Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Síða 35

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Síða 35
99 bækur, og bókasafnið í Birkilundi, sem smám saman varð mörg hundruð bindi, varð vandlega valið safn ágætra fræði- bóka. Ekki hélzt þeim hjónunum í Birkilundi á sonunum. Þeg- ar þeir voru 17 ára kusu þeir að brjóta sínar eigin leiðir, og Hrólfi datt ekki í hug að telja þá frá því. Stanley gerðist rafvirki en Johny ljósmyndari. Þrúða var áfram heima, en þegar hún var 21 árs ákvað hún að hefja landnám og gera nýbýli eins og faðir hennar hafði gert og valdi sér 65 ha lands eigi langt frá Birkilundi. Allt var land þetta vaxið þéttum furu- og cedrusviðarskógi, en hún ákvað að ryðja helming þess. Hún gerði 10 m brú yfir ána, ruddi veg upp dalinn frá Birkilundi, reisti sér bjálkakofa, sem hún gat búið í, er hún vann að skógarhögginu, byggði fjós fyrir 14 kýr með heylofti fyrir 68 smálestir af heyi og gerði mat- jurtagarð varinn stauragirðingu. Einu sinni er hún vann á landi sínu, kom elgsdýrstarfur út úr skógarþykkninu. Hún gat ekki flúið, en hoppaði upp á stóran trjábol. Boli gerði árás, en Þrúða þreif viðaröxi og reiddi til höggs. Nautinu skrikaði þá fótur á viðargrein, er það var rétt komið að trjábolnum og öxin sökk í viðinn rétt við nefið á því, og gat Þrúða ekki losað hana til þess að greiða annað högg. Elgurinn beið ekki heldur boðanna en sneri undan inn í skóginn og Þrúða rak flóttann. Hrólfur hafði ekki gleymt draum sínum um sjóflugvél, en lengi gat það ekki orðið annað en draumur. Þetta var eina leiðin til þess að koma vaxandi framleiðslu býlisins á markað, en jafnvel notuð vél við þeirra hæfi kostaði 4000 dali, og það var getu þeirra ofvaxið. í mörg ár gat hann eigi gert annað, en lagt til hliðar árlega örfáa dali, en á þann hátt voru litlar líkur til, að draumurinn rættist nokk- urn tíma. Þá var það, að þessi smávaxni frumbyggi tók djarfa ákvörðun, að smíða sjálfur sjóflugvél að hreyflinum undanskyldum. 7

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.