Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1924, Page 40
42
kaupmenn vel, að pessir menn hafa betri aðstöðu til slíkrar
„starfrækslu" en ókunnugir aðvífandi sendimenn, og svo er
peim kærkomin hver truflun, er þeir fá til vegar komið í sam-
heldni félagsmanna. Að öðru leyti skal hér ekki farið út i,
hverjar fjárhagslegar afleiðingar petta hefir fyrir K. Þ. út á við,
pótt paö sé mjög svo þýðingarmikið umræðuefni.
Skýrslan IV sýnir meðalvigt kindakroppa af hverri tegund
sláturfjár I hverri deild fyrir sig. Hún sýnir einna glegst gæði
fjárins úr hverri deild, að minsta kosti að pvi er snertir lömb
og mylkar ær, pví að af þeim fjártegundum er á hverju ári
slátrað svo mörgu, að meðalvigtin er nokkurn veginn áreiðan-
legur mælikvarði. En veturgamalt og eldra geldfé er úr flest-
um deildum svo fátt og ýmislega háttað, að meðalvigt pess
getur ekki orðið áreiðanlegur mælikvarði á gæði fjárins og
sannar lítið um samanburð milli deildanna, pví að úr sumutn
deildunum eru máske 2—3 kindur, en úr öðrunt 50- 100, eink-
unt pó af sauðunum, eins og skýrslurnar III a—c sýna. Að
öðru leyti getur hver og einn dregið pá lærdóma úr þessum
skýrslum, sem í peitn eru fólgnir.
En sá lærdómur, sem óbornar kynslóðir — að nokkrum
mannsöldrum liðnuni — munu draga af pessum skýrslum, hlýt-
ur að verða sá, að á fyrri hluta 20. aldarinnar hafi sauðfjár-
ræktin og vöruvöndunin hér á landi verið næsta skamt á veg
komin, búnaðarhættirnir hafi verið á lágu proskastigi og frem-
ur í afturför en framför vegna uinturnunnr í öllu pjóðlífinu og
lifnaðarháttunum, af pvi að gamall grundvöllur pess var hrun-
inn, en hið nýja skaint á veg komið og fálmandi í óvissu
eftir fótfestu.
Hér er nefnilega gert ráð fyrir pví, að miklar framfarir séu
fram undan og breytingar, af pví að núverandi ástand reynist
haldlaust til frambúðar, svo að í lok aldarinnar sýni santskon-
ar skýrslur sem þessar alt aðrar niðurstöður og annað ástatid.
Hvað er pað pá, sem er athugaverðast við pað, sem pess-
ar skýrslur leiða I ljós?
Það, að pær bera vott um, að til sauðfjárræktunarinnar og
vöruvöndunarinnar er varið svo litlu af mannanna hálfu, bæði