Dagblaðið - 27.04.1981, Page 10
10 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981.
(MB Erlent Erlent Erlent Erlent ]]
' - - - -. ..
MIKIL SPENNA Á STJÓRN-
MÁLASVIÐINU í FINNLANDI
—Hröður Mauno Koivisto hefur aukizt m jiig og f innska þjöðin vill nú fá hann fyrir forseta
Mikil spenna hefur verið á stjóm-
málasviðinu í Finnlandi að undan-
fömu og var svo komið á tímabili að
útlit var fyrir að ríkisstjórnin hrökkl-
aðist frá völdum. Erfiðleikamir hjá
ríkisstjórn Mauno Koivisto eiga
rætur sínar aö rekja til árekstra milli
stjórnarflokkanna en þó kannski enn
frekar ágreinings innan flokkanna
sjálfra.
Ekki á þaö minnstan þátt í þessari
spennu að mjög skiptar skoðanir eru
um hver eigi að verða eftirmaður
Uhro Kekkonens sem næsti forseti
landsins. Sú spurning hefur mjög
fléttazt inn i hinar pólitisku deilur f
landinu.
Sagt er að spennan sé mest innan
Kommúnistaflokksins sem lengi
hefur verið klofinn i tvær andstæðar
fylkingar sem eiga i harðri innbyrðis
baráttu. Ástæða þess að flokkurinn
hefur ekki endanlega klofnað f tvo
flokka er einfaldlega talin sú að
bróðurflokkurinn í Sovétríkjunum
leyfi það ekki. En klofningurinn
kemur skýrast fram i því að meiri-
hlutinn hefur átt aðild að ríkisstjóm-
inni en minnihlutinn verið í stjómar-
andstööu.
Sósialdemókrataflokkurinn, sem
er stærsti flokkur landsins, hefur
einnig átt í erfiðleikum vegna innan-
flokksátaka. Hópur flokksmanna
stendur þétt við bakið á flokksleiö-
toganum Kalevi Sorsa en aðrir fylkja
Hveragerði
Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni í Hvera-
gerði. Uppl. ísíma 99—4628 eða 91—27022.
Óiafsvík
Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni á Ólafsvík.
Uppl. ísíma 93—6373eða 91—27022.
Hettissandur
Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni strax á
Hellissandi.
Uppl. ísíma 91—27022.
meajaa
•Hv ' t ' •/ X ■ • \>Q t{.>.>. ; í:> <■: ■ X • .>
□ □□□□.□
•/' ;•-«<*» «••? hyp I »«•' ■ c.u\ ' > Mn,!
□ □□.□,□□
5 j > -<U ---fe •• •>;'>=■'> Md
aaaa□□
B Q| o b b
mm tmm msm nsn
iSb wm IPI WM illfl
18 £1B8 £1
@188 18 fiB
FX-310
BÝÐURUPP Á:
• Algebra og 50 visindalegir
möguleikar.
• Slekkur á sjálfri sér og minn-
ið þurrkast ekki út.
• Tvær rafhlöður sem endast í
1000 tíma orkunotkun.
• Almenn brot og brotabrot.
• Aðeins 7 mm þykkt i veski.
• 1 árs ábyrgð og viðgerðar-
þjónusta.
Verð: 487,-
B-811
BÝÐUR UPP Á:
• Klukkutima, mín., sek.
• Mánaðardag, vikudag.
• Sjálfvirka dagatalsleiðréttingu
um mánaðamót.
• Rafhlöðu sem endist í ca 5 ár.
• Er högghelt og vatnshelt.
• Ljóshnappur til aflestrar i myrkri.
• Ryðfritt stál.
• 1 árs ábyrgð og viðgerðarþjón-
usta.
Verð: 544,50
CASIO-EINKAUMBOÐIÐ
BANKASTRÆTI8, SÍMI27510.
Koivlsto (S) er nú þjóðhetja og iik-
legastur til að verða kosinn næsti
forseti landsins.
sér um forsætisráðherrann, Mauno
Koivisto. Auk þess er innan flokksins
róttæk vinstri hreyfing sem er þó
ekki eins öfiug nú um stundir og oft
áður.
Miðfiokkurinn skipti um leiðtoga
síðastliöið sumar er Paavo Váyrynen
vann sigur yfir Johannesi Virolainen.
