
ur fram á Alþingi i dag felur í sér
rúmlega þriggja milljarða g.króna
niðurskurð á rekstrarútgjöldum ríkis-
sjóðs og framlögum tii framkvæmda
og vissra sjóða.
Stefnt er að þvi áður yfirlýsta
markmiði að verðbólgan fari ekki
yfir 40%. Nokkrar niðurgreiðslur
verða auknar á þeim vörum og þjón-
ustuþáttum sem áhrif hafa á vísitöl-
una. Gosgjaldið verður lækkað. Að-
gerðimar miðast við stjóniun peninga-
mála og verðlagsmála með sjálfsögð-
um áhrifum á vísitöluna. Ekki verður
með neinni vissu séð hvort launa-
hækkun 1. júní verður að ráði meiri
eðaminnien 8%.
Frumvarpið miðar að þvi að
tryggja stöðugt gengi íslenzku krón-
unnar að minnsta kosti þar tii séð
verður nýtt fiskverð 1. júni.
Frumvarpið gerir ráð fyrir vaxta-
lækkun 1. júni, auk þess sem i þvi
mun felast heimild Seðlabankans til
aukinnar bindiskyldu gagnvart viss-
um lánastofnunum, með öðrum
orðum meiri bindiskyldu viðskipta-
bankanna gagnvart Seðlabankanum
en 28% eins og hún hefur verið.
Inn í bankakerfið hafa runnið vax-
andi innlánspeningar. Heimild Seðla-
bankans til aukinnar bindiskyldu, að
fengnu samþykki ríkisstjórnarinnar,
er hugsuð sem liður i stjórn peninga-
mála ef ástæða þykir til að hamla
gegn auknum útlánum bankanna á
þessu fé og þannig almennt vaxandi
peningaflæði.
Verðlagsstjóri og verðlagsskrif-
stofan fá með frumvarpinu nýtt veru-
lega aukið lagalegt vald til virkara að-
halds i verðlagsmálum en nokkru
sinni fyrr. Getur verðlagsskrifstofan
krafizt þess að fyrirvaralaust lögbann
verði lagt við ólöglegum verðhækk-
unum svo dæmi sé nefnt um aukið
sjálfstæði og vald hennar.
Frumvarpið er eindregið mat rikis-
stjórnarinnar á því að verðlags- og
peningamál þurfi að taka föstum
tökum og hafa á þeim markvissa
stjórnun.
Niðurskurður framkvæmda sem
fjármagnaðar eru úr ríkissjóði að
mestu eða öllu leyti verður að líkind-
um um 5%. Hafa ráöherrar þó svig-
rúm til að móta það nánar hvernig
dregið verður úr framkvæmdum inn-
an einstakra meginútgjaldaþátta.
Frumvarp þetta um aöhald í verð-
lags- og peningamálum veröur að
öilum líkindum lagt fram á Alþingi
sem stjórnarfrumvarp í dag.