Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Page 27

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Page 27
91 opnaðist ofurlítill gluggi upp í gegnum skógarþykknið, upp í heiðríkju himinsins. Meðan veturinn leið að lokum, dvaldi Hrólfur þarna aleinn og aldrei hafði hann kynnzt þvílíkri einveru. Hvern dag vann hann þar til hann var kominn að niðurfalli af þreytu, og á hverju kveldi einbeitti hann huganum að störf- um morgundagsins, þar til hann féll í fasta svefn og hann lærði skjótt, að þrotlaust starf og erfiði lét einveruna gleymast. Þegar vorið kom og vötn leysti hafði Hrólfur rutt dálítið aflangt, ferhyrnt svæði við lítinn læk, þar sem hann nefndi bæjarvík. Með löngum vogastöngum hafði honum tekizt að fjarlægja nokkrar trjárætur og gera garðholu og sá þar nokkru af grænmeti, en til varnar grábjörnum og dádýrum hafði hann gert stauragirðingu um blettinn. Því næst hélt hann til Bella Cola, þar sem hann vann sumarlangt til þess að geta aflað sér nýrra byrgða til vetrardvalar við Vatnið einmana. Það verður nú að fara fljótt yfir sögu. Næstu árin vinnur hann aleinn að búgarði sínum á veturna, en leitar sér at- vinnu annars staðar á sumrin, til þess að afla sér fjár til byrgðakaupa. Mörg erfið viðfangsefni verður hann að leysa á þessum árum. í stað timburfleka, er hann fyrst notar til flutninga á vatninu, gerir hann sér eintrjáningsbát úr mikl- um cedrusviðarbol, holar hann með eldi, en heggur hann til að utan. Þetta hefur hann þó adrei séð gert áður, en verkið tekst furðu vel. í æsku hefur hann verið frábitinn smíðum, en nauðsynin gerir hann hagan. Hann ræðst í að reisa stærra, betra og varanlegra hús en fyrsta kofann, sem hann gerði. Það er mikið verk að fella tré í húsið, hreinsa af þeim greinar og börk, kljúfa þau, saga og höggva til svo þau þétt- falli, en erfiðastur er þó flutningurinn á þeim á byggingar- stað, og til þess að auðvelda hann gerir hann sér fjórhjóla vagn úr tré, er gengur á teinum, er einnig eru gerðir úr

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.