Dagblaðið - 27.04.1981, Page 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981.
5
Dr. Þórir Kr. Þórðarson prófessor er
dómari i spumingakeppninnl.
DB-mynd Bjarnleifur.
Keppt um
ísraelsför
— Alþjóðleg spurninga-
keppni um Gamla
testamentið
Um árabil hafa jsraelar haldiö al-
þjóölega keppni annaö'hvert ár i ýms-
um ritum Gamla testamentisins og
hefur þátttökuþjóðum fjölgað ár frá
ári. Sendiherra ísraels á íslandi, Hava
Hareli, hefur haft mikinn áhuga á að
koma slíkri keppni á laggirnar hér og
hefur nú verið skipuð undirbúnings-
nefnd og er ætlunin að forkeppni veröi
haldin 30. maí nk. Keppendur þurfa þá
að svara skriflegum spurningum og
geta gert það á heimaslóðum — þar er
átt við keppendur utan Reykjavíkur —
undir forsjá ábyrgðaftnanna, sem
nefndin fengi til starfa. Þeir sem hafa
hug á að taka þátt í keppninni tilkynni
það til sr. Bernharðs Guðmundssonar
hjá Biskupsstofu fyrir 15. maí og geta
þar fengið að vita nánar um tilhögun
keppninnar o.fl.
Það skal tekið fram, að allir sem eru
18 ára og eldri geta verið með. f keppn-
inni er lögð áherzla á ákveðin efni, frið,
félagslegt réttlæti og jafnrétti og ein-
ingu meðal mannanna. Bækurnar sem
spurt verður úr eru Mósebækumar
fimm, Jósúabók, Spámennirnir,
Dómarabókin, Fyrsta og önnur kon-
ungabók, Sálmarnir og Rutarbók.
Sá sem ber sigur af hólmi í keppninni
í hverju landi heldur síðan til ísraels í
byrjun september og standa ísraelar
straum af öllum kostnaði við ferð við-
komandi og uppihald. Einnig verður
keppendum boðið í ferðir um landið
o.fl. Þá verður einnig séð til þess að
tungumálaerfiðleikar komi ekki upp,
því annaðhvort fer formaður dóm-
nefndar í hverju landi meö í förina eða
túlkur verður innan seilingar.
Það skal ítrekað að tilkynninga-
frestur er til 15. maí. Sr. Bemharður
Guðmundsson er formaður nefndar-
innar og með honum eru blaðamenn-
irnir Gunnlaugur A. Jónsson cand
theol og Jóhanna Kristjónsdóttir og
Jónas Jónasson dagskrárfulltrúi. Dr.
Þórir Kr. Þóröarson prófessor verður
dómari spumingakeppninnar.
Gamlir
„Verzlingar”
krunka saman
Árlegt hóf Nemendasambands Verzl-
unarskóla fslands verður haldið i
Súlnasalnum 30. aprll. Sá dagur var um
áratugaskeið hátiðlegur skóladagur
Verzlunarskólans. Fóru skólaslit árum
saman fram þann dag og gamlir nem-
endur hafa haldið tryggð við daginn,
gert sér dagamun, hitt gamla bekkjar-
félaga og minnzt lokaprófsins og
kveðjustundar við skólann.
í hófi Nemendasambandsins hittast
þeir sem fagna hálfs eða heils tugs af-
mæli frá Verzlunarskólaprófi. Oftast
liggur við húsfylli á þessum skemmtun-
um, enda þykja þær léttar og fjörugar.
Ljóst er að mikil aðsókn verður í ár að
hófinu.
Formaður Nemendasambandsins er
^nstinn Hallsson óperusöngvari og
stjórnar Ksnn hófinu.
