Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1933, Page 131
135
hefði verið lögð á að auka framleíðslu garðávaxta í
héraðinu og samkvæmt skýrslum, er nú lægju fyrir,
hefði uppskeran tvöfaldast, miðað við næsta ár á
undan.
í tilefni af tillögu, er síðasti aðalfundur samþykti
um varahluti í dráttarvélar, gat formaður þess, að
stjórnin hefði þrautreynt, en árangurslaust, að fá um-
boðsmenn dráttarvélanna til þess að hafa varahluti til
þeirra fyrirliggjandi í héraðinu.
Um starfsemi félagsins urðu talsverðar umræður,
sérstaklega um útsæðiskartöflur þær, er stjórnin út-
vegaði á síðastliðnu vori og þóttu hafa reynst mis-
jafnlega. Undir þeim umræðum kom fram svohljóð-
andi tillaga:
»Fundurinn ályktar að fela búnaðarfélögum í sam-
bandinu að hafa á hendi árlega skýrslugerð um fram-
kvæmdir í garðrækt, eftir þeim fyrirmyndum, er sam-
bandsstjórnin leggur fyrir«. — Tillagan samþykt með
öllum greiddum atkvæðum.
2. Þá las formaður upp reikninga sambandsins fyrir
árið 1932 ásamt athugasemdum endurskoðenda, sem
hann svaraði og upplýsti um leið fyrir fundinum, enda
höfðu þær ekkert snert reikningsfærsluna.
Umræður um reikningana urðu litlar og í sambandi
við þær báru endurskoðendur fram svohljóðandi á-
lyktun:
»Framanskráðum athugasemdum endurskoðenda er
algerlega fullnægt með munnlegu svari formanns bún-
aðarsambandsins«.
Ályktunin og reikningarnir því næst uppborið og
samþykt í einu hljóði.
3. Stjórnarnefndarmaður Sigurður Þórðarson, las
upp frumvarp stjórnarinnar til fjáhagsáætlunar fyrir
árið 1933 og skýrði það lið fyrir lið, og var það því