Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 54

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 54
118 Hæfilegt mun vera að jafnaði að láta um 5 kg af hreinu köfnunarefni að hverjum 1000 plöntum. Af þeim tegund- um, sem nú eru á boðstólum ættu því 25 kg af kalkammon- saltpétri, sem í er 20,5% köfnunarefni, eða 15 kg af 33,5% ammoniumsaltpétri, að endast á hverjar 1000 plöntur. Af þeim áburðartegundum, sem hér eru venjulega til sölu, má búa til góða blöndu úr 25 kg af kalkammonsalpétri, 11 kg af þrífosfad og 8 kg af 60% kalíáburði. Og af þessari blöndu er hæfilegt að láta um 40—50 gr að hverri plöntu. Þessum áburði er dreift í kringum plönturnar að lokinni gróðursetningu. Ágætt er að bera á í dumbungsveðri eða úrkomu. Loks má geta þess, að tilbúinn áburð er ágætt að leysa upp í vatni og vökva með því. Þá kemur áburðurinn fljótt að notum. Varast skyldu menn að hella áburðarvatni á blöð eða barr. -----o----- Hér munu allir heilskyggnir menn sjá það svart á hvítu, að tilefni til greinar Árna Eylands hefur verið furðu lítið, því að auk þeirrar leiðbeiningar, sem að ofan getur má benda á marga aðra pistla, bæði í riti Skógræktarfélagsins og annars staðar, sem víkja að þessu sama efni. Nú skyldu menn ætla að fyrrv. formaður Skógræktarfélags íslands, Á. E., hefði kynnt sér hvað í ritum félagsins stóð, og ætla mætti að Ó. J., sem rekið hefur trjáræktarstöð í 25 ár, vissi líka eitthvað um það, sem skrifað hefur verið, en því virðist ekki að heilsa. En hefðu þessir menn haft nokkra hugmynd um fyrrnefnda grein, mundi höf. varla hafa hlaup- ið á sig, og enn síður hefði Ó. J. endurprentað hana, því að nær hefði verið að taka upp ofanritaðar leiðbeiningar. Við skógræktarmenn tökum viljann fyrir verkið. Hákon Bjarnason.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.