Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Page 36

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Page 36
100 Hann aflaði sér fyrst og fremst góðra bóka um gerð flug- véla, en komst brátt að því, að stærðfræði hans var ófull- nægjandi, svo hann varð að byrja á því að lesa stærðfræði. Hann þreifaði sig áfram frá einni grein stærðfræðinnar til annarrar. Sumar fannst honum auðveldar, í öðrum sat hann fastur um hríð, en jafnan lauk því svo, að hann náði tökum á efninu, og svo gat hann snúið sé að flugvélarsmíðinni. Hrólfi var það mikill léttir, að iÞrúða hafði jafn mikinn áhuga á viðfangsefninu og hann og var jafnvel enn þá kapp- samari. Þegar hann sat og braut stærðfræðireglur til mergj- ar, las hún yfir öxl hans og þannig lásu þau saman bindi eftir bindi um flugtækni og flugvélagerð. Þrúða var fljót að tileinka sér allt, er að flugi og flugtækni laut, en í því vél- fræðilega og stærðfræðilega stóð hún föður sínum ekki á sporði. Mörg viðfangsefnin urðu þó Hrólfi erfið viðfangs. Allt varð að miðast fyrst og fremst við stærð hreyfils og þyngd. Hrófur hafði ákveðið að nota 85 ha. hreyfil, og út frá því varð hann að reikna út vélarbolinn, gerð hans og stærð. Þá varð hann að velja vængjagerð, er hafði gott burðarmagn og gat lyft vélinni nægilega fljótt yfir fjöllin umhverfis vatnið. Þegar hér var komið undirbúningi flug- vélasmíðarinnar gerðust tíðindi, er opnuðu nýja leið að hinu þráða marki. Arið 1949 ákvað stjórnardeild sú í Canada, er eftirlit með villtum dýrum heyrði undir, að gera tilraun með vetrarfóðr- un lúðursvana, og kom fyrir kombyrgðum, þar sem þeir helzt héldu til á vetrum, en einn aðal aðsetursstaður þeirra var við Vatnið einmana. Kornbyrgðirnar voru fluttar með flugvélum, og einn bjartan dag í ágúst renndi flugmaður- inn Johnny Hatch vél sinni hlaðinni korni niður á Vatnið einmana og inn á víkina við Birkilund. Þegar Hatch kom inn á víkina sá hann smávaxinn, gaml- an mann með grásprengt skegg. Þessi öldungur óð út í vatn- ið undir hendur til þess að taka á móti flugvélinni, og flug-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.