Dagblaðið - 27.04.1981, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981.
UM
— ekki skyndisamráð við stjórnvöld um
alvarlegar ef nahagsráðstafanir
Hörð gagnrýni á verkalýðssamtökin:
Verkalýðssamtökin
haf i frumkvæði
||U^IFERÐAR
—eftir Charlotte Dubreuil og fimmtán ára dóttur hennar
Bflbeltin
hafa bjargað
Móöir mín var af kvennakynslóðinni sem var fórnað en það líf sem ég og dóttir mín
getum lifað er henni að þakka þótt hún fengi ekki notið þess sjálf.
DB-mynd Sig. Þorri.
með þeim. Þær vilja þetta sjálfar og
það er hryllilegt!
Þær vilja lifa lífinu gegnum börnin
sín. En böm eiga að vera upplifun á '
ákveðnu skeiði — ekki uppbót fyrir
það sem maður hefði átt að fram-
kvæmasjálfur.”
— Það getur verið erfitt er það ekki?
(Til dæmis ef foreldrana langar að
hlaupast á fjöll í staðinn fyrir að stunda
vinnu og búa börnunum gott heimili).
„Dóttur minni fannst ég afskaplega
seinþroska, en huggaði mlg með þvi að
ég gæti lagazt — með mlkilli vinnul”
DB-mynd Sig. Þorri.
Charlotte og dóttur hennar, en per-
sónur hennar og atvik eru skáldskapur.
Hún er sögð „sjarmerandi” fremur en
dramatísk. „Eins og kvikmyndavélin
hafi gægzt inn um skráargat hjá venju-
legu fólki,”segir Charlotte, „þar sem
engar miklar sálkreppur eru á ferð.”
Hún hefst á fæðingu dótturinnar, en
lýkur á endurfæðingu móðurinnar. Þá
fer dóttirin burt, uppeldi hennar er
lokið, nýr kapítuli hefst.
,,Það er sárt, eins og þegar ástar-
ævintýri lýkur,” segir Charlotte.
— Ganga þær þá sterkar hvor í sína
átt?
„Nei, þær eru berskjaldaðar og við-
kvæmar. Lífið er aldrei auðvelt og þær
þrá báðar hamingju, en þú veizt að
vonbrigðin eru svo mörg. En kannski
eru þær veikar og sterkar á annan hátt
en áður.
Og þær hafa áhyggjur hvor af ann-
arri. Þegar dóttirin kveður og segist
ætla að fara og lifa sínu eigin lífi, segir
móðirin: Ég vona þú getir það.
,,Ég vona lika að þú getir það,”
svarar dóttirin.
-IHH
Kvikmyndaleikstjórinn Charlotte
r uhreuil er sæt og sjarmerandi eins og
hún hefði gengið ljóslifandi út úr ein-
hverri blaðsíðu tízkublaðsins Elle.
Augun eru blá, hárið koparlitt og and-
litskremið var einnig koparlitt með
fínum gljáa. Blaðamenn fengu kampa-
vín og það var ekki um að villast að
frönsk kvikmyndavika er byrjuð í
bænum. Hún stendur fram á næsta
sunnudag og sjö myndir verða sýndar.
Mynd Charlotte heitir Ma cherie
(elskan mín) og hún skrifaði handritið
með dóttur sinni sem þá var fimmtán
ára. Fjallar hún um mæðgur tvær sem
búa saman í miklu ástríki.
„Myndin var gerð af vanefnum og við
bjuggumst ekki við að hún mundi vekja
sérstaka athygU,” segir Charlotte.
(Hún talar aðeins frönsku, en Torfi
TuUníus túlkaði með prýði.) „En henni
var slegið upp sem stórviðburði í fjöl-
miðlum og á Bandaríkjamarkað fór
hún og var þar vel tekið. Ég held samt
það hafi verið efni hennar að þakka,
fremur en mér eða leikurunum.”
Mjög fáar stelpur segja
mœðrum sínum leyndarmál
sín
Myndir sem fjallar um ást milli
móður og dóttur hafa ekki margar
verið gerðar. Það er heldur ekki oft
sem talað er um það hvað mæður og
dætur eiga oft erfitt með að sýna hvor
annarri hreinskUni. En það vandamál
er ekkert fremur franskt en íslenzkt. Ég
veit um bekk í gagnfræðaskóla í
Reykjavík þar sem tvær af stúlkunum
geta sagt mæðrum sínum frá þvi sem
þær í raun og veru eru að hugsa.
Þannig mun það vera alltof víða.
„Dóttir mín var fimmtán ára þegar
við fórum að vinna saman að handrit-
inu,” segir Charlotte Eubreuil. „Viö
komumst fljótt að því að við vorum
ekki tvær heldur fjórar. Ég eins og ég
var, ég eins og ég hélt ég væri, hún eins
og hún var, og loks hún eins og hún
„Jú, auðvitað,” svarar Charlotte,
„alveg óskaplega erfitt, og stundum
alls ekki hægt. Samt er það það eina
rétta.”
