Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 48

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 48
112 og valda framleiðsluatvinnuvegunum stórtjóni og lítt bæt- anlegu. 3. Starfsmenn margra atvinnufyrirtækja og starfsgreina eru skiptir milli margra fagfélaga eða hagsmunasamtaka og getur hvert um sig með verkfalli stöðvað alla starfsgreinina og lamað allt það atvinnulíf, er henni er tengt. Þannig er hægt árið út og árið inn að halda uppi látlausum skæru- hernaði innan einnar og sömu starfsgreinar. 4. Þegar svona er í pottinn búið er augljóst, að pólitísk- um spekúlöntum er innan handar að nota kjaradeilur og verkföll til þess að gera löglegum ríkisstjórnum ókleyft að stjórna landinu eða koma fram nauðsynlegum umbótum á fjármálaástandi þjóðarinnar. Slíkt ástand jafngildir í raun og veru uppreisn og er fullkomin misþyrming á öllum lýð- ræðislegum hugtökum. Þetta voru þó ein sterkustu rökin fyrir réttmæti núverandi stjórnarsamsteypu, að hún mundi tryggja vinnufriðinn, vegna þess, að þeir flokkar, er áður voru í stjórnarandstöðu, voru teknir í hana. Þar með er það viðurkennt, að þessir flokkar hafi beitt verkföllum og kjaradeilum gegn fyrrverandi stjóm. Trygging vinnufriðar- ins hefur þó eigi tekizt betur en svo, að lengst af síðan þessi stjórn komst til valda hefur þjóðin verið tröllriðin af vinnu- deilum og verkföllum. Fyrrverandi stjórnarandstaða hefur því látlaust mátt glíma við sinn eigin draug og ætti því að vera reynslunni ríkari. Að sjálfsögðu hefur núverandi ríkis- stjórn með réttu eða röngu kennt stjórnarandstöðunni um þetta ástand. Af þessu verður aðeins dregin sú ályktun, að landinu verði ekki stjórnað nema vinnulöggjöfinni sé breytt í meginatriðum og hinn „heilagi" verkfallsréttur sé fyrst og fremst skertur. Um „hans heilagleika", verkfallsréttinn, mætti margt segja, en hér verður að nægja að benda á, að hann hefur aldrei verið almenningseign heldur aðeins sérréttindi, sem vissir starfshópar hafa tileinkað sér, upphaflega af illri nauð-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.