Dagblaðið - 06.05.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1981.
(§
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Afgreiðslu
banná
brezk skip
Bandarískir hafnarverkamenn hafa
boðað sólarhrings afgreiðslubann á
brezk skip vegna dauða Bobby Sands.
Samfélag þrettán milljón tra í Banda-
ríkjunum brást ókvæða við fréttinni
um dauða Sands og hefur fengið því
framgengt að mótmælt verði með því
að afgreiða ekki brezk skip i einn sólar-
hring.
Líbanon:
Stórveldin reyna
að miðla málum
Dauði Sands vekur mótmæli víða um heim:
Þúsundir vottuðu
Sands virðingu sína
Þessir tveir IRA-félagar fóru i langt hungurverkfali á siðasta ári en létu um siðir
af því. Nú munu sjötiu féiagar þeirra reiðubúnir að fara í hungurverkfall.
Þúsundir lýðveldissinna á Norður-
frlandi vottuðu IRA-félaganum
Bobby Sands hinztu virðingu með því
að ganga framhjá líki hans, sem
komið hafði verið fyrir í likkistu á
heimili hans.
Dauði Sands hefur vakið mótmæli
víða um heim og tii talsverðra átaka
kom á Norður-frlandi í gær með
þeim afleiðinguni að 23 menn særð-
ust. Þannig fékk til dæmis lögreglu-
maður í Belfast skot í handlegginn er
sex skotum var skotið að lögreglubif-
reið. Fjórir þeirra sem slösuðust í
átökunum munu vera alvarlega
særðir. Steinum og bensínsprengjum
var kastaö að öryggissveitum í Bel-
fast.
í London stöðvuðu póststarfs-
menn böggul sem stílaður var á Karl
prins og reyndist hann vera með
sprengju í. Sérfræðingar lögreglunn-
ar gerðu sprengj una óvirka.
Útför Sands verður gerð á morgun
og er óttazt að þá komi til alvarlegra
átaka þó stuðningsmenn Sands hafi
hvatt til stillingar og segja þær óskir i
samræmi við vilja Sands. Þeir segjast
með þeim hætti hafa útförina virðu-
lega en segja jafnframt að til óeirða
kunni að koma að útförinni lokinni.
Þrír félagar í IRA eru nú orðnir
langt leiddir vegna hungurverkfalls
og sjötiu félagar þeirra segjast reiðu-
búnir að hefja sams konar verkfall.
FRANKINN HEFUR
FALLIÐ í VERÐI
— vegna möguleikans á sigri sósíalista
í f orsetakosningunum
Bandaríkin og Sovétríkin reyna nú
að miðla málum milli stríðandi afla í
Líbanon og hafa bæði stórveldin sent
sendiboða til Miðausturlanda í þeim til-
gangi. Fyrsti aðstoðarutanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Georgey Krni-
yenko, kemur til Sýrlands í þriggja
daga heimsókn og Philip Habib, sendi-
maður Bandaríkjastjórnar, mun leggja
upp í dag.
Sýrlendingar hafa nýverið komið
fyrir sovézkum loftvarnabyssum í
Líbanon og hefur sú ákvörðun þeirra
mætt harðri gagnrýni ísraelsmanna.
Hafa menn jafnvel óttazt að styrjöld
kynni að brjótast út á milli Sýrlendinga
og ísraelsmanna í kjöifar átakanna í
Líbanon undanfarnar vikur.
Skærurá landa-
mærum Kfna og
Víetnam
Vietnamar hafa sakað Kínverja um
að hafa aukið hernaðaráreitni á landa-
mærum þjóðanna. Kínverjar hafa svar-
að slíkum ásökunum með því að full-
yrða að víetnamskar hersveitir hafi ráð-
izt inn í Fakashun fjallahéraðið og myrt
þar ótilgreindan fiöldamanna.