Sektarkenndin er versta böl
mannkynsins
„Og eigi maður að vera foreldrum
sínum allt og eitt, þá getur maður ekki
samtímis lifað samkvæmt sinni eigin
hjartans sannfæringu. Fjöldamargt
fólk eyðir lífi sínu í að vera alltaf að af-
saka sig fyrir foreldrum sínum eða fara
ábak viðþá.
Sektarkenndin er eitt versta böl
mannkynsins en hún er óhjákvæmileg
undir slíkum kringumstæðum.Barnið
hefur aðeins um tvennt að velja, hlýðni
eða uppreisn og það eru ekki æskilegir
valkostir.
Mig langar oft að segja við foreldra:
Gefið börnunum ykkar lausan
tauminn, verið ekki að ráðskast í þeim.
Maöur hefur þá skyldu við börnin
sin áð elska þau og hjálpa þeim að vaxa
upp. En bömin eiga ekki að lifa líft
sínu fyrir foreldrana, og foreldrarnir
eiga heldur ekki að fórna sér fyrir þau.
Lffið er erfitt og vonbrigðin
mörg
Myndin Elskan mín er byggð á til-
finningum og reynslu þeirra mæðgna,
hélt að hún væri. Við lærðum mikið af
þessu, bæði um sjálfar okkur og hvor
um aðra.”
Dóttur minni fannst ág
hrœðilega seinþroska
— Eruð þið dóttir þín líkar í skap-
gerð?
„Nei, langt í frá,” sagði Charlotte
og fer að hlæja. „Og dóttur minni
fannst ég afskaplega seinþroska en hún
hélt ég gæti lagazt — með mikilli
vinnu!”
— Heldurðu að líf þitt og dóttur
þinnar verði svipaðra heldur en lif þitt
og móður þinnar?
„Já, móðir mín var af kynslóðinni
sem var fórnað. Ég held að það líf sem
við dóttir mín getum lifað sé henni að
þakka. En hún fékk ekki að njóta þess
sjálf. Móðir mín dó meðan við vorum
að gera myndina, og kannski breytti
það mér. Þangað til hún dó skynjaði ég
sjáifa mig meira eins og móðirin í
myndinni, en eftir dauða hennar lifði
ég mig meira inn í hlutverk dóttur-
innar. Og ég saknaði þess að geta ekki
átt með móður minni stundir sem við
hefðum samt kannski aldrei getað átt
saman.”
Konum hœttir til að fela sig
bak við börnin
„F.n kannski erum við nú á hverfi-
punkti,” heldur Charlotte áfram.
„Myndin Elskan mín sýnir kannski
framtíðina, þegar trúnaðarsamband
mæðgna verður algengara en nú.
Um það bil sem ég fór að vinna að
henni fann ég hvernig ég notaði dóttur
mína sem afsökun fyrir að gera ekki
vissa hluti. Og konum hættir fjarska
mikið til að fela sig bak við börnin sín,
ganga undir þeim i staöinn fyrir að vera
Frönsk kvikmyndavika:
ELSKAN MÍN, MYND
MÓÐUR OG DÓTTUR
Styrkið og fegríð líkamann
Dömur og herrar!
IMý 4ra vikna námskeið hefjast 4. maí. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar
fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðva-
bólgum.
Vigtun — mæling — sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi —
Innritun og upplýsingar alla virka daga f rá
kl. 13-22 ísíma 83295.
(®/ Júdódeild Ármanns
Armúla 32.
segir Landssamband vörubif reiöa
stjóra
Harðorð ádrepa á heildarstefnu
verkaýðssamtakanna felst í samþykkt
sem gerð var á 14. þingi Landssam-
bands vörubifreiðastjóra um miðjan
apríl.
Bendir þingið á nauðsyn þess að
verkalýðssamtökin taki í sínar hendur
frumkvæði að lausn vandamálanna.
Það sé vænlegra til árangurs en skyndi-
samráð við stjórnvöld hverju sinni
þegar nýjar efnahagsaðgerðir eru á
döfinni.
Verkalýðssamtökunum nægi ekki að
sýna, hvaða hugmyndum frá öðrum
aðilum þau vilja hafna. Þau verði að
sýna hvað þau hafi sjálf til málanna að
leggja og berjast fyrir framgangi þess.
Skorað er á verkalýðssamtökin að
marka grundvallarstefnu í efnahags- og
kjaramálum til næstu ára. Verði við þá
stefnumörkun gerð glögg skil undir-
stöðuatriðum ef nahagssk ip ulagsins,
svo sem gengisskráningu, fjárfestingu,
vaxtakjörum, verðlagsreglum, skött-
um, vísitölubótum og félagslegum
framlögum.
Verði innan ramma slíkrar heildar-
stefnu mótuð launamálastefna, sem
verkalýðssamtökin fylgi af fullum
þunga, enda feU hún i sér sanngjöm
launahlutföll mUli stétta og aukinn
launajöfnuð án undanbragða.
Ný stjóm var kosin og urðu talsverð
mannaskipti í trúnaðarstöðum félags-
ins. Var Herluf Clausen kjörinn for-
maður.
Einar ögmundsson lét af störfum
formanns eftir meira en aldarfjórðungs
forystu í Landssambandinu. Voru
Eir.ari þökkuð frábær störf og sam-
þykkt að heiðra hann með sérstöV’jm
hætti. - BS