Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Page 47

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Page 47
111 Kröfumar eru miklu fremur metingur og metnaðaratriði heldur en brýn þörf. Þá er því eigi heldur lengur til að dreifa, að hlutur verk- þeganna í arði atvinnufyrirtækjanna sé of lítill, því það er staðreynd, að engin kjaradeila fæst lengur leyst nema þau atvinnufyrirtæki, er hlut eiga að máli, fái heimild til að hækka þjónustugjald sitt eða verð á framleiðslu sinni og velta þannig kauphækkuninni jafnskjótt yfir á almenning, eða þegar um framleiðslufyrirtæki er að ræða, að ríkið verði að hlaupa undir bagga og veita framleiðslunni aukinn fjár- hagsstuðning eða hlunnindi til þess að mæta kjarabótun- um, er þýðir það, að einnig í þeim tilfellum er þeim tafar- laust velt yfir á almenning. Af þessu er augljóst, að verkföll hér eru ekki lengur í eðli sínu deilur milli atvinnuveitenda og launþega heldur fyrst og fremst keppni milli mismunandi samtaka af launþegum um að hrifsa til sín sem mest af þjóðartekjunum. Tilgangur og takmark kjaradeilanna er því orðið allt annað en upp- haflega var. Allt skraf um hinn helga verkfallsrétt, sem eigi megi skerða og ekki megi hrófla við, er því orðið ótímabært, órökstutt og úrelt glamur. Verkfallsrétturinn í sinni núverandi mynd, og eins og honum er nú þráfaldlega beitt, er í hæsta máta óhelgur, getur verið þjóðhættulegur og jafn skaðlegur launþegum sem atvinnurekendum. Þeir, sem eru svo gamaldags og steinrunnir, að þeir sjá þetta ekki eða vilja ekki sjá þetta, ættu að velta dálítið fyrir sér eftirfarandi atriðum: 1. Það eru enganveginn þeir launþegahópar, sem verst eru launaðir eða lakasta hafa aðstöðuna, sem helzt hefja kjaradeilur og verkföll, heldur oft og tíðum starfshópar með mjög góðum tekjum. 2. Fámennir launþegahópar eða launþegafélög hafa að- stöðu til að stöðva með verkföllum atvinnulíf þjóðfélagsins að meira eða minna leyti, svelta heilar borgir og landshluta

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.