Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1933, Page 95
99
Sú nefnd boðaði fulltrúafund á Blönduós 10. marz
1928 og komu þar fáeinir menn, er kusu nýja nefnd
til undirbúnings málinu. Voru í henni þeir: Hafsteinn
Pétursson á Gunnsteinsstöðum, Jón Pálmason á Akri
og Sigurgeir Björnsson á Orrastöðum.
Að tilhlutun þeirrar nefndar, var haldinn fulltrúa-
fundur á Blönduósi 8. apríl sama ár og svo 14. desem-
ber næst á eftir, og var það stofnfundur sambandsins,
sem þá var ákveðið að næði í bráðina aðeins yfir
Austur-Húnavatnssýslu- Á stofnfundi sambandsins
voru mættir 13 fulltrúar frá 7 búnaðarfélögum í sýsl-
unni og gengu þau öll í sambandið á fundinum. Bún-
aðarfélag Svínavatnshrepps sendi engan fulltrúa á
fundinn, en gekk í sambandið snemma á árinu 1929.
Á stofnfundi voru samþykkt lög fyrir sambandið og
kosin stjórn þess. Þar var mikið rætt um framtíðar-
starfsemina og gerðar ráðstafanir til framkvæmda á
næsta ári, er einkum gengu í þá átt, að auka jarðrækt-
ina sem mest.
Vesturdeild Búnaðarsambands Húnavatnssýslu var
stofnuð á fulltrúafundi á Stóra-ósi 5. júlí 1931. Voru
þar mættir fulltrúar frá öllum búnaðarfélögum í Vest-
ur-Húnavatnssýslu, nema búnaðarfélagi Kirkju-
hvammshrepps. Einnig mætti þar formaður sambands-
ins í Austur-Húnavatnssýslu, Jón Pálmason á Akri.
Á þessum stofnfundi Vestur-deildarinnar, voru sam-
þykt lög fyrir deildina og kosin stjórn hennar. Einnig
undirbúin lög fyrir aðalsambandið. Hafði Jakob H.
Líndal á Lækjamóti áður undirbúið lögin og boðað
fundinn, í samráði við formann sambandsins.
Eins og lög sambandsins bera með sér, er skipulagi
þess nokkuð á annan veg háttað, en annara sambanda
í Norðlendingafjórðungi- Aðal starfsemi og fjárráð
7*