Talið er að sjónvarpseinvígi þeirra
Valery Giscard d’Estaing og Francois
Mitterrand, sem nú leiða saman hesta
sína í forsetakosningunum, muni hafa
minni áhrif á úrslit kosninganna næst-
komandi sunnudag en fyrirfram var
búizt við.
Síðustu skoðanakannanir, sem
leyfðar voru, sýndu að Mitterrand
hafði fylgi 51,5 prósent kjósenda en
forsetinn hafði 48,5 prósent fylgi. Sá
munur þykir þó tæpast marktækur
í ljósi þess að milljónir kjósenda höfðu
ekki gert upp hug sinn.
Sjónvarpseinvígið fór friðsamlega
fram og greinilegt var að báðir fram-
bjóðendurnir forðuðust að taka of
stórt upp í sig. Giscard hvatti Mitter-
rand til að svara því hvort hann hygðist
veita kommúnistum sæti í ríkisstjórn.
Mitterrand vék sér enn einu sinni
undan því að svara spurningunni beint.
Hann kvaðst mundu leysa upp þingið
og stjórna með aðstoð þess meirihluta
sem yrði til eftir kosningarnar.
Mitterrand gagnrýndi efnahags-
stefnu forsetans, sem hann sagði, að
hefði leitt til atvinnuleysis 1,7 milljónar
manna og 14 prósent verðbólgu. For-
setinn sagði að hann mundi leggja
höfuðáherzlu á að tryggja ungu fólki
atvinnu og sagði að áætlun sósíalista
um þjóðnýtingu og aukin ríkisútgjöld
mundi ríða efnahag landsins að fullu.
Möguleikarnir á sigri sósialista í
kosningunum á sunnudag virðast hafa
orðið þess valdandi að frankinn hefur
fallið og hefur ekki verið lægri gagn-
vart vestur-þýzka markinu í tvö ár.
Eiginkonu
Sutciiffes var
sparkað
Sonja Sutcliffe, eiginkona vörubif-
reiðarstjórans Peters Sutcliffe, sem er
fyrir rétti í London þessa dagana sak-
aður um að vera Yorkshire-morðing-
inn svonefndi, er ákaflega bitur. Hún
er bitur vegna þeirrar meðhöndlunar
sem henni þykir hún hafa hlotið af
hendi samfélagsins. Strax eftir að
eiginmaður hennar var handtekinn
og ákærður fyrir að vera Yorkshire-
morðinginn var henni sagt upp starfi
sínu sem kennsiukona í Bradford,
heimabæ þeirra hjóna.
Hún hefur nú ákveðið að leita rétt-
ar síns fyrir dómstólunum vegna
þessa máls. Skólayfirvöld í Bradford
neita því hins vegar að ástæðan fyrir
uppsögn hennar sé ákæran á hendur
eiginmanni hennar. Skólastjórnin
heldur því fram að einungis hafi verið
um að ræða nauðsynlega fækkun í
kennaraliði því sem var lausráðið.
Sonja Sutcliffe hefur mætt við rétt-
arhöldin yfir manni sínum þrátt fyrir
að henni hafi borizt beiðni frá honum
um að gera það ekki. Hún hefur setið
í dómsalnum án þess að sýna nokkur
svipbrigði.
Svo undarlega hefur borið við að
vinnuveitandi manns hennar hefur
ekki séð ástæðu til að segja honum
upp þrátt fyrir að hann hafi þegar
játaö á sig þrettán morð. „Sutcliffe
var góður starfsmaður. Ákæran á
hendur honum snertir starf hans ekki
neitt,” sagði vinnuveitandinn.
■ :
Hjónin Sonja og Peter Sutclilfe lifðu hamingjusöitHi jölskyldulifi. Nú hefur Peter
játað að vera sá morðiii"! Bretlands- sem mest hefur verið leitað . Yorkshire-
morðinginn. Hann ber þvi við að sér hafi ekki venú stalfrátt.
Mitterrand hefur ekki viljað svara því hvort hann taki kommúnista i rikisstjórn.
HAGSTÆÐUSTU
KAUPIN
í DAG. .