Dagblaðið - 06.05.1981, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1981.
5
Reyna grænfriðungar að sökkva íslenzkum hvalveiðiskipum íhöfn, líkt og á Spáni i fyrra?:
AUKIN VAKT UM BORD í
ÖLLUM HVALVEIDIBÁTUNUM
— orðrómur um nýjar aðgerðir Greenpeace-manna gegn íslenzku hvalveiðibát
unum. „Reynum að passa bátana eins og við getum,” segir forst jóri Hvals hf.
Stöðug og aukin vakt er nú í hval-
bátunum í Reykjavíkurhöfn vegna
ótta við aðgerðir Greenpeace manna.
Hvalvertíðin hefst senn og er unnið
við það að gera bátana klára. Líkur
eru taldar á, að Greenpeace-menn
snúi sér að íslenzku hvalveiðiskipun-
um á nýjan leik í sumar en vertiðin í
fyrrasumar var friðsamleg. Láti
grænfriðungar til sin taka er jafnvel
búizt við breyttum baráttuaðferðum.
Samkvæmt upplýsingum Dag-
blaðsins hafa borizt boð um það frá
Bretlandi að likur séu á að grænfrið-
ungar reyni að sprengja gat á hval-
báta í höfn. Dæmi eru fyrir sliku frá
Spáni. Þá er einnig haft í huga að
fundur Alþjóða hvalveiðiráðsins um
breytingar á stofnskrá hefst í Reykja-
vík í dag.
„Við reynum að passa bátana eins
og við getum,” sagði Kristján Lofts-
son forstjóri Hvals hf. í gær. „Það er
vakt í bátunum allan sólarhringinn
og hún hefur verið aukin, því betur
sjá augu en auga.
Við höfum heyrt ýmislegt erlendis
frá og viljum ekki lenda i sömu súp-
unni og Spánverjar í fyrra. Þá voru
sprengdir upp tveir hvalveiðibátar í
höfn og þeir sukku þar.”
Kristján var að því spurður hvort
hann hefði heyrt um ákveðinn Breta,
sprengjusérfræðing og froskmann,
sem hingað væri kominn til þess að
kanna aðstæður á vegum Green-
peace.
„Maður veit ekki hvað er á ferð-
inni en ef maður er vel á verði ætti að
vera hægt aö komast hjá að Pétur og
Páll séu hér að flækjast. En ég
kannast ekki við þennan tiltekna
Breta.”
Vakthafandi aðalvarðstjóri
iögreglunnar í Reykjavík sagðist ekki
vitað til þess að hvalbátarnir væru
vaktaðir sérstaklega af lögreglu.
Varðstjóri á Miðbæjarstöð sagðist
heidur ekki vita um vakt yfir bátun-
um og ef hún væri ættu þeir að vita
þaö, „nema um leynivakt væri að
ræða”, eins og hann orðaði það.
„Eru þeir bátar ekki alitaf i
hættu,” sagði Bjarki Elíasson yfír-
lögregluþjónn er málið var borið
undir hann. -JH/ASt.
Hvalveiðibátarnir I Reykjavikurhöfn í gær. Vakt um borð hefur verið aukin enda I unni og Spánverjar í fyrra, en þar var tveimur hvalveiðibátum sökkt I höfn.
segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvais hf., að hann vilji ekki lenda I sömu súp- | DB-mynd Sigurður Þorri.
Bolungarvík:
Sjúkraskýlinu gef ið
fyrir myndsegulbandi
- f 50 ára afmæli verkalýðs- og sjómannafélagsins
Verkalýðs- og sjómannafélag
Bolungarvíkur varð 50 ára 27. apríl. í
því tilefni bárust félaginu tvö málverk
að gjöf og blómakörfur, en sjálft
afhenti félagið kr. 10.000,- til sjúkra-
skýlisins og Lifeyrissjóður Bolungar-
vikur afhenti skýlinu kr. 20.000.- og
eru báðar upphæðirnar ætlaðar til
kaupa á myndsegulbandstæki og efni.
Hálfdán Einarsson, formaður
stiómar sjúkraskýlisins, tók viö
þessum gjöfum úr hendi formanns
félagsins Karvels Pálmasonar alþingis-
manns í hófi er haldið var í félags-
heimili Bolungarvíkur að kvöldi
laugardagsins 2. maí og fór hið bezta
fram. Magnús Jónsson söng einsöng og
fjölmargar ræður voru fluttar. Meðal
gesta vom Hannibal Valdimarsson,
fyrrverandi forseti ASÍ og Ásmundur
Stefánsson núverandi forseti
sambandsins. -FG/KF, Bolungarvik.
i M I H
f ! 1 ! ' Í j i ': > |
■ ' • j
:;1 1 1 á 1
Hálfdán þakkar Karvel góðar gjafir á afmæli verkalýðs- og sjömannateiags
Bolungarvíkur. DB-mynd: Kristján Friðþjófsson.
Max regnföt gera
muninn
Veðrið skiptir ekki öllu máli, ef þú ert í
regnfatnaði frá Max.
Margar stærðir, margir litir
ÁRMÚLA 5 — SÍMAR 86020 OG 82833
TOYOTA-
SALURINN
SÍMI44144
Nýbýlavegi 8 (bakhús)
Opið laugardaga kl. 13—17
Aifa Rómeó Alfetta 2000 árg. ’78.
2ja blöndunga, 5 gfra, Litur: grár
sans. Verð: 75.000,- Skipti
möguleg.
Toyota Cressida DL árg. ’79.
Ekinn: 18.000, gulur. Verð.
88.000.- (Sílsilistar, grjótgrind,
sumardekk, vetrardekk., útvarp.)
Toyota Corolla KE-30 ’78. Ekinn:
60.000, gulur, verð: 54.000.-
Toyota Cressida station árg. ’80.
Ekinn: 21.000. Litur: Gold
metalic. Verð: 110.000.-
Toyota Cressida Grand Lux árg.
’80. Beinsk. 5 glra. Ekinn: 8.000
km. Litur: brúnn metalic. Verð:
115.000.-
Toyota Cressia Grand Lux árg.
'80. Sjálfskiptur. Ekinn: 6.000 km.
Litur: brúnn metalic. Vcrð:
120.000.-
Toyota Corolla KE-30 ’78 4ra
dyra. Rauður. Ekinn aðeins 27.000
km. Verð: 65.000,- (Vetrardekk á
felgum, útvarp.)
ATH.
Okkur bráö-
vantar allar
gerðir Toyota-
bifreiöa á sölu-
skrá.