Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ1981. 11 ■v Vinnuslysið í Sandgerði: „UNGUNGUR A EKKIAB VINNA VIÐ SVONA VÉLAR” —segir Hjalti I. Þórðarson tæknif ræðingur hjá Vinnueftir- liti ríkisins „Hausingarvél þessi er reyndar af eldri gerð en þegar öryggisbúnaður var prófaður reyndist hann í lagi. Hitt er svo annað mál að þaö þarf fullfrískan karlmann til að mata þessa vél. Unglingur á ekki aö vinna við hana”, sagði Hjalti I. Þórðar- son, tæknifræðingur hjá Vinnueftir- liti rikisins í viðtali við DB í gær. Hann fór suður í Sandgerði, þegar Ragnhildur Guðmundsdóttir, 16 ára gömul stúlka úr Keflavík, slasaðist alvarlega á hendi í vinnu við haus- ingavél hjá Miðnesi hf. í Sandgerði 1 fyrramorgun. „Þetta er mikið áfall fyrir ungt fólk og alla, sem nærri standa,” sagði Bergur Sigurðsson, verkstjóri í Miðnesi hf. í viðtali við DB. „Við fylgjumst öll með því, hvemig til hefur tekizt um þessa miklu aðgerð. Allir vona það bezta,” sagði Bergur. „Hér koma auðvitað viðvaningar. Engin námskeið eru haldin í sam- bandi við þessi störf og engin starfs- þjálfun önnur en sú sem fæst með tilsögn samverkafólks og vinnuþjálf- un,” sagði Bergur. Hann kvað hausingavélina sem Ragnhildur slasaðist í vera orðna 20 ára gamla. Ekkert slys hefði komið fyrir í vinnu við hana allan tímann. „Ragnhildur var víst að losa fisk, sem stóð eitthvað á, og teygði sig þá fram fyrir sig. Þegar það er gert, á að stöðva vélina”, sagði Bergur verk- stjóri. Eins og fram kom í frétt DB í gær, er hausingavél í raun hraðgeng vél- sög, sem tætir sig í gegnum það, sem í hana kemur. Virðist svo sem sagast hafi yfir skáhallt handarbak á hægri hendi Ragnhildar. „Við héldum, að hún myndi halda þumalfingrinum”, sagði samstarfs- maður hennar, sem DB hafði tal af. „Annars var hún í gúmmihanzka og blóðið alveg voðalegt, svo það sást eiginlega ekkert, hvernig þetta var”, bætti vinnufélaginn við. „Það var mikið happ, að héraðs- læknirinn, Kjartan Ólafsson, skyldi einmitt vera staddur hér í Sandgerði, þegar þetta gerðist”, sagði Bergur Sigurðsson verkstjóri. „í hann náðist strax. Hann spelkaði þetta og setti í loftpoka og gekk frá eins vel og hægt var. Síðan var farið með hana til Reykjavíkur um leið og hann var búinn að þessu”. -BS. Höfuðstöðvar Miðness hf. i Sandgerði: hausingavélin hefur verið í notkun i tvo áratugi og ekki orðið slys við hana fyrr. f f f r ;i i a 5 ■ Elín Ingólf sdóttir, móðir Ragnhildar Guðmundsdóttur: Góðs von að f ing- umir era heitir Elin Ingólfsdóttir: „Óskaplegt að slikt skuli geta gerzt.” DB-mynd: Sig. Þorri. „Ég hringdi í hádeginu og þá var mér sagt að Ragnhildi liði vel, eftir því sem við er að búast eftir svona at- vik,” sagði Elín Ingólfsdóttir í gær. Elin er móðir Ragnhildar Guðmunds- dóttur, sextán ára stúlku sem varð fyrir því slysi í fyrradag að lenda meö hægri höndina í hausingarvél í söltunarstöð Miðness hf. í Sandgerði. Eins og fram kom í DB í gær tók vélin höndina nær af. Kjartan Ólafsson héraðslæknir var staddur í Sandgerði er slysið varð og kom hann þegar á staðinn og bjó um meiðslin. Stúlkan var síðan flutt til Reykjavíkur, þar sem Rögnvaldur Þorleifsson skurðlæknir gerði þá einstæðu tilraun hérlendis að freista þess að sauma höndina við aftur. „Ragnhildur var í aðgerð til kl. þrjú í fyrrinótt,” sagði Elín. „Hjúkr- unarfræðingur sá, sem ég talaði við, gat ekki sagt mér um horfur á því hvort aðgerðin tækist, en sagði það góðs von, að fingurnir á slösuðu höndinni eru heitir. Það bendir til þess að blóðrásin sé í lagi. Þetta lítur þvi óneitanlega betur út en í upphafi. „Þegar við hjónin komum á Borgarspítalann á mánudag, var Ragnhildur komin á skurðstofuna. Við gátum því ekkert annað gert en að fylgjast með.” Eiginmaður Elínar og faðir Ragnhildar er Guðmundur Þ. Jónsson í Keflavík. „Ragnhildur verður 17 ára í nóvember”, sagði móðir hennar. „Hún vann í tvo mánuði í Miðnesi í haust og hefur siðan unnið þar sam- — það bendir til þessað blóðrásin séílagi fleytt frá jólum. Hún hafði unnið af og til við þessa vél. Verkstjóri í Miðnesi sagði mér, að öryggiseftir- litið hefði athugað vélina eftir slysið og ekki fundið neitt athugavert. En það er óskaplegt að slíkt skuli geta gerzt”. Foreldrar Ragnhildar heimsóttu hana í gærkvöldi og var hún þá orðin vel málhress eftir hina miklu aðgerð, sem gerð var á henni. -JH. Barnaheimilið