Tveir Þjóðverjar klúbbstjórar á Kef lavíkurf lugvelli:
N10TA SKATTFRIÐINDA
SEM VARNARLIÐSMENN
— einu þriðju þjóðar mennirnir sem vinna hjá varnarliðinu. — Ráðuneytið hefur ekki haft frumkvæði að
þvíað þeir greiddu til íslenzka ríkisins, segir Helgi Ágústsson
Tveir þýzkir menn hafa starfað í
lengri tíma sem klúbbstjórar á Kefla-
víkurflugvelli, án þess að greiða skatta
eða skyldur af tekjum sínum. Slíkt
hefur vakið athygli manna sem þarna
vinna, þar sem hvorki er um að ræða
Sumarkoman
og tilheyrandi
veður hefur sett
mikinn svip A
manniif að iind-
anförnu. Allt
annar svipur og
fas er á fólki.
Þetta unga fólk
varð i vegi Bjarn-
leifs Ijósmyndara
i Lækjargötunni i
Reykjavik og eltld
leynir sér að
veturinn langi
heyrir nú sögunni
tll.
bandariska varnarliðsmenn né Íslend-
inga.
Helgi Ágústsson deildarstjóri varnar-
máladeildar utanríkisráðuneytisins
sagði að þessir tveir þýzku menn, Bauer
og Hochenstetter að nafni, væru einu
mennirnir af þriðja þjóðerni sem ynnu
hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli.
Þessir menn væru taldir til varnar-
liðsins. Þeir hefðu verið ráðnir til starfa
sem klúbbstjórar af varnarliðinu er-
lendis og nytu þeir sömu réttinda og
varnarliðsmenn.
„Ráðuneytið hefur ekki haft frum-
kvæði að því að þessir menn greiddu
gjöld til islenzka rikisins og mér er ekki
kunnugt um það hvort þeir greiða gjöld
til bandariska ríkisins,” sagði Helgi.
- JH
diet pepsi
MINNA EN EIN
KAUÓRÍA í FLJÖSKU
Sanitas
h H n H imTimrrm!
Apple
þýðir viðskipti
segirframkvœmdastjórinn
.. eins og Sir Freddie Laker
forseti og LRKER
framkvæmdastjóri RIRWRYS
„Ég tel að framkvœmdastjórar þurfi
að hafa aðgang ad nákvæmum upplýsingum
tilþess að geta tekid réttar ákvardanirfljótt í
haröri samkeppni. Mikill hluti þessara upplýsinga er
annaðhvortfjármálalegs- eða tölfræðilegs
eðlis og þar af leiðandi erAPPLE tölvan
kjörin fyrir vinnslu nauðsynlegra
upplýsinga sem hafa áhrifá afköst
fyrirtækis eða
deildar. ”
Ef þú framkvæmdastýrir eða
stjórnar fyrirtæki eða deild þá
getur APPLE tölvan hjálpað þér.
APLLE þýöir... Þú hefur skjótan aðgang að mikil-
vægum upplýsingum. Þú getur leiðrétt þessar sömu
upplýsingar auðveldlega þannig að breytingar séu
skráðar strax og þú getur látið prenta út þær upplýs-
ingar, sem þú vilt, hratt og örugglega, þannig veitir
APPLE tölvan þér forskot í samkeppni.
APPLE þýðir... Leysa vanda en ekki valda! Fram-
kvæmdastjórar geta haft gagn af APPLE-kerfinu sínu
aðeins nokkrum klukkustundum eftir að þeir fá tölvuna í
hendur. Þeir sem annast áætlanagerð komast í feitt með
aðstoð APPLE.
APPLE þýðir... Áreiðanleiki, þjónusta og eins árs .
ábyrgð.
APPLE þýðir... Basic, Pascal, Fortran, CIs Cobol og
APPLE Pilot.
APPLE þýðir ... Þú getur notað VISI CALC forritið í
tengslum við APPLE PLOT forritið sem gerir mögulegt
að prenta allar tölvulegar upplýsingar í línuriti. Auk þess
má tengja DESK/TOP PLAN forritið við hin tvö fyrir
mjög stór áætlunarverkefni. VISI CALC er forrit sem er
geysiöflugt við áætlanagerð.
APPLE þýðir... Fjölbreytileiki — með marga nytsama
tengimöguleika í vísinda- og kennslunotkun.
APPLE þýðir... Deildur vandi er leystur vandi þegar þú
deilir honum með APPLE-umboðinu.
tappkz
tölvudeild,
Skipholti 19.
Sími 29800.
- A.St.