Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Blaðsíða 10
10
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
Pað var því ekki að ófyrirsynju, að Háskóli íslands heiðraði hann á
fimmtugsafmæli sínu 1961, er Finnur var kjörinn heiðursdoktor af
lteimspekideild skólans.
Finnur Sigmundsson sló ekki slöku við um dagana, vann fyrst
Alþingi og síðan Landsbókasafni lungann úr deginum, en ílýtti sér
svo heim og settist við skriftir, og hefur þá oft verið framorðið, er
hann lagði frá sér pennann. Sumarleyfi og langferðir út um lönd voru
honum víðs 5arrh þótt hann nyti vel þeirrar einu utanlandsferðar, er
hann fór um dagana, til írlands og Danmerkur.
Þótt Finnur Sigmundsson væri ekki ýkja mannblendinn, var hann
manna viðkunnanlegastur og kunni vel að gera að gamni sínu í góðra
vina hópi. Fyrstu árin eftir að hann lét af störfum í Landsbókasafni,
kom hann stundum á Arnarhól, en þegar aldurinn færðist yfir,
fækkaði ferðunum og fundum bar sjaldan saman.
Meðan penni er huglátt hjú/ held ég nenni að lifa, mælti Stephan
G. eitt sinn, þegar hann var gamall orðinn, og hið sama gat Finnur
Sigmundsson sagt. Þegar hann lagði að lokum frá sér pennann, var
eins og dofnaði yfir honum. Og þegar Kristín kona Finns lézt 10.
febrúar 1982, var þess skammt að bíða, að lífsþráður hans raknaði
allur.
Þeim Kristínu og Finni varð tveggja barna auðið og eru þau Erna,
gift Geir Hallgrímssyni utanríkisráðherra, og Birgir, forstöðumaður
Tjaldanessheimilisins í Mosfellssveit, kvæntur Hildi Knútsdóttur.
Þrjátíu og fimm ára ferils Finns Sigmundssonar í Landsbókasafni
íslands mun lengi verða minnzt með virðingu og þökk.
F. G.