Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Qupperneq 11

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Qupperneq 11
75 orðum, allan daginn skiptust á fyrirlestraflutningur, leik- fimi, söngur og umræðufundir. Erindin, sem flutt voru á þessu námskeiði, voru um gras- rækt, garðyrkju, skógrækt, áburð, jarðfræði, búfjárfræði, mjólkurfræði, búreikninga o. fl. misjafnlega mörg í hverri grein. Þá var margt rætt á kvöldfundum þessa búnaðarnáms- skeiðs. Langar umræður man ég að urðu um fóðurbyrgða- málið, og var talið, að allt til bóta í þeim efnum þyrfti að koma frá bændunum sjálfum, en ekki með valdboði. Enn fremur var rætt um hvað gera þyrfti til að bæta afkomuna, stækka og rækta túnin og græða skóg, en þá voru engin verkfæri til stórræða, engar sláttuvélar, engar rakstrarvélar, hvað þá önnur þau stóru jarðyrkjuverkfæri, sem nú eru notuð. Ekkert var tiltækt nema orfið, hrífan og spaðinn. Eftir nokkra kvöldfundi, kom sá fundurinn, sem ég tel að hafi borið mestan árangur á þessu námsskeiði, en hann fjallaði um stofnun Ræktunarfélags Norðurlands. Þar voru allir samhentir og lifandi áhugi fyrir því að hefja tilrauna- starfsemi í jarðrækt og skógrækt fyrir allt Norðurland, og á einum fundinum var hafin fjársöfnun fyrir þetta nýstofn- aða félag, með almennum samskotum. Það þættu ekki stór- ar upphæðir nú, sem þar voru lagðar fram, en margt smátt gerir eitt stórt. Það var mikið rætt um hvar þessi tilrauna- starfsemi ætti að vera. Skagfirðingar vildu að hún yrði hafin á Hólum, en skólastjóri hélt, að réttast væri að hún yrði við Akureyri, ef þar fengist land til þessa, enda varð það ofan á, sem líklega hefur verið rétt ráðið. Sigurður hélt því fram, að þó aðalstöðin yrði á Akureyri þá þyrfti að hafa smástöðvar út um land. Á þessu bændanámsskeiði var svo ákveðið að hefja framkvæmdir á næsta vori og var þá rætt um það, að skólapiltar frá Hóum fengju þar verklega kennslu og geta þeir, sem koma í Gróðrarstöð Ræktunarfél. nú eftir 54 ár, séð árangurinn af því byrjunarstarfi.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.