Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Blaðsíða 5
Finnur Sigmundsson
fyrrverandi landsbókavörður
Fœddur 17.febrúar 1894.
Dáinn 24. júní 1982.
Finnur Sigmundsson fæddist á Ytrahóli í Kaupangssveit 17. febrúar
1894, sonur Sigmundar bónda þar Björnssonar og konu hans, Frið-
dóru Guðlaugsdóttur frá Þröm í Garðsárdal. Friðdóra var systir
þeirra kunnu bræðra Kristins og sr. Sigtryggs á Núpi, og minntist
Finnur þeirra fagurlega í viðtali, er Valtýr Stefánsson átti við hann og
birt var á sextugsafmæli hans 17. febrúar 1954. Þar segir hann svo
m. a.:
„Þeir bræður, sr. Sigtryggur og Kristinn, ólust upp á Þröm í
Garðsárdalnum. Þó föðurleifð þeirra væri dalakot, var hún menning-
armiðstöð sveitarinnar í mörg ár. Meðan bræðurnir voru heima, gáfu
þeir út skrifað sveitarblað, er gekk á milli bæjanna og hét „Vísir“.
Einir sex árgangar af þessu skrifaða blaði eru til í Landsbókasafninu
með hendi afa míns, Guðlaugs.
Bræðurnir á Þröm voru forgöngumenn að félagsskap, er nefndist
„Menntavinafélag“ og beitti sér fyrir ýmsum menningar- og fram-
faramálum sveitarinnar.“
Finnur kveðst í viðtalinu allt frá bernsku hafa kunnað vel við sig,
þar sem hann hafði tækifæri til að umgangast bækur, og því hafi hann
ráðizt til náms í bókbandsiðn á bókbandsstofu Sigurðar Sigurðssonar
á Akureyri, en skólaganga þá ekki hvarflað að sér.
Atvik, er hann lýsir, réðu því, að hann hóf nám í Gagnfræðaskól-
anum á Akureyri og lauk þaðan prófi 1917. Fimm árum síðar tók
hann stúdentspróf utanskóla í Reykjavík og hófum haustið 1922 nám
í norrænum fræðum við Háskóla íslands. Efnin voru lítil, og segist
Finnur ekki vita, hvernig farið hefði, ef sr. Sigtryggur móðurbróðir
hans hefði ekki stutt hann bæði með ráðum og dáð.
Finnur kvæntist 1924 Kristínu Aðalbjörgu Magnúsdóttur bónda
að Bitru í Eyjafirði, Tryggvasonar. Hann varð því brátt að hyggja að