Dagblaðið - 27.04.1981, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981.
13
Lúðvík Gizurarson
Það er sagt, að stórir hlutir gerist
oft rneð hljóðlátum hætti. Svo er t.d.
um þá miklu breytingu, sem orðið
hefur á fiag sparifjáreigenda með
verðtryggingu innlána. Raunar er
réttara að tala um byltingu, þar sem
nú er hægt að geyma fé á 6 mánaða
verðtryggðum reikningum, án þess
að það sé í hættu vegna verðbólgu.
Verðtryggingaröld er þar með
hafin og hefur ekki farið af stað með
neinum hávaða eða látum. Annað má
segja um húskofann í Keflavik, sem
gerður hefur verið að stórmáli, en
með þeim orðum er átt við fyrir-
hugaða byggingu flugstöðvar.
Flugstöðin
í Keflavík
Stjómvöld hér á landi hafa aldrei
haft neinn áhuga fyrir byggingu flug-
stöðva, þannig að sæmilega væri
búið að flugfarþegum. Nægir í þessu
sambandi að benda á Reykjavíkur-
flugvöll. Þar hefur lengst af verið
notast við gamlan bragga, sem flug-
amerískt hótel sem íslenzka flugstöð,
en tímarnir breytast.
Ný flugstöð
Byggja þarf nýja flugstöð á Kefla-
víkurflugvelli eins og raunar þurfti
fyrir 20 árum. Við eigum að gera það
einir og sjálfir og hún á ekki að vera
stærri en svo, að allir geti orðið sam-
mála um að reisa hana. Ef í ljós
kemur, að hún reynist of lftil, má
byggja við hana síðar, eins og núver-
andi flugstöð eða gamla ameríska
hótelið hefur verið aukið og endur-
bætt.
Það er fráleitt að gera þennan hús-
kofa þarna suður frá að úrslitamáli í
íslenzkum stjórnmálum. Á hinn
bóginn ætti þessi síðbúni áhugi fyrir
flugstöðvarbyggingu að verða til
þess, að allir fagni nýrri flugstöð,
hvort sem hún verður stór eða smá.
Við missum ekki af neinu, þótt
Bandarikjamenn eigi áfram framlag
sitt. Annað eins hefur gerzt í
samskiptum Bandaríkjamanna og
íslendinga.
Fjörutíu ára
afmœlið
Eftir 3 mánuði eru 40 ár síðan
amerískar liðsveitir stigu vopnaðar
hér á land. Það var 10. júlí 1941, sem
fyrstu bandarísku hermennirnir
komu til Reykjavíkur.
í stað þess var brugðið á það ráð, að
biðja Vamarliðið um að láta eftir
hótelið á Vellinum. Það voru skiptar
skoðanir um þetta mál hjá yfir-
mönnum Vamarliðsins, en Islend-
ingar fengu hótelið afhent og hafa
síðan notað það sem flugstöð.
Núverandi flugstöð er því að stofni
til gamalt hótel, kostað og byggt af
Bandaríkjamönnum. Það var aldrei
gagnrýnt þá, að við værum að nota
Við höfum því í sumar lifað 40 ár í
skjóli bandarískra vopna. í ljósi
þessara 40 ára, er húskofi á Kefla-
víkurflugvelli (þó stór sé og kallaður
flugstöðvarbygging) varla til að rífast
um. En samskipti Bandaríkjamanna
og Islendinga síðustu 40 árin eru efni
iaðra blaðagrein.
Lúðvik Gizurarson
hæstaréttarlögmaður.
klukkustundum saman mega farþegar, sem frá Íslandi fara, oft hírast i „flugstöúvar”-salmim þar sem aúeins eru harúir
stólar. Oft er lokaó fyrir alla fyrirgreióslu vió farþega nema aógang aó salernum.
A „Núverandi flugstöð er aö stofni til
^ gamalt hótel, kostað og byggt af Banda-
ríkjamönnum. Það var aldrei gagnrýnt þá, að
við værum að nota amerískt hótel sem íslenzka
flugstöð, en tímarnir breytast... ”
Húskofinn og
ríkisstjómin
stöð. Á Reykjavíkurflugvelli ráða
íslendingar öllu og geta því ekki
kennt öðrum um eitt eða neitt.
Eins er þetta á Keflavíkurflugvelli.
Það var ljóst fyrir um 20 árum að
flytja varð flug íslendinga milli landa
af Reykjavíkurflugvelli til Kefla-
víkur. Fyrir því voru margar
ástæður. Benda má á, að flugvöllur-
inn á Reykjavík var orðinn of lítill
fyrir millilandaflug. Kaupa þurfti
nýjar flugvélar og þær gátu einungis
notað hinar stóru og löngu flug-
brautir í Keflavík.
Fyrir 20 árum vantaði aðstöðu á
Keflavikurflugvelli fyrir Loftleiðir
hf. og Flugfélag tslands hf. til þess að
þessi flugfélög gætu flutt millilanda-
flugið suður eftir.
