Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1933, Page 124
128
ínæla matjurtagarða á sambandssvæðinu síðastliðíð
sumar, og er stærð þeirra hér samkvæmt þeim mæl-
ingum.
2. Skinnaverkim.
Stjórn sambandsins ákvað síðastliðið vor, að sam-
bandið beitti sér fyrir því, að íslensk skinn ýmiskonar
yrðu meira notuð af bændum og öllum almenningi á
sambandssvæðinu, til fata og annara heimilisþarfa,
en nú er gert. Ennfremur að verja til þess nokkru af
aukastyrk Búnaðarfélags íslands. — Til þess að hrinda
þessu áleiðis, ákvað sambandsstjórnin að ráða Pál
Jónasson frá Hróarsdal til þess, að kynna sér skinn-
sútun ýmiskonar. Að afloknu námi á hann að leiðbeina
bændum á sambandssvæðinu um skinnaverkun. Hefir
Páll stundað nám hjá Bergi Einarssyni sútara í
Reykjavík nú um nokkra hríð, og hefir til þess styrk
frá sambandinu.
3. Steypusteinar og steinamót.
Húsabyggingarmálið er að verða eitt af mestu
vandamálum bænda. Húsin verða of dýr, ef þau eru
bygð úr varanlegu efni. Steinsteypan verður dýr, af
því vinnan við hana fer fram á mesta annatíma árs-
ins. Ennfremur liggur mikið verð í allskonar mótavið.
í tilefni af þessu, ákvað stjórnin að fela Páli Jónas-
syni að kynna sér sérstaklega steinsteypu og stein-
steypumót, er helzt gætu komið almenningi að notum.
Vann Páll um tíma síðastliðið haust að steinsteypu hjá
Pípugerð Reykjavíkur, og kynti sér þetta efni eftir
föngum. Sambandið hefur nú fest kaup á tvennskonar
steypumótum til af nota fyrir þá, er vildu reyna þessa
aðferð og nota ódýran tíma til þessara starfa.