Ösp lokað frá síðustu mánaðamótum: Deilur f húsf élaginu um launa- hækkanir fóstranna —sextíu börn misstu dagvistun sína—Rey kjavíkurborg vill taka við rekstrinum en samstaða næst ekki í hússtjóm Um sextíu börn í Breiðholti og víðar hafa nú misst dagvistun sína þar sem barnaheimilið ösp, Asparfelli 10 hefur verið lokað frá mánaðamótum. Lokunin stafar af deilum sem risu um launahækkun fóstra hjá húsfélaginu. Barnaheimilið ösp er rekið af húsfélag- inu Asparfelli 2—12 með styrk frá Reykjavíkurborg. Fóstrur á Ösp hafa fengiö laun sem em einum flokki hærri en hjá fóstrum Reykjavikurborgar. Er ástæða þess viðtækara starfsvið þeirra. Asparfóstrur vildu fylgja kjarabaráttu Reykjavíkurborgarfóstra og sögðu þær því upp störfum frá og með 1. maí. Fóstrurnar, sem eru þrjár, lögðu fram samning við húsfélagið sem myndi gilda þar til fóstmr hjá Reykja- víkurborg hefðu samið. Hefði þá ekki komið til lokunar barnaheimilisins. Meirihluti húsfélagsins hafnaði samningnum sem fól i sér eins launa- flokks hækkun hjá hverri fóstru. Var öðru starfsfólki barnaheimilisins sagt upp í kjölfar þess. Þá óskaði foreldraráð barnaheimilis- ins eftir að húsfélagið gengi þannig frá málum að fóstrur gætu starfað áfram. Kom m.a. fram á fundi sem foreldra- ráð og fóstmr héldu að foreldrar væru reiðubúnir til aö greiða hærri dvalar- gjöld fyrir börn sín þannig að fóstmr gætu starfað áfram og fengið launa- hækkun. Minnihlutinn í stjórn húsfélagsins, það er einn maður, skrifaði síðan fréttabréf um gang barnaheimilisins þar sem kemur fram að mikill hagn- aður var af rekstri þess á sl. ári. Frétta- bréfiö var sett í alla póstkassa hússins. Meirihlutinn í húsfélaginu svaraði þessu bréfi strax þar sem segir að fóstrur sem starfi við barnaheimilið séu meira en einum launaflokki hærri en fóstrur hjá Reykjavíkurborg. Þá telur meirihlutinn að margar af fullyrðing- um Gisla Karels Halldórssonar sem rit- aði fréttabréfið séu rangar. Meirihlut- inn minnist einnig á að boð hafi komið frá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur um hugsanlega leigu á húsnæði Aspar Á meðan félagar i húsfélaginu þrasa sín á milli ríkir neyðarástand hjá for- Asparfell 2—12. Þar hafa staðið yfir miklar dcilur vegna barnaheimilisins, en fðstrur hættu þar störfum frá 1. mai vegna launadeilna. eldrum barnanna. Reykjavikurborg vill taka alfarið við rekstri barna- heimilisins, en samkomulag virðist ekki geta náðst í hússtjórn. Aðalfundur hefur verið boðaður eftir viku og vænta foreldrar að málin skýrist á þeim fundi. Þó er búizt við miklum deilum á þeim fúndi. Sagði einn íbúi hússins t.d. í samtali viö DB í gær að meirihlutinn væri ákveðinn í að leggja niður barna- heimilið. 'Væri það fyrst og fremst vegna þess að meirihlutinn í húsfélag- inu væri búinn að koma upp sínum börnum. -ELA. 24takaþátti námskeiði Munaðarnesi: Námskeið fyrir fólk sem áhuga hefur á að fara til hjálparstarfa erlendis stendur nú yfir á vegum Rauða krossins. Er það haldið i Munaöarnesi, orlofsbúðum BSRB í Borgarfirði. Námskeiðið hófst á mánudag og stendur það fram á miðjan föstudag. Kennt er allan daginn en á kvöldin fara fram umræðufundir. Þátttakendur eru 24 talsins á aldrinum frá 25 til RAUÐIKROSSINN MENNTAR FÓLK TIL HJÁLPARSTARFA fímmtugs Umsækjendur um þátttöku voru mun fleiri en unnt var að taka. Leiðbeinendur eru aðallega tveir menn; Rene Carillo og Francis Amar frá alþjóðaráði og alþjóðasambandi Rauða krossins. Áuk þeirra munu Eggert Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins, og Auður Einarsdóttir sjá um kennslu en einnig koma fjórir menn sem starfað hafa við hjálparstörf erlendis í heimsókn til að veita af reynslu sinni. Þeir eru Pétur Hlöðvers- son sem var í Úganda, Mik Magnússon sem var í Kenýa og Úganda, Magnús Hallgrimsson sem var f Indónesíu og Jóhannes Reykal sem var i Thailandi. Nokkru áður en námskeiðið hófst fengu þátttakendur gögn til að lesa heima. Allt lesefnið er á ensku en öll kennsla og umræður fara fram á þvi máli. Nemendum er kennt að sinna hjálparstörfum á svæðum þar sem ófriður eða önnur óáran ríkir, svo sem flóð, jarðskjálftar, eldgos eða hungurs- neyð. Sérstaklega er farið vel í allar reglur og reglugerðir sem snerta starf- semi Rauða krossins, þar á meðal Genfar-sáttmálann . -KMU.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.