Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 6

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 6
KARL ARNGRÍMSSON: Fyrsta bændanámskeiðið á íslandi. Þeir Steindór Steindórsson yfirkennari og Ólafur Jóns- son ráðunautur, fóru fram á það við mig að ég gerði stutta grein fyrir tilhögun þeirri, er höfð var á hinu fyrsta bænda- námskeiði, sem hadið var á íslandi, en það var við Bænda- skólann á Hólum í Hjaltadal veturinn 1903. Þetta vil ég reyna, en verð að hafa svolítinn formála fyrir þessu. Haustið 1902 kom Sigurður Sigurðsson frá Draflastöðum að Hólaskóla og tók þar við skólastjórn. Vorið áður höfðu útskrifazt 4 nemendur. — Það virðist því hafa verið lítil aðsókn að skólanum um þessar mundir, — en þennan fyrsta vetur Sigurðar vorum við skólapiltar 12 og þann næsta 43. Ég verð að geta þess, því það var nýtt í skólalífinu, að eftir þriggja vikna kennslu um haustið fór Sigurður með okk- ur í ferðalag um nærsveitir Hóla og vorum við í því ferða- lagi í tvo daga. Sigurður var leiðbeinandi okkar og fræðari á þessu ferðalagi. Við áttum að koma við á sem flestum heimilum, fá að skoða búskapinn, kvikfénað allan og fá upplýsingar um hvað hver búgrein gæfi mikið af sér. Enn fremur fá upplýsingar um jarðabætur á hverri jörð, heyafla o. fl. Áttum við svo hver og einn að semja ritgjörð og gefa skýrslu um ferðalagið. Síðan átti okkar ágæti íslenzkukenn- ari, prófastur Zóphónias Halldórsson, að yfirfara þessi verk okkar. Þetta var nú nýjung þá. Við vorum allir gangandi og þótti þetta fríður flokkur, er sást til ferða okkar um sveitina. Alls staðar fengum við ljúfmannlegar viðtökur og var ánægjulegt að koma á heimilin, þó ekki væri þar um

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.