Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 25
89
500 km siglingu, frá Vancouver, við lítið löndunarþorp,
Bella Cola, yfirgaf hann skipið og hélt tafarlaust fótgang-
andi inn í fjalllendið. Eftir 65 km göngu kom hann til
smáþorpsins Atnarko, sem með sína sex íbúðarkofa stóð á
útjaðri fastrar búsetu. Þar frétti hann hjá veiðimanni ein-
um, Frank Ratcliff að nafni, að lengra inn á milli skógi-
vaxinna fjalla væri snoturt vatn í Atnarko-árdalnum. Hrólf-
ur fékk Frank til þess að vísa sér á vatnið, og á fögrum
októberdegi var lagt upp í þann leiðangur. F.ftir tveggja
daga erfiða ferð um illfærar vegleysur komu þeir upp á
fjallsegg og Frank benti í norður, og þá leit Hrólfur hið
fyrirheitna land í fyrsta sinn. Þarna lá Vatnið einmana milli
brattra, skógi þaktra hæða, er teygðu sig upp eftir hinum
mikla fjallgarði. í þessum fagra dal var fuglalíf mikið og
sennilega gnægð af fiski í vatninu, og Frank fullvissaði
Hrólf um, að þarna væri gnægð alls konar veiðidýra, og er
þeir höfðu tjaldað þarna við vatnið og gengið til náða
fann Hrólfur þögn og kyrrð óbyggðarinnar ljúkast um sig.
Honum fannst hann vera í geysimikilli, tómri dómkirkju
og hann varð gagntekinn af friði og hrifningu, er aldrei yfir-
gaf hann síðan.
Næsta morgun skoðuðu þeir dalinn. Jarðvegurinn var
mikill og góður, en landið var allt þakið stórskógi, Cedrus-
viði og Doglasfuru, og voru sum trén um 2.5 m í þvermál,
en niðri við vatnið uxu birki og víðir og bönduðu gulum
haustgreinum við sígrænt lim barrtrjánna. Skammt undan
gnæfði tindur fjctllsins Walker í 2100 m hæð yfir dalinn.
„Við þurfum ekki að skoða meira,“ sagði Hrólfur. Að
geta slegið eign sinni á 160 ekrur (64—65 ha) af þessu auð-
uga, fagra landi, var í hans augum eins og að hafa fundið
paradís á jörðu.
Hver var þessi Hrólfur Eðvarðs? Osköp venjulegur mað-
ur, 21 árs að aldri, er hafði ásett sér að ryðja og rækta nýbýli
í skógivöxnum óbyggðum Norður-Ameríku. Sautján ára