Ekki sýndu íslenzk yfirvöld þá
(1960) neinn áhuga á byggingu nýrrar
flugstöðvar sem mikil nauðsyn var á.
Kjallarinn
X
J
2. Afnám nýlenduskipunar og kyn-
þáttamisréttis.
3. Virt sé sjálfstæði og sjálfs-
ákvörðunarréttur allra þjóða.
4. Virt sé friðhelgi landamæra.
3. íhlutunarieysi um innanrikismál
allra þjóða.
6. Vísindum og menningu sé beitt til
að varðeita friðinn og til velferðar
mannkynsins.
7. Friðsamleg sambúð ríkja sem búa
við mismunandi þjóðfélagskerfi.
8. öll deilumál, sem upp koma,
skulu leyst við samningaborðið en
ekki meö vopnavaldi.
Óhætt er að, segja að stefnuskrá
þessi hafi fengið nokkuð góðan
hljómgrunn meðai margra þjóða
heims og hún hefur verið tekin upp í
stjórnarskrá nokkurra ríkja. Fyrst til
að taka hana sem heild i stjórnarskrá
sina var Bangla Desh, síðan Indland
og siðast Sovétríkin sem tóku hana
upp í hina nýju stjórnarskrá sem þau
samþykktu árið 1977.
Kommúnistar
og erindrekar
Sovétríkjanna?
Til að gefa nokkra yfirsýn yfir
þekkta menn, sem eru heiðursfor-
setar Heimsfriðarráðsins, má til
dæmis nefna dr. Martin Niemuller,
þýskan prest, sem lengi var í fanga-
búðum Hitlers; friðarverðlaunahaf-
ann Mac Bride; bandaríska prestinn
sr. Ralph Abernaty, formann friðar-
hreyfingarinnar sem kennd er við
Martin Luther King; Elinor Bernal,
ekkju breska eðlisfræðingsins John
Bernal sem var forseti Heimsfriðar-
ráðsins eftir dauða Frederic Juliot-
Curie.
Á síðari árum hefur Heimsfriðar-
ráðinu bæst allverulegur liðsauki og
er það nú fjölmennara en nokkru
sinni fyrr. Til liðs við það hafa meðal
annarra komið ýmsir fyrrverandi
hershöfðingjar NATO sem ofboðið
hefur vígbúnaðurinn og ákveðið að
helga krafta sína baráttunni fyrir
varðveislu friðarins. Má þar sem
dæmi nefna itaiska þingmanninn
Nino Pasti sem um mörg ár var yfir-
maður kjarnorkuvopnaforða NATO.
Einnig er þar Costa Gomes, portú-
galski herforinginn, sem hafði for-
göngu um að kollvarpa herforingja-
stjórninni í Portúgal. Verður víst
hvorugur þessara manna vændur um
að vera kommúnisti og enn síður að
ganga erinda Sovétríkjanna.
íslenska f riðarnef ndin
Islenska friðarnefndin var stofnuð
sama ár og Heimsfriöarráðið, 1949.
Aðalhvatamaður að stofnun hennar
var Kristinn E. Andrésson og var
hann í forsvari fyrir hana svo lengi
sem honum entist heilsa. Þótt margjr
einstaklingar hafi komið við sögu
friðarmála á Islandi mun þó jafnan
bera hæst nöfn Kristins og Þóru
Vigfúsdóttur konu hans. Sigríður
Eiríksdóttir, þáverandi formaður
Hjúkrunarkvennafélags Islands, var
virkur félagi í tsiensku friðarnefnd
inni og átti sæti í Heimsfriðarráð-
inu, en hún og Kristinn sóttu flest
þing þess meðan kraftar þeirra
entust. Enn ber að nefna til öflugan
stuðningsmann friðarmála hér á
landi frá sjötta tug aldarinnar, séra
Emil Bjömsson, sem nú er frétta-
stjóri sjónvarpsins. Einnig má nefna
Halldór Laxness og fleiri þekkta
Islendinga sem léð hafa friðarmálum
lið gegnum árin, en þessi upptalning
skal látin nægja.
í flestum þeim löndum, þar sem
friðarnefndir eru starfandi, eru þær
og hafa verið virt samtök sem ekki
hafa orðið fyrir aðkasti, jafnvel ekki
á dögum kalda stríðsins. Þessu er
öfugt farið hér á landi. íslenska
friðamefndin hefur frá öndverðu
verið ofsótt af afturhaldsöflunum hér
á landi og afturhaldssamir fjölmiðlar
hafa ávallt valið henni og þeim sem í
henni hafa starfað hinar háðulegustu
nafngiftir. Þannig fengu þau Kristinp
E. og Sigríður Eiríksdóttir mörg
óþvegin orð I eyra frá borgaralegum
fjölmiðlum fyrr á árum, en þau létu
það ekki á sig fá.
