Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1924, Blaðsíða 9
11
Athugasemdir.
Pessi tvö síðustu ár hafa allmiklar breytingar orðið til batn-
aðar á hag kostnaðarsjóðsins. Á stríðsárunum eyddist tekju-
afgangur rekstursreikningsins nær pví alveg, en nú í 3 ár hafa
tekjurnar vaxið langtum meira en gjöldin, svo að tekjuafgang-
urinn hefir aukist úr kr. 2618,80 upp í kr. 16458,65.
Pessa var lika full þörf, pví að nú verður ekki lengur kom-
ist hjá, að kosta allmiklu til umbóta á fasteignum félagsins og
til viðhalds peim. Svo ætti og enn að hækka hið árlega gjald
til varasjóðsins og raunar til fasteignasjóðs líka, pví að að pví
rekur, að endurbyggja verður hin gömlu hús og gera gagn-
gerða umbót á húsaskipuninni. Pað mun pví varla geta komið
til mála, að draga úr tekjum kostnaðar- eða reksturssjóðsins
með lækkun hundraðsgjaldsins.
Af tekjuliðum reikningsins eru pað aðeins tveir, sem hafa
hækkað til muna pessi tvö ár, nefnil. hundraðsgjaldið af vör-
um, úr kr. 85450,00 upp í kr. 160842,00, og tekjur af Söludeild-
inni úr 1390 kr. í 2200 kr. Aftur á móti hafa vaxtatekjur minkað
mikið, sem kemur af pví, að skuldavextír deildanna hafa verið
lækkaðir svo sem frekast var unt.
Af föstum gjaldagreinum hafa einkum hækkað pessar: kostn-
aðarreikningar félagsstjórnar úr kr. 524,00 í kr. 1289,00, laun
starfsmanna úr 12200 kr. í 14573 kr. og útsvar til Húsavíkur-
hrepps úr 2327 kr. í 3086 kr. Svo hefir og sérkostnaður vara
vaxið nokkuð, einkum kostnaður státurhúsanna.
Lækkað hafa pessar gjaldagreinar: fundakostnaður um 657
kr., verðfall og rýrnun vara um 4600 kr. Að öðru leyti eru
tekju- og gjaldagreinar kostnaðarsjóðsins allar hinar sömu,
sem verið hafa að undanförnu.