Einnig þarna er um innanfiokksátök
að ræða.
Hinn nýi flokksleiðtogi hefur í
nógu að snúast sem utanríkisráöherra
og hefur kannski vanrækt flokkinn
af þeim sökum. Það hefur leitt tii
þess að ýmsir þeirra sem studdu
Váyrynen í fyrra hafa nú á nýjan leik
hallað sér að fyrri leiðtoga flokksins,
Virolainen, sem þykir skynsamur og
hrífandi stjómmálamaður. Ýmsir
gætu af þeim sökum vel hugsað sér
hann sem stjórnmálamann.
Á hinn bóginn hefur stjarna Ahti
Karjalainens lækkað á himni stjórn-
málanna þrátt fyrir að lengi hafi
verið litiö á hann sem nokkurs konar
„krónprins” Kekkonens. Karja-
lainen gegnir nú embætti ríkisbanka-
stjóra og hefur því lítið að segja á
sviði stjórnmálanna.
Viss taugaóstyrks virðist gæta
innan Miðflokksins þrátt fyrir að
síðustu skoðanakannanir sýni fram á
aukiö fylgi flokksins. Fylgisaukning-
in hefur raunar verið skýrð á þann
hátt aö kommúnistar hafi tapað fylgi
vegna atburðanna í Póllandi.
Einkum virðist fylgi Miðflokksins
hafa aukizt i sveitum landsins.
Taugaveiklunin innan Miðflokks-
ins er einkum fram komin vegna þess
að mönnum sýnist svo sem hinu póli-
tíska og efnahagslega valdakerfi sem
byggt hefur verið kringum Kekkonen
forseta sé nú alvarlega ógnað.
Finnska þjóðin vill fá Mauno Koi-
visto fyrir næsta forseta og Koivisto
er í flokki sósíaldemókrata.
Vandinn sem Miðflokkurinn
stendur nú frammi fyrir er sá hvernig
hin pólitíska valdastaða verði tryggð,
sú valdastaöa sem var grundvölluð
þegar Kekkonen varð forseti árið
1956. Mikil barátta á sér nú stað bak
við tjöldin af þessum sökum.
Miðflokkurinn hefur nú 17,4
prósent atkvæða kjósenda og
flokkurinn hefur lengst af fylgt hinni
svokölluðu K-línu í stjórnmálunum
sem kennd er við þá Kekkonen og
Karjalainen. Þessi lína hefur þótt
gefast vel.
Flokkurinn hefur þó átt við
umtalsverða erfiðleika að etja upp á
síökastiö. Fyrstu erfiðleikarnir komu
fram í dagsljósið þegar Virolainen
var sparkaö. Síðan birtust erfiðleik-
arnir í því að reynt var að sprengja
ríkisstjórnina i þeim tilgangi aö koma
Koivisto frá völdum. Þrátt fyrir að sú
tilraun nyti stuðnings vissra afla
innan Sósíaldemókrataflokksins fór
hún út um þúfur þegar Koivisto
óvænt neitaði að segja af sér fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar á þeim
forsendum að hún nyti trausts
þingsins. Koivisto varð þjóðhetja og
ríkisstjórnin komst í gegnum erfið-
leikana.
Skoðanakannanir sýna að ríkis-
stjórnin nýtur trausts kjósenda þrátt
fyrir margháttuð áföll að undan-
förnu og einkum nýtur Koivisto mik-
illa vinsælda meðal hins almenna
kjósenda. Þeir segja að hann sé
heiðarlegur og að hann hafi aldrei
reynt að upphefja sig á annarra
kostnað. Hann einn þykir hafa verið
fær um að sætta þau ólíku sjónar-
mið sem gætt hefur innan ríkis-
stjómarinnar.
Kekkonen forseti . Valdakerfið sem
byggt var f kringum hann verður f
mikilll hættu þegar hinn aldni forseti
lætur af störfum.
Virolainen (M) er að ná sér á strik að
nýju.
Karjalainen (M). Möguleikar hans á
að verða næsti forseti Finnlands hafa
minnkað verulega.
Sorsa (S). Hópur flokksmanna
stendur með honum á móti forsætis-
ráðherranum.