Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1933, Page 75
ferðin átt rétt á sér, þar sem eigi verður séð, að hún
þurfi að valda varanlegu tjóni á sáðsléttunum.
3. Samanburður á misnmmandi aðferðum við að fella
niður grasfræ.
Árið 1931, var gerð dálítil tilraun með samanburð á
mismunandi aðferðum við að herfa niður grasfræ, en
af því þessi tilraun var mjög ófullkomin, þótti ekki
örugt að treysta þeim niðurstöðum, er hún sýndi, og
var því byrjað á nýrri tilraun árið 1932. I tilraunum
þessum, hafa verið bornar saman 4 mismunandi að-
ferðir við sáningu og herfingu grasfræs, og eru þær
þessar:
1. Grasfræið ekki herfað niður, en aðeins valtað.
2. Grasfræið hrífað niður með garðhrífu, eða herfað
með léttu tindaherfi og valtað.
3. Grasfræið herfað niður með lítið skektu diska-
herfi og valtað.
4. Valtað á undan sáningu, grasfræið herfað niður
með diskaherfi og valtað.
í eldri tilrauninni var notuð venjuleg grasfræblanda,
en í þeirri síðari var bæði notuð venjuleg grasfræ-
blanda og fræblanda með 50% af smára. Sjá töflu
XXXVI.
Eftir tilraununum að dæma, virðist tvímælalaust
betra að herfa grasfræið nixhir, heldur en að láta völt-
unina eina nægja, og er í því sambandi ástæða til að
benda á, að litið skekt diskaherfi er mjög vel nothæft
til að herfa niður grasfræið. Sé um lausan og vel unn-
inn jarðveg að ræða, má þó aðeins skekkja herfið
mjög lítið og alls ekki þyngja það, og er þá best að
keyra herfið greitt yfir flagið.
í tilraununum virðist völtun á undan sáningunni
engan árangur hafa borið, þó er ekki útilokað, að