Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Page 39

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Page 39
103 en er hann hóf rannsóknina á Hrólfi hrópaði hann undr- andi: „Hvað er þetta! Blóðþrýstingurinn er eins og í 26 ára manni og loks játaði hann, að heilbrigði og líkamsástand Hrólfs væri betra en flestra þrítugra. Eftir þetta hefði ekkert nema blátt bann drottins sjálfs geta hindrað flug Hrólfs. Hann hóf flugnámið með ákafa ungs manns, og eftir 28 stunda æfingu flaug hann einn. Hrólfur var elzti maður, er tekið hafði flugpróf í Canada. Þegar Hrólfur kom heim hóf hann að æfa sig með að- stoð Þrúðu á sinni eigin flugvél, og er hann hafði æft flug- tak og lendingu í svo sem eina klukkustund, og með aðeins 17 tíma einkaflug í flugbók sinni, hóf hann að fljúga með afurðir búsins yfir fjöllin. Svo skeði það í október, þegar uppskeran var í bezta gengi að gamall og slitinn hreyfillinn í sjóvélinni bilaði svo alvarlega, að eigi varð úr bætt. Þetta hefði getað orðið al- varlegt áfall, en nú kom hin mikla þekking Hrólfs á gerð flugvéla í góðar þarfir. Hann hafði einu sinni ætlað að smíða flugvél og komizt yfir 85 hestafla flugvélarhreyfil í því augnamiði. „Við skiptum um hreyfil," sagði hann við Þrúðu. „Auðvitað er 85 hestafla hreyfillinn 5 kg þyngri en sá, sem er í vélinni, og það krefst nokkurra vandasamra breytinga á vélarskrokknum.“ Varla var unt að segja þetta á yfirlætislausari hátt. Sann- leikurinn var sá, að fæstir flugmenn mundu leggja í að gera slíkar breytingar, er kröfðust mikillar sérfræðilegrar þekk- ingar og góðrar aðstöðu. En þetta var hægt og það nægði Hrólfi. Nú kom stærðfræðiþekkingin í góðar þarfir. Fyrst varð að reikna út áhrif 5 kg aukins vélarþunga á þunga- miðju vélarinnar og burðarmagn. Með aðstoð dóttur sinn- ar þreifaði Hrólfur sig áfram gegnum völundarhús af leiðsl- um, vírum merkjaskífum og tækjum. Það tók þau sex vikur að skipta um hreyfil og gera nauðsynlegar breytingar. Hvemig mundi svo vélin reynast? Hreyfillinn hafði verið

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.