Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Qupperneq 21

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Qupperneq 21
85 nokkur eitt árið, en annað árið eða eftir fáein ár, lítill eða enginn, er örðugt eða ógerlegt að afla vörunni góðs eða ör- uggs markaðar, og sá markaður, er unnizt hafði fyrir kinda- kjöt meðan við fluttum út reglulega nokkurt magn af því, tapaðist auðvitað er útflutningur þess hætti og hefur ekki unnizt aftur, enn sem komið er og næst trauðla, nema um nokkuð árvissan útflutning verði að ræða. Að svo verði er ekki líklegt, og því á þjóðfélagið aðeins um tvennt að ræða, að greiða tiltölulega háar útflutningsuppbætur á kúfinn af þessari framleiðslu og tryggja þannig nokkuð vörumagn tii næstu ára handa hraðvaxandi fólksfjölgun, eða stuðla að samdrætti framleiðslunnar, er kúfnum nemur, er mundi hafa í för með sér skort á henni til innanlandsþarfa áður en varir. Niðurgreiðslur og útflutningsuppbætur. iÞegar við blasir sú staðreynd, að greiða verður mjög háar útflutningsuppbætur á einhverja vöru, til þess að ná hlið- stæðu verði og á innlendum markaði, hlýtur að vakna sú spurning, hvort eigi sé gerlegt að auka neyzluna innanlands er útflutningnum nemur? Og því eðlilegri er þessi spurn- ing, sem útflutningurinn er minni og óverulegri. Nú er svo ástatt með mjólkurkúfinn, að ráðgerður er útflutningur á 150 tonnum af 45% feitum osti í ár, en verðlagi erlendis mun þannig háttað, að til þess að innlnlands-markaðsverð náist, þarf sennilega að greiða á þennan ost þrjár millj. króna í útflutningsuppbætur. Á innlendum vettvangi eru mjólkurvörur niðurgreiddar svo sem kunnugt er, þar á með- al smjör, líklega um 24 kr. kg, að svo miklu leyti sem það hefur áhrif á vísitöluna, eða 3V<> kg á mann árlega. Sam- kvæmt þessu ætti niðurgreitt smjör að nema 550 smálestum, en smjörframleiðslan mun vera nálægt 750 smálestum. Að- eíns tvær vörur eru nú skammtaðar hér, smjör og smjörlíki,

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.