Dagblaðið - 06.05.1981, Side 28
frjálst, úhád dagblað
MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1981.
Belgíski togarinn Henri
Jeanne:
Dreginn út á
trollvírunum
Belgiski togarinn Henri Jeanne, sem
strandaði á sandeyri í Vestmannaeyja-
höfn í gærmorgun, náðist á flot á sjötta
tímanum í gærdag. Hinn belgíski tog-
arinn, Pelagus, dró Henri Jeanne út á
trollvírunum.
Pelagus var bundinn við bryggju og
voru trollvírar hans settir í Henri
Jeanne. Spilið var síðan sett á fullt og
hafðist Henri Jeanne þá út, að vísu
með þjarki. Lóðsinn aðstoðaði.
Henri Jeanne var kominn nokkuð
langt upp á sandeyrina því á fjöru stóð
hann nær allur upp úr. Rétt þar hjá
sem hann strandaði er verið að byggja
skipalyftu og sögðu menn í gríni að
Henri Jeanne hefði ætlað sér að verða
fyrstur til að nota hana.
-KMU/FÓV, Vestmannacyjum.
Góð kaup gerð
á listaverka-
uppboði
Það er áreiðanlegt að margir gerðu
góð kaup á myndverkauppboði því sem
haldið var á vegum Styrktarfaags Sogns
að Hótel Sögu i gærkvöldi. Indriði G.
Þorsteinsson bauð upp tæp 60 verk sém
ýmsir vinir Sogns höfðu safnað og
listamenn gefið. Hæst verð var greitt
fyrir málverk eftir Gunnar örn
Gunnarsson eða 4500 kr., þar næst
fengust 4000 krónur fyrir pastelmyndir
eftir Jóhannes Geir og Hring Jóhannes-
son.
Mörg verk fóru á óvenjulega lágu
verði, m.a. nýleg grafík eftir Jón Reyk-
dal (600 kr.) og myndir með blandaðri
tækni eftír Jóhannes Jóhannesson
(2000 & 1200 kr.), málverk eftir
Kristján Davíðsson (2200 kr.) og loks
vatnslitamynd frá 1958 eftir Þorvald
Skúlason (2000). -AI.
Lögleysa að ríkið
notiekkiaura
ígreiðslum
— Fjármálaráðherra
svarafátt
Ragnar Arnalds gat ekki nefnt hvar í
lögum þau fyrirmæli Ríkisbókhaldsins
ættu stoð að nota ekki aura í greiðslum
af ríkisins hálfu, m.a. við uppgjör
launa og við greiðslu tryggingabóta og
lífeyris frá Tryggingastofnuninni.
Um þessa lögleysu hafði Eiður
Guðnason (A) gert fyrirspurn á þingi.
Ráðherrann vísaði tíl og las svar við
fyrirspurn Matthíasar Á. Mathiesen á
sl. hausti um notkun aura í greiðslum
ríkisins.
Sagði ráðherrann m.a. að afar dýrt
væri að breyta tölvukerfum þannig að
þar yrði aftur rúm fyrir kommu. Þess
vegna hefði þessi leið verið valin.
Eiður kvað það lélega afsökun að af-
saka sig með kostnaði við tölvubreyt-
ingu. Sá kostnaður hefði verið jafn
réttlætanlegur og annar við gjaldmið-
ilsskiptin.
,,Það sýnir ekki mikla trú ráða-
manna á gjaldmiðlinum þegar ráðherra
segir: „Þverrandi gildi aura á verð-
bólgutímum hvetur tíl að dregið sé úr
notkun aura”,” sagði Eiður.
-A.St.
Lítið fer fyrir kynslóðabilinu i áhöfn trillunnar sem hér sést róið í smábátahöfninni
i Hafnarfirði á dögunum. Nú fer i hönd uppáhalds árstími smábátaeigenda. Þá
sjósetja þeir fleyin sin og halda til hafs, ýmist til skemmtisiglingar eða til að renna
færi i sjó. Vonandi að viðri vel á þá í sumar ekki síður en landkrabbana.
