Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1968, Blaðsíða 130
130
SKRÁRLANDSBÓKASAFNS
í skránum um grafskriftir og erfiljóð er raðað í eina stafrófsröð nöfnum þeirra,
sem ort er um. Skránni um tækifæriskvæði er raðað í áraröð.
Þá hefur Ólafur F. Hjartar unnið að spjaldskrá um smáprent félaga og samtaka,
en henni er ekki lokið.
SÉRSKRÁR UM BÓKAFLOKKA í SAFNINU
Elztu bœkur í Landsbókasafni
Pétur Sigurðsson: Elztu bækur í Landsbókasafni íslands. í Ritaukaskrá Lands-
bókasafnsins 1939. - Einnig sérprentað.
Birt í tilefni 500 ára afmælis prentlistarinnar. - Nær til bóka prentaðra utan
Norðurlanda fram til 1550 og Norðurlandabóka fram til 1600.
Skák
Skrá um erlend skákrit í Landsbókasafni íslands. Rv. júní 1968.
Hér er m. a. skráð sérstaklega hin mikla skákritagjöf próf. Willards Fiskes.
Ferðabœkur og náttúrufræðirit
Haraldur Sigurðsson hefur í smíðum skrá um ferðabækur og náttúrufræðirit er-
lendra manna um ísland. Skráin er enn í handriti.
SKRÁ UM EFNI ÍSLENZKRA BLAÐA OG TÍMARITA
Um árabil hefur verið unnið í safninu að spjaldskrá um efni íslenzkra blaða og
tímarita. Skráningarstarf þetta hóf Finnur Sigmundsson, en lengst hefur unnið
að því Haraldur Sigurðsson. Enn fremur hefur verið fellt inn í skrána talsvert efni,
er Jón Ólafsson hafði fyrir löngu skráð úr blöðum og tímaritum frá fyrri öld.
Skráin er höfundaskrá og nær til greina,1 sagna, kvæða, leik- og ritdóma í blöð-
um og tímaritum. Skráin stendur í spjaldskrárherbergi safnsins. Á miðju ári 1968
eru komin í skrána um 100 þúsund spjöld. Blöð þau og tímarit, sem skráð hefur verið
úr, eru þessi (ártöl tákna einungis það tímabil, sem skráning nær til):
Aldamót 1891-1903.
Almanak Hins ísl. þjóðvinafélags 1901-64.
Almanak Ó. S. Thorgeirssonar 1903-54.
Alþýðublaðið 1920-44.
Ameríka 1873—74.
Andvari 1874—1962.
Árbók Fomleifafélagsins 1880-1964.
Ármann á Alþingi 1829-32.
Arnfirðingur 1901-03.
Ársrit Hins ísl. fræðafélags 1916—30.
Ársrit presta í Þórsnesþingi 1846—47.
Ársrit Prestaskólans 1850.
Ársrit Verkfræðingafélags íslands 1912—14.
Bindindistíðindi 1884—85.
Bjarki 1896-1904.
Breiðablik 1906-14.
1 Úr dagblöðum eru skráðar höfundargreindar ritsmíðar aðrar en þær, sem fjalla um dægurmál,
en stefnuskrárgreinar stjómmálaforingja þó teknar með.