Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1933, Síða 132
136
næst tekið til umræðu ásamt tillögum þeim, er stjórn-
in bar fram því viðvíkjandi. Stungið var upp á, að b.-
liður dagskrárinnar — um framtíðarstarfsemi félags-
ins — yrði ræddur jafnframt áætluninni. Var það
samþykt.
Hófust því næst umræður um ýmsa liði áætlunar-
innar og starfseminnar og er þær höfðu staðið til kl.
3, var þeim frestað.
Þá flutti ráðunautur sambandsins, Vigfús Helgason,
fyrirlestur um garðyrkju og í sambandi við það, voru
sýnd helstu handverkfæri við garðyrkju og útskýrði
fyrirlesarinn til hvers hvert þeirra þénaði.
Að loknu erindi var það þakkað með lófataki.
Þegar hér var komið var gengið til sameiginlegrar
kaffidrykkju á »Hótel Tindastólcc.
Að því loknu var fundur settur og bornar upp þess-
ar tillögur frá stjórn sambandsins viðvíkjandi fram-
tíðarstarfseminni:
a. »Með því að stjórn búnaðarsambandsins er kunn-
ugt um það, að ýmsum meðlimum þess þykir tilfinn-
anlega hátt sambandstillagið, en hinsvegar er vitað,
að ef það er lækkað, þá mundi sú lækkun, ef til vill,
verða þess valdandi, að Búnaðarfél. Isl. dragi úr styrk-
veitingu sinni til sambandsins, þá ályktar fundurinn
að leggja til, að á þessu ári sé varið allt að 500 kr. til
þess að kaupa útsæðiskartöflur, og úthluta þeim ó-
keypis til búnaðarfélaganna í réttum hlutföllum við
meðlimatölu þeirra. Skulu stjórnir búnaðarfélaganna
útbýta þeim til aukinnar kartöfluræktar og sérstak-
lega til þeirra manna, sem eru að byrja ræktun jarð-
epla.
b. »Fundurinn ályktar að fela stjórn B. S. S., að
tryggja sambandsfélögunum útsæði til kaups tíman-
lega á næsta vori eftir pöntun þeirra. úfsæðið sé af-