DB-mynd: Magnús Hjörleifsson
Hóf munnlegt próf í læknisf ræði með 30 jarðfræðinema viðstadda:
LÆKNISFRÆÐIPRÓFESSORINN
NÁNAST HENTISIGURDIÚT
— segir einn jarðf ræðinemanna sem urðu vitni að makalausri uppákomu
íHáskólanumígær
„Við, þrjátíu jarðfræðinemar,
urðum vitni að því er Þorkell
Jóhannesson læknisfræðiprófessor
hreinlega hentí Sigurði Þórarinssyni
prófessor í jarðfræði út úr kennslu-
stund í gær,” sagði jarðfræðinemi í
viðtali við DB í gær.
„Við jarðfræðinemarnir vorum í
kennslustund hjá Sigurði í aðalbygg-
ingu háskólans, en i þessari kennslu-
stofu höfum við verið lengi. Þegar
kennsla var hafin, kom Þorkell inn
með þjóstí og sagðist eiga að vera í
munnlegu prófi í þessari stofu og
hafa til þess leyfi. Sigurði varð svara-
fátt og þá rak Þorkell bréf framan í
hann og sagðist hafa leyfi tíl að vera
þarna í tvo daga. „Reglur eru
reglur,” sagði Þorkell.
Sigurður bað hann að bíða, þar
sem hann ætlaði að ná í kennslu-
stjóra háskólans. Þorkell varð þó
ekki við þvi, heldur ruddi öllum
gögnum Sigurðar út í horn og hóf
þegar munnlegt próf, með próf-
dómara og kallaði fyrsta læknanem-
ann inn til próftöku. Hann byrjaði
síðan að prófa læknanemann með
alla jarðfræðinemana fyrir framan
sig. Það upphófust þegar mikil lætí,
þannig að vart heyrðist tíl próf-
manns, en alls áttí að prófa þrjá
læknanema.
Við jarðfræðinemarnir gengum
síðan út úr stofunni og fórum í aðra
stofu þar sem kennslu var haldið
áfram. Við komum siðan öll saman
eftír kennslu og sendum háskólaráði
bréf, þar sem við mótmæltum yfir-
gangi og frekju Þorkels er hann henti
Sigurði út. Það hefði verið í lagi að
fara í aðra stofu, en Sigurður varð
hvumsa vegna framkomu læknis-
fræðiprófessorsins. Það var nóg af
lausum stofum í grenndinni. Það er
makalaust að slíkt skuli geta gerzt,”
sagði neminn.
-JH.
diet pepsi
MINNA EN EIN
KALÓRÍA í FLÖSKU
Saniliis
Keflavík:
Lögreglan kærír
sjukrahúslækni
fyrír ölvun í starfi
— Rannsóknarlögregla ríkisins hef ur nú málið til meðferðar
Rannsóknarlögregla rikisins hefur
nú tíl meðferðar kæru frá lögregl-
unni I Keflavík á hendur sjúkrahús-
lækni við sjúkrahús Keflavíkur. Að-
dragandi málsins mun vera sá, eftir
því sem DB kemst næst, aö þegar lög-
reglumenn voru að koma með sjúkl-
ing á sjúkrahúsið fyrir skömmu hafi
læknirinn, sem var við störf, veriö
alldrukkinn.
Til nokkurs æsings kom á sjúkra-
húsinu meðai læknisins og lögreglu
sem endaði með því að hringt var til
héraðslæknis og hann beðinn að
koma á staðinn. Lögreglan tók síðan
skýrslu af lækninum sem síðan var
send bæjarfógetanum i Keflavík.
Bæjarfógetínn mun siðan hafa sent
málið til RLR. Hallvarður Einvarðs-
son rannsóknarlögreglustjóri sagði i
samtali við DB í gær að málið yröi
skoðaö strax i dag en þaö barst ekki
RLR fyrr en i gær.
Steinþór Júliusson bæjarstjóri i
Keflavik sem jafnframt situr í stjórn
sjúkrahússins ságði í gær að stjómin
hefði ekkert rætt um þetta máL
heldur biöi úrskurðar frá Rannsókn-
arlögreglunni.
„Við teljum enga ástæöu til að
gera neitt í málinu fyrr en læknirinn
hefur verið yftrheyrður og þá að sjá
hvort ástæða hafi verið til að kæra
manninn. Héraðslæknirinn mun
væntanlega verða vitni í málinu,”
sagði Steinþór. Hann bættí við að
engar kvartanir hafi borizt til stjórn-
arinnar út af þessum lækni sem hefði
starfað við sjúkrahúsið í mörg ár.
-ELA.