Dagblaðið - 06.05.1981, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1981.
3
Umfóstrurog dagheimili:
Vissu ekki hvað þær voru
nýbúnar að skrifa undir
—ég vil að allir geri út á sinn eigin kostnað en heimti ekki allt af ríki og bæ
Regina, Eskifirði, hringdi:
Að undanförnu hafa dunið í fjöl-
miðlum fréttir af þvi að fóstrur væru
að fara í verkfall eða vaeru i verkfalli.
Fóstrur sömdu eins og fleiri stéttir
um kaup sitt í vetur en blekið var
ekki þornað þegar þær vildu fá hærra
kaup. Eitthvað hljóta þær að hafa
verið miður sin fyrst þær vissu ekki
hvað þær voru nýbúnar að skrifa
undir.
Dagheimilin eru orðin
þungur baggi á bæjarfélögum viðs
vegar um land. Ég held að það yrði
heillaráð að bæjarfélögin byðu þeim
Raddir
lesenda
rJHr'-'''•• k,;V». j r ■ V j
Reginu finnst að forcldrar ættu að taka meiri þátt i rekstri barnaheimila.
r
foreldrum sem ekki nenna að vera
heima og gæta bama sinna afnot af
húsnæði dagheimilanna en foreldrar
borguðu annan kostnaö.
Það væri gaman að vita hvort for-
eldrar myndu mæta í stómm hópum
eins og í vetur þegar fóstrur á Akur-
eyri og Kópavogi fóru i verkfall. Þá
funduðu foreldrar á þessum stöðum
og heimtuðu að strax yrði samið við
fóstrur.
Ég er alveg viss um að það kæmi
annað hljóð í strokkinn ef foreldrar
þyrftu sjálfir að greiða þann mikla
kostnað sem er af daglegum rekstri
þessara heimila.
Hér á Eskifirði hefur verið rekið
dagheimili í mörg ár. Á sumrin em
þar um 40 börn og margar mæður
hafa börn sín þarna þó þær séu ekki
að vinna úti.
Ég vil að allir geri út á sinn eigin
kostnað en heimti ekki allt af ríki og
bæ.
Bréfritari vlll heyra meira frá Sigurði
Karissyni trommuleikara.
DB-mynd Jim Smart.
F
Islenskkjötsúpa:
Frábær
plata sem
ekki f ékk
verðugar
viðtökur
— kom þvímiður
bara útá
vitlausum
tíma
Poppunnandi skrifar:
Ég skora á fólk að hlusta á hina
stórgóðu plötu „íslensk kjötsúpa”
þó langt sé liðið síðan hún kom út.
Textarnir á plötunni fjalla um lif
popparans eins og það er og finnst
mér að Jóhann G. haft þarna gert
góða hiuti.
Hljóðfæraleikur og söngur er
nokkuð góður og finnst mér söngur
Sigurðar passa aiveg sérstaklega vel
inn i verkið. Ekki kemst ég hjá því aö
minnast á stórgóðan trommuleik
Sigurðar Karlssonar, hann er hreint
og beint stórkostlegur. Hvað er eigin-
lega oröið af þessum sniliingi?
Ég ætla nú ekki að hafa þessi orð
mikið fleiri en þetta er bezta ísienzka
hljómplatan sem út hefur komið.
Hún kom því miður bara út á vitlaus-
um tíma.
VERKSM/DJU
! SAMBANDSVERKSMIÐJANNA
Á AKUREYRI
SÝNINGAHÖLLINNIBÍLDSHÖFDA
M 4.-9.MAÍ
Frá Gefjun:
Ullarteppi, teppi, teppabútar, áklæði, glugga
tjöld, buxnaefni, kjólefni, ullarefni, garn, loð-
band, lopi.
Frá Fataverksmiðjunni Heklu:
Ulpur, gallabuxur, peysur, samfestingar og
sokkar.
Frá Ylrúnu:
Sængur, koddar, svefnpokar, rúmteppi.
Frá lager:
Tízkuvörur úr ull, peys-
ur, fóðraðir jakkar, pils,
vesti, ofnar slár og káp-
ur.
Frá verksmiðjunni
Skinnu:
Mokkakápur, mokka-
jakkar, mokkahúfur,
mokkalúffur.
Frá Torginu:
Dömu-, herra- og barna
fatnaður, herraföt, karl-
mannaskór, kvenskór,
unglingaskór, barna-
skór, vinnuskór og tré-
klossar.
Það kostar ekkert að líta inn
og með smáviðbót má tryggja
sér margt eigulegt
Strætisvagna-
ferðir frá Hlemmi
með leið 10.
Spurning
Hafa auglýsingar áhrif á
vörukaup almennings?
Sigríður Illugadóttir húsmóöir: Já, það
hafa þær ábyggilega. Ef maður sér eitt-
hvað auglýst þá fer maður á staðinn og
athugar verð og gæði.
Þröstur Þorvaldsson vélstjórí: Eflaust
hafa þær áhrif. En fyrir fólk úti á landi
er það mjög óþægilegt að ekki skuli
fylgja verð með í auglýsingum.
Sigurður Korniliusson húsgagna-
smiður: Nei, maður á alltaf að vega og
meta kosti og galla.
Rannveig Jónasdóttlr húsmóðlr: Nei,
það held ég ekki. Ég held aö fólk geri
það alveg upp við sjálft sig hvað það
kaupir.
Svanborg Guðjónsdóttir nemi: Já,
stundum.
Ólöf Þórðardóttlr verkakona: Ég veit
það ekki, auglýsingar hafa lítil áhrif á
mig.