Dagblaðið - 27.04.1981, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981.
Ssetir verkstjórar. Jóhanna Gunnarsdóttir, Fjóla Leósdóttir, Einar
Vigiundsson, Anna Sigurðar, Björn G. Jónsson og Jóhanna Einarsdóttir.
FÓLK
ÁSGEIR
TÓMASSON
Svavarsérum
sína og Þröstur
feríBrunabót
Nú hefur umsóknarfresturinn um
stöðu forstjóra Brunabótafélags
íslands verið framlengdur. Ekki mun
það stafa af mannfæð í eftirsótta
toppstöðu.
Bæjarslúðrið segir, að staðan sé
ætluð Þresti Ólafssyni hagfræðingi,
aðstoðarmanni Ragnars Amalds fjár-
málaráðherra. Hafi hann ekki sótt
málið fast heldur hafi þvert á móti
þurft að ganga á eftír honum með
grasið í skónum til aö þiggja stöðuna.
Hefði enn vantað herzlumuninn
þegar fresturinn rann út og hafi hann
því verið framlengdur.
Svavar Gestsson heilbrigðis- og
tryggingaráðherra veitir stöðuna.
„Gunnlaugsbúð sér um sína,” aug-
lýsti Gunnlaugur Stefánsson, kaup-
maður í Hafnarfirði í gamla daga, afi
Finns Torfa og Gunnlaugs Stefáns-
sona, fyrrum þingmanna.
Svavar sér líka um sína.
Ogsvokom
loksins kœlir
ígamla Verzlunar-
félagiö....
Þrátt fyrir að Egilsstaðir séu
nokkurs konar þjónustumiðstöð
Austurlands er ekki þjónustan jafn-
góð á öllum sviðum. Á Egilsstöðum
er eins og víðast hvar annars staðar á
landinu kaupfélag og einnig er þar
Verzlunarfélag Austurlands. Hið
siðarnefnda rekur tvær verzlanir.
önnur er í þorpinu sjálfu, en hin (sú
eldri) norðan við Lagarfljótið.
Nú bar svo við að kælirinn í nýrri
verzluninni var farinn að gefa sig
þannig að kjötvörur skemmdust æði
oft. Fólk var farið að kvarta undan
vondum kjötvörum og gekk svo
nokkurt skeið. Eigandi Verzlunar-
félagsins, sem þykir með sparsöm-
ustu mönnum, dreif sig í að fá nýjan
kæli í verzlunina og réðu húsmæður í
þorpinu sér ekki fyrir kæti. En
húsmæður norðan fljótsins eru ekki
jafnhressar í bragði. Eftir áralangt
þras um að reyna að fá eigandann til
að fá kæli í eldri verzlunina kom jú
kælir þangaö, en hann reyndist þá
eftir allt saman sá ónýti úr þorpinu.
Segja sögur að húsmæður sem búa
norðan Lagarfljóts líti gamla
Verzlunarfélagið illum augum um
þessar mundir og brenni þangað
framhjá daglega og verzli í kaup-
félaginu.
Nokkuð er mismunandi eftir lönd
um hvernig tekið er á bílstjórum sem
hafa gerzt sekir um ölvun við akslur. Í
marzhefti fréttabréfsins Vegamál birt-
ist eftirfarandi klausa:
Bakkusog
bílstjórar
1 Suður-Afriku fær drukkinn öku
maður ýmist tiu ára fangelsi, 10.000
dollara sekt, eða hvort tveggja.
í Ástraliu eru nöfn drukkinna öku
manna send fjölmiðlum þar sem þau
eru birt undir fyrirsögninni „Hann ók
drukkinn og er.í fangelsi."
i Malaysiu er ökuntaður fangels
aður. Ef hann er kvæntur er konan
fangelsuðlíka.
Í Tyrklandi ekur lögreglan drukkn-
unt ökumanni þrjálíu kílómetra út
fyrir bæjarmörkin. Þaðan er hann
neyddur til að ganga heim — i
lögreglufylgd.
Í San Salvador taka aftökusveiiir
drukkna ökumenn og skjóta þá.
Í samanburði við slikar og þvilikar
reglugerðir má islenzka lögreglan
teljast fremur umburðarlynd.
Voðalega er gaman að vinna í nýju húsi
Ósköp var hann Óli nú ánægður og glaður
er hann þurfti ei lengur að blása I fiautuna.
Nú er hann svo broshýr og allur annar maður
og iðar hreint af kæti við að telja ormana.
Eggert, hann er stúrinn og varla sést á vakki
og vist er það hann linnir ekki sínum kvörtunum,
;það er ekkert fjör að vera í þessu fjandans hakki,
nú fæ ég ekki lengur að klappa stúlkunum.
