Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Qupperneq 51

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Qupperneq 51
115 komið eru allar kjaradeilur beint eða óbeint háðar gegn ríkinu og verða ekki jafnaðar nema með íhlutun ríkis- valdsins. Slíka allsherjarflokkun mætti gera á líkum forsendum og flokkun opinberra starfsmanna í launaflokka, og er þá margt, er taka verður til greina, svo sem, hve erfitt og vanda- samt starfið er, hve mikillar sérhæfni og undirbúnings það krefst, hve langur starfsaldurinn er, hve tryggt það er, hvaða hlunnindi fylgja því og margt fleira. Slíkt allsherjarmat og flokkun starfanna í þjóðfélaginu gæti komið í veg fyrir ýmiss konar handahóf og spillingu í þessum efnum. Svo sem yfirboð atvinnufyrirtækja og stofnana, er oft hafa orð- ið undirrót að óeðlilegum launahækkunum, er dregið hafa mikinn dilk á eftir sér. Þetta gæti dregið úr margháttaðri spákaupmennsku á vinnumarkaðinum, svo sem feluleik með tekjur, sjálftekt í töxtum, svo sem virðist geta átt sér stað hjá sumum stéttum, en gæti jafnframt orðið undirstaða undir mikilsverðum þjóðfélagslegum umbótum, svo sem vinnutryggingum og almennum eftirlaunum. Allsherjar launalög mundu auka öryggi og festu í þjóðfélaginu og taka fyrir þær endalausu lagfæringar og samræmingar, sem það er nú látið heita þegar verið er að hrinda af stað kjara- deilum eða þegar búið er að raska jafnvæginu milli laun- þeganna. Að sjálfögðu gætu alltaf komið til álita breytingar á slíkum allsherjarreglum, hækkanir á launaflokkum eða flutningur milli flokka, eftir því sem rök, reynsla og ástæð- ur sýndu eðlilegt, en þó aðeins þannig, að fullt tillit yrði tekið til annarra launþega. Margt fleira í núverandi vinnulöggjöf þarf að endurskoð- ast gaumgæfilega, svo sem margháttuð hlunnindi og íviln- anir, sem búið er að læða inn í kjarasamninga, sem dulbún- um kauphækkunum, er gera viðskiptin milli vinnuveitenda og launþega alltof flókin og skriffinnskuleg, eru af launþeg- um vanmetin og eru því betur komin sem bein laun. Þá 8*

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.