Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Síða 10

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Síða 10
74 26. Björn Jónasson, Reykjum, Hjaltadal. 27. Ástvaldur Jóhannsson, Reykjum, Hjaltadal. 28. Gísli Þorfinnsson, Hofi, Hjaltadal. 29. Ásgrímur Gíslason, Hofi, Hjaltadal. 30. Gunnlaugur Jónsson bóndi Víðinesi. 31. Sæmundur Sigfússon, Kambi, Hofshreppi. 32. Haraldur Sigurðsson, Hvammi, Hjaltadal. Meðan bændanámsskeiðið stóð yfir var kennslu hagað þannig: Skólapiltar höfðu tíma frá kl. 8 að morgni til kl 12. Eftir matmálstíma hófust tímar með bændanámsskeiðs- mönnum, og stóðu þeir í fjórar stundir. Þá var kaffitími. Þá kom leikfimistími, sem allir tóku þátt í og var þar mikil glaðværð á ferðum. Sigurður skólastjóri kenndi sjálfur leik- fimina og urðu allir að taka þátt í henni, ungir sem gamlir. Kennslan fór annars fram í fyrirlestrum, er kennarar skól- ans fluttu, og setti skólastjóri það upp, að allir hefðu skrif- föng til að skrifa hjá sér það markverðasta, sem þeir vildu sérstaklega muna. Þegar kvöldverði var lokið var boðað til kvöldfundar og hófst hann ævinlega með söng og endaði með söng. Á þessum kvöldfundum var rætt um allt milli himins og jarðar. Svo gerði skólastjóri það að skyldu, að einn bændanámsskeiðsmaður úr hverri sveit héldi fyrirlest- ur, og átti hann að lýsa búnaðarháttum síns byggðarlags. Fylgt var föstu formi um þetta, og man ég nú ekki nema lítið af því. Fyrirlesarinn átti t. d. að skýra frá því, hvað ærin mjólkaði mikið, hvað sauðir væru þungir, hvað miklu fóðri væri eytt í búfénaðinn, hvað miklar jarðabætur væru gerðar og hvar væru stærstu búin og heyskapur mestur. Mörg þessi erindi voru ágæt og fróðleg og væri bæði gagn og gaman að hafa nú eitthvað í höndunum af þeim. Aldrei mun kvöldfundum hafa lokið fyrr en um mið- nætti, og mátti þá segja, að það væri búið að nota daginn vel. Þetta þætti mikið áframhald í skóla nú. Með öðrum

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.