Sá munur var þó á að á árum kalda
stríðsins hafði Þjóðviljinn ekki enn
skipað sér í raðir þeirra sem ofsóttu
íslensku friðarnefndina, þannig að á
þeim árum var hægt að fá inni fyrir
skrif um friðarmálin í því blaði.
Isienska friðarnefndin hefur aldrei
verið neinn leynifélagsskapur og því
síður hefur hún gengið annarlegra
erinda. Hún hefur frá stofnun sinni
reynt að láta rödd íslands hljóma í
þágu ffiðar og afvopnunar á alþjóða-
vettvangi og að koma einhverju af
því sem rætt er um þessi mál á
erlendri grundu til eyrna íslenskra les-
enda og útvarpshlustenda. Hitt er
önnur saga að hún hefur ekki alltaf
átt greiðan aðgang að fjölmiðlum. Ef
undan eru skilin nokkur útvarps-
erindi, sem María Þorsteinsdóttir
hefur flutt á undanförnum árum,
hefur lítið pláss gefist í fjölmiðlum
þessa lands fyrir boðskap hennar.
Um þetta má geta glænýs dæmis.
Greinargerð með sömu upplýsingum
og finna má i þessari grein var send
til allra dagblaöa og ríkisfjölmiðla 6.
apríl sl. Hún hefur hvergi verið birt.
Jafnvel ekki í Þjóðviljanum sem þó
reið á vaðið með furðuskrifin og
þaðan af síður í Morgunblaðinu sem
lapið hefur í sibylju rakaiausan
óhróður Hjalta Kristgeirssonar um
nefndina. (Ekki í fyrsta sinn sem H.
K. reynist dyggur haukur í horni
íhaldsins; nefndi einhver fimmtu her-
deild í Alþýðubandalaginu?)
Friðlýsing
Norður-Atlantshafs
Árið 1973 gekkst íslenska friöar-
nefndin fyrir alþjóðlegri ráðstefnu
um afvopnunarmál og friölýsingu
Norður-Atlantshafsins. Einar Karl
Haraldsson var starfsmaður friðar-
nefndarinnar meðan á undirbúningi
stóð og leysti það verk af hendi með
sóma. Ráðstefnuna sóttu fulltrúar
frá Evrópu, Kanada og Bandaríkj-
unum. M.a. voru þar Moses Olsen
hinn grænlenski og nokkrir fulltrúar
ungkrata í Noregi. Tillöguna um frið-
lýsingu Norður-Atlantshafsins flutti
Stefán Jónsson þingmaður af
miklum skörungsskap. Mun það hafa
verið í fyrsta sinn sem tillaga um
þetta efni var flutt á alþjóðavett-
vangi.
Árið 1972 komu hingað í heimsókn
Romesh Chandra forseti Heims-
friðarráðsins, Matti Kekkonen,
sonur Kekkonens Finnlandsforseta
og einnig pólskur starfsmaður
Heimsfriðarráðsins. Friðarnefndin
hélt opinn fund þar sem gestimir fluttu
ræður og einnig var haldinn blaða-
mannafundur, en lítið sáu fjölmiðlar
sér fært að birta frá þeim fundi. Þó
skal þess getið að þeir Romesh
Chandra og Matti Kekkonen komu
fram í sjónvarpinu. Á síðasta vetri
komu hingað aftur gestir frá Heims-
friðarráðinu. Það voru þau Gordon
Shaffer, frammámaður i breska
verkamannaflokknum, og Kathy
Hannikainen, starfsmaður Heims-
friðarráðsins. Þar endurtók sagan
sig: Blaðamannafundur var haldinn
þar sem aðeins tvö blöð sáu ástæðu
til að mæta. Þó kom Gordon Shaffer
fram í sjónvarpinu.
Ég hef reynt að gefa nokkra mynd
af þessum tveim samtökum, Heims-
friðarráðinu og íslensku friðarnefnd-
inni, í þessari grein. Það er óhjá-
kvæmilegt að gróflega sé í málin
farið, enda plássi skorinn stakkur.
En ég vil að lokum láta þess getið að
Islenska friðarnefndin er opin öllum
sem af heilum hug vilja vinna að efl-
ingu friðar í heiminum, afvopnun og
stöövun vígbúnaðarkapphlaupsins —
einkum og sér í lagi stöðvun þess vit-
firringslega kapphlaups um eflingu
kjarnorkuvopna sem augljóst er að
draga mun mannkynið fram á hengi-
flug gereyðingar innan fárra ára ef al-
menningur heimsins spyrnir ekki við
fótum.
Haukur Már Haraldsson
formaður íslensku
friðamefndarinnar
Á þingi Heimsfriðarráðsins 1980 var Melina Mercouri í sendinefnd Grikklands.
Þar.var rætt um málefni Palestinumanna og af því tilefni kom Yasser Arafat lil
þingsins. Hér sjást þau i samræðum í þinghléi.