Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 8
72
Tilhögun öll og kennsla var sú sama og á hinu fyrra náms-
skeiði. Fara hér á eftir nöfn þeirra, er sóttu bæði þessi náms-
skeið:
1. Kristján Jónsson frá Nesi, Fnjóskadal.
2. Bjöm Jóhannsson frá Skarði, Dalsmynni.
3. Flólmfríður Sigtryggsdóttir, Framnesi, Skagafirði.
4. Hallfríður Jónsdóttir, Skriðulandi, Kolbeinsdal.
5. Stefán bóndi Eiríksson, Refsstöðum, Laxárdal.
6. Guðrún Árnadóttir, Reykjum, Skagafirði.
7. Sigríður Jónsdóttir frá Hafsteinsstöðum, Skagafirði.
8. Jónína Sveinsdóttir frá Fjalli, Sæmundarhlíð.
9. Ólafur Jónsson frá Stafni í Svartárdal.
10. Þorvaldur Þorvaldsson frá Hvammi, Ytri-Laxárdal.
11. Herdís Bjarnadóttir frá Reykjum, Hjaltadal.
12. Gunnar Sigurðsson frá Fossi á Skaga.
13. Sigurbjörg Pálsdóttir frá Bústöðum, Austurdal.
14. Sigurbjörg Jónsdóttir frá Ásgeirsbrekku, Skagafirði.
15. Lilja Gísladóttir frá Neðra-Ási, Hjaltadal.
16. Þórey Magnúsdóttir frá Sléttubjarnarstöðum.
17. Elísabet Guðmundsdóttir frá Mjóadal, Laxárdal.
18. Baldvin búfræðingur Friðlaugsson, Húsavík.
19. Jórunn Sæmundsdóttir frá Felli, Sléttuhlíð.
20. Sigurður Sigurðsson, hreppstj., Halldórsstöðum, Kinn.
Þetta kann nú að þykja óþarfur formáli, en Halldór á
Hvanneyri sagði mér, að hann teldi Sigurð brautryðjanda
og föður að þessum námsskeiðum, sem hann hélt á Hólum
þennan fyrsta vetur, er hann var þar skólastjóri.
Þá kem ég að því námsskeiðinu, sem ég ætlaði að lýsa
með nokkrum orðum. Þessi bændafundur var auglýstur í
blöðum og var ákveðið, að hann stæði yfir í tvær vikur. Það
sóttu fleiri en að komust. Þessi fundur var svo kallaður
bændanámsskeið, og var það haldið á tímabilinu 14,—30.
marz 1903. Þennan tíma dvöldu á Hólum 32 bændur og