Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1933, Page 145
149
lands, að beita sér fyrir því, nú þegar Alþingi kemur
saman, að þessu sé tafarlaust breytt í hið fyrra horf.«
Umræður litlar. Tillagan samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum.
c. »Aðalfundur Bs. Eyj. skorar á Bf- ísl., að taka upp
aftur búnaðarfræðslu með námskeiðahaldi, á svipaðan
hátt og áður var, og lítur svo á, að búnaðarfræðsla sú,
sem nú er framkvæmd með tilstyrk útvarpsins, komi
eigi að tilætluðum notum«.
Samþ. með öllum greiddum atkv.
d. »Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar óskar
eindregið eftir, að næstu Búnaðarþing hlutist til um:
1. Að skuldir þær, sem hin einstöku búnaðarfélög
innan sambandsins hafa stofnað til með lántökum úr
Vélasjóði íslands, til þess að kaupa dráttarvélar og
tilheyrandi verkfæri til jarðvinslu, verði ekki krafðar
inn samkvæmt gildandi samningum, heldur verði fé-
lögunum veittur alt að 5 ára gjaldfrestur á eftir-
stöðvum lánanna, enda séu þá skuldir þessar trygðar
með bakábyrgð viðkomandi hreppsfélags.
2. Að vextir af ofangreindum lánum séu færðir nið-
ur í 3 af hundraði.
3. Að lánssamningunum sé breytt þannig, að árs-
afborganir lánanna verði færðar niður um helming og
lánin þar af leiðandi greiðist á lengri tíma«.
Samþykt með öllum greiddum atkvæðum.
9. Formaður Sambandsins flutti erindi um störf bún-
aðarfélaga og búnaðarmál, og urðu út af því nokkrar
umræður.
Fleira ekki fyrir tekið. Fundi slitið.
Ólafur Jónsson.
Halldór Guðlaugsson.
Tryggvi Konrdðsson.