Konurnar við borðin I sæluvimu svífa,
svei mér þá, nú getaþær jafnvel hvíslazt á,
en Mikki er i kúttun og Mikki brýnir hnifa
og Mikki þarf að snúast i ýmsu til og frá.
Hjá mannskapnum i vinnusalnum misjafnlega gengur,
mikið hugsar Siggi Pétur nú um kvennafar,
nú er enginn hávaði og ekki kuldi lengur,
svo eru þeir nú sætir, þessir nýju verkstjórar.
Anna, hún er drottningin sem allir gcfa gætur,
einkum þegar sullar hún í kassaþvottinum,
en allur er varinn góður, og ekki sizt um nætur,
nú er hún því til húsa hjá sjálfum prestinum.
Ásdis
Jóhannesdóttir
syngur
gaman visurnar.
Ósköp er hann Þröstur nú ánægður og glaður.
Ekki lengur heyrist hann tala um vol né víl,
þvf sfðan krónan stækkaði er hann allur annar maður
og ætlar nú að kaupa sér finan vörubil.
Áður fyrr hjá Hannesi var ekki nokkur friður,
út og suður þurfti hann að bera peninga,
en nú þarf Hannes bara að hlaupa upp og niður
hlýlega samt klappar hann á gömlu töskuna. G.G.
— Patreksfirðingarfagna nýja frystihúsinu
Árnadætur með eiginmönnum sínum. Frá vinstri eru Dröfn, Einar Jónsson, Stefán Egilsson, Pálmi Stefánsson
afíakió, Helena og Hugrún. DB-myndir Elin.
Starfsfólk Hraðfrystihúss Patreks-
fjarðar hafði ærna ástæðu til að vera
hresst í bragði á árshátið fyrirtækisins
nú á dögunum. Þá fyrr um daginn
hafði nýja frystihúsið verið tekið í
gagnið. Allir voru því glaðir og reifir
eftir kokkteil dagsins þegar setzt var
að borðum i félagsheimili Patreks-
fjarðar.
Margt var sér til gamans gert á árs-
hátiðinni. Úlfar B. Thoroddsén flutti
annál í gamansömum tón. Anna S.
Einarsdóttir las sögu um það sem
getur gerzt þegar furðufisk ber að
garði. Ásdís Jóhannesdóttir flutti
gamanvísur og nokkrir kátir starfs-
menn frystihússins sungu við undir-
leik Sigurjóns Jóhannssonar sem
búinn er að vinna hjá fyrirtækinu frá
stofnun þess. ÖIl voru skemmtiatriðin
heimatilbúin.
Áður en skemmtiatriðin hófust álu
gestir og drukku af hjartans lyst og að
þeim loknum var stiginn dans fram
eftir nóttu.
Til gamans fylgir hér með einn
bragurinn sem sunginn var um
kvöldið.
Elín Oddsdóttir,
Patreksfirði.
Lag:.... Fimmeyringurinn.
Mikið voðalega er gaman að vinna i nýju húsi,
já, vist er þáð hér stórkostlegir hlutir hafa skeð.
Einn af þeim sem hcldur sínu embætti er Fúsi.
Á upphaflegri teikningu þá var hann hafður með.
Oft á nýjum vinnustöðum verður margt til tafa
og víst er stundum erfitt að halda sönsum þá,
En Jói Jóns og Óskar á Hausastöðum hafa
húmorinn i lagi þó gangi sitthvað á.
Búin að starfa hjá fyrirtækinu fra byrjun. Sigurjon Jóhannsson, heiðursgestur kvöldsins, Valgerður
Jónasdóttir, Aifdís Sigurjónsdóttír og Guðmundur Ólafsson.
Bæði Númi og Magnús sér una I aðgerðinni,
öðru hvoru Mikki, hann stendur þeim við hlið,
en eitthvað hefur ruglazt í útlitsteikningunni
þvi auminginn hann Beggi þar lenti utan við.
Þegar illa fiskast er litið við að vera
en vist er stundum þægilegt að geta verið frjáls,
Öðru hvoru í sumar var ekki neitt að gera
en alltaf var þó reytingur fyrir Hönnu Páls.
Jónas Þór, Vigfús Þorsteinsson, Sabína Sigurðardóttír, Mikaei Þorsteins og Anna Stefania.
Það veitti ekkert af þvi að eiga mann til vara
sem auðveldiega hlaupið gæti í skarðið litla stund,
því forstjórarnir koma og forstjórarnir fara
og forstjórarnir þurfa oft að bregða sér á fund.