Dagblaðið - 27.04.1981, Page 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981.
29
Bflasýning Kvartmfluklúbbsins
Sendiferðabflamir vinsælastir
Hemi Challangerinn hans Guðmundar Guðmundssonar var kosinn verklegasti
kvartmflubfllinn á sýningunni annað árið I röð. Bfllinn á þó ennþá eftir að sanna getu
sfna á kvartmflubrautinni. DB-mynd J. A. K.
Dragsterinn hans Ludvigs Björnstadts er kraftmesti, fljótasti og hraðskreiðasti bill sem komið hefur til íslands.
DB-mynd J. A. K.
Kókosbollan hansólafs Vilhjálmssonar var á sýningunni og skartaði þar bikurunum
og verðlaunapeningunum sem þau hafa unnið til f sameiningu. Ólafur á fslandsmetið f
kvartmfluakstri á fslandi en það er 10.27 sek. DB-mynd J.A.K.
Sjötta bílasýning Kvartmíluklúbbs-
ins var haldin um páskana og tókst hún
vel. Sýningargestir voru þó mun færri
en búizt var við og hefur verið á fyrri
sýningum klúbbsins. Eru vafalaust
margar ástæður fyrir minnkun
aðsóknar og má þar fyrst telja óvenju
gott veður um páskana en einnig var
nýlokið alþjóðlegri bilasýningu á
vegum Bílgreinasambandsins.
Merkilegasti bíUinn á sýningunni að
þessu sinni var vafalaust Dragsterinn
hans Ludvigs Björnstadts sem fenginn
var á sýninguna frá Noregi. Flestir
grindarbílar, eða Dragsterar eru með
Hemi vélum og því vakti það nokkra
furðu mína þegar ég sá að í bílnum var
Chevrolet vél þar sem ég vissi að hann
átti Norðurlandametið í Kvartmílu-
akstri (6,35 sek. 360 km/klst). En þegar
ég sá nafn mannsins sem hannaði og
smiðaði vélina á forþjöppunni hefði ég
ekki efazt um getu hennar þótt það
væri tveggja strokka Trabant vél. Þvf
eins og Bob Glidden , heimsmeistari i
Pro Stock flokki í kvartmilu síðastlið-
in tvö ár, segir: „Vélin hefur ekki hug-
mynd um hvaða tegund hún er, það ei
maðurinn, sem setur hana saman, sem
skiptir öllu máli.” Vél Dragstersins var
kirfilega merkt Ed Pink, en hann er
einn frægasti vélasmiður Bandarikj-
anna í dag. Ed Pink smiðar vélar fyrir
margar helztu toppstjörnurnar, bæði i
Funny Car flokki og Top Fuel flokki.
Má þar t.d. nefna Don Prudhomme
sem verið hefur fremstur Funny Car
ökumanna í fjölda ára og oftar unnið
heimsmeistaratitilinn en nokkur annar.
1976 setti Prudhomme heimsmet sitt i
Funny Car flokknum þegar hann fór
Indianapolis kvartmílubrautina á 5.93
sek.
En það voru fleiri bílar en Dragster-
inn á sýningunni og þó þeir hafi verið
færri en oft áður má segja að þeir hafi
verið vel valdir. Fæstir þeirra höfðu
verið sýndir áður og flestir voru óvenju
glæsilegir. Eins og áður voru það
sýningargestir sem kusu bílana sem
fengu verðlaun á sýningunni.
í fyrra var það Svarta-María, sendi-
ferðabíllinn hans Gylfa Pálssonar sem
vakti stormandi lukku og var kosinn
bæði athyglisverðasti og fallegasti bill-
inn. Sendiferðabilarnir virðast enn eiga
hugu og hjörtu áhorfendamra þvi að i
ár var annar sendiferðabill kosinn bæði
Gamli Lettinn hans Arnar O. Guðjónssonar vakti mikla athygli, enda óvenjuvel uppgerður og vel til hans vandað að öílu
leyti. DB-mynd J. A. K.
Midnight Express sendiferðabillinn hans Gísla Ólafssonar var kosinn fallegasti og
verklegasti billinn á sýningunni. DB-mynd J. A. K.
Verklegasti kvartmilubillinn var
kosinn 426 Hemi Challangerinn hans
Guðmundar Guömundssonar en þessi
fallegasti og athyglisverðasti billinn, þó
ekki með eins miklum yfirburðum og
Svarta-Maria i fyrra. Gisli Ólafsson á
sendiferðabilinn sem sigraði i ár og er
það Chevy Van, þekktur sem Midnight
Express eftir skreytingunum á hliðum
bílsins. Í öðru sæti, sem fallegasti bíll-
inn, var gamall blæju Chevrolet sem
örn Ó. Guöjónsson á. Ólafur Ólafsson
átti bilinn sem var í öðru sæti sem
athyglisverðasti billinn en það er mikið
breyttur VW.
sami bíU var einnig kosinn verklegasti
bUUnn í fyrra. í öðru sæti sem verkleg-
asti bíUinn var Kókosbollan hans Ólafs
VUhjálmssonar en sá bUl á islands-
metið i kvartmUuakstri og hefur sigraö
i fleiri kvartmUukeppnum en nokkur
annar bUl hér á landi.
Ari ViUijálmsson átti verkiegasta
mótorhjólið 1 fyrra og sýndi þá Honda
CB 900. 1 ár átti hann einnig verkleg-
asta mótorhjólið en sýndi að þessu
sinni Kawasaki hjól sem hann hefur
verið að byggja fyrir kvartmiluna. í því
hjóli er 831 cc vél og er afgasforþjappa
áhenni.
Jóhann Kristjánsson.
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr. 14 - S 21715, 23515
Reykjavík: Skeilan 9- S. 31615. 66915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við utvegum yður afslátt
á bílaleigubilum erlendis
SKÓLAVÖRDUSTÍG 41 - SÍMI 20235.
REYFARAKAUP!!
KVEN- OG KARLMANNAREIÐHJOL
JÚLiUS P. GUÐJÖNSS0N
HEILDVERZLUN
SUNDABORG 17 - SÍMI 36880